Voru ár í óbyggðum: Enginn lét þátttakendur vita að hætt var við að sýna þættina Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 28. mars 2017 12:58 Svekkjandi. Mynd/Channel 4
Þátttakendur í nýstárlegum breskum raunveruleikaþætti sneru aftur til byggða nýverið eftir ár í óbyggðum. Þátturinn var hins vegar tekinn af dagskrá eftir fjóra þætti, en enginn sagði þátttakendunum frá því. Alls héldu 23 þátttakendur til óbyggða í skosku hálöndunum á síðasta ári til þess að taka þátt í raunveruleikaþættinum Eden sem framleiddur var af Channel 4 í Bretlandi. Áttu þátttakendur að byggja upp sjálfbært samfélag án þess að nýta sér tækni eða nútíma verkfæri. Þættirnir áttu að ná yfir heilt ár en fljótlega eftir að fyrsti þátturinn var sýndur fóru vinsældir hans að dala. Svo fór að aðeins fjórir þættir, sem náðu yfir fjóra mánuði, voru sýndir og var þátturinn tekinn af dagskrá. Svo virðist þó sem að þátttakendur hafi ekki fengið að vita af því og var haldið áfram að framleiða þáttinn, jafnvel þó að hann væri ekki lengur á dagskrá. Framleiðslan virðist þó ekki hafa gengið áfallalaust fyrir sig því í frétt Guardian segir að tíu af 23 þátttakendum hafi hætt í miðju kafi vegna innbyrðis deilna, afbrýðissemi og svengdar. Tökur hófust í mars á síðasta ári og sneru þátttakendurnir sem eftir voru aftur til byggða fyrir skömmu. Í frétt Guardian segir að þátttakendur hafi ekki fengið aðgang að fréttum á meðan á tökum stóð og því má leiða líkur að því að hinir sömu sem eftir voru hafi snúið aftur í töluvert breytta heimsmynd, enda Donald Trump orðinn Bandaríkjaforseti og Bretland á leið út úr Evrópusambandinu.
Mest lesið Myndir: Allt á floti í Kringlunni Innlent Umfangsmikið mengunarslys vegna rútuslyssins Innlent „Sumar búðir hafa sloppið vel, aðrar ekki“ Innlent Náði ekki að loka búðinni áður en henni var sagt að koma sér út Innlent Leiðinlegt fyrir útskriftarnema sem er hent út áður en þeir taka sopa Innlent „Við munum ekkert hreyfa okkur í sumar“ Innlent Konungsskip Dana í Reykjavík Innlent Harma banaslysið og hafa uppfært verkferla Innlent Sigurður Ingi ekki búinn að undirrita Isavia-samning Innlent Eldur logar í þaki Kringlunnar Innlent Fleiri fréttir Katrín kemur fram í fyrsta sinn frá krabbameinsgreiningu Festust á hvolfi í hálftíma Krefst landsvæðis og að Úkraína dragi NATO-umsóknina til baka Vara við TikTok-æði eftir handtöku tveggja unglinga Samþykktu fimmtíu milljarða dala aðstoð til Úkraínu Lést eftir að hafa fengið rafstraum í heitum potti Óeirðaástand í Buenos Aires vegna aðgerðarpakka Milei Lokuðu ferðamannastöðum og skólum vegna mikils hita Gamall handritsbútur reyndist úr guðspjalli um æsku Krists Aðeins fjórðungur Breta vill vera utan ESB Reyna að mynda bandalög fyrir skyndikosningar í Frakklandi Óvíst með afdrif vopnahléstillögunnar Frederiksen enn ekki með sjálfri sér eftir árásina Íhuga að virða tímamótadóm að vettugi Biden virðir sakadóminn yfir syni sínum Óhollar vörur drepa fjórðung Evrópubúa Stilla upp harðlínumönnum til að fylla skarð Raisi Flugfélagið býður hinum slösuðu minnst 1,4 milljónir í bætur Bananarisi ábyrgur fyrir morðum kólumbískrar dauðasveitar Umdeildur dómari vill trúræknari Bandaríki Varaforseti Malaví á meðal tíu látinna Hamas samþykkir vopnahléstillöguna Merki um stríðsglæpi beggja fylkinga þegar gíslar voru frelsaðir Skutu viðvörunarskotum að norðurkóreskum hermönnum Hægri öfl gætu eignast sinn fyrsta forsætisráðherra Tólf ára drengir sekir um morð á nítján ára gömlum manni Öryggisráðið styður friðartillögu Biden Flugvél varaforseta Malaví týnd Biden ber ekki vitni í eigin sakamáli Ekkja leiðtoga ISIS leysir frá skjóðunni Sjá meira