Nýtt leikjafyrirtæki Þorsteins í QuizUp Sæunn Gísladóttir skrifar 29. apríl 2017 07:00 Þorsteinn ætlar að stofna fyrirtæki með samstarfsmönnum úr QuizUp, Gunnari Hólmsteini Guðmundssyni og Ými Finnbogasyni. vísir/vilhelm
Þorsteinn B. Friðriksson, stofnandi Plain Vanilla, vinnur nú að stofnun nýs fyrirtækis sem samkvæmt heimildum Fréttablaðsins mun starfa í leikjageiranum. Þorsteinn stofnaði Plain Vanilla árið 2010 en fyrirtækið þróaði meðal annars leikinn vinsæla QuizUp. „QuizUp var selt út til Bandaríkjanna núna um áramótin og í rauninni lauk mínum afskiptum af QuizUp þá, það eru komnir nokkrir mánuðir síðan og það er kannski eðlilegt að maður sé að pæla í því hvað næsta verkefni verði. Það er rétt að ég er að skoða það, ég ætla ekki að segja að það sé leikjafyrirtæki, en við erum með ýmislegt í bígerð sem við erum að skoða núna,“ segir Þorsteinn. Í apríl 2016 var greint frá því að fjárfest hefði verið í Plain Vanilla fyrir um fimm milljarða króna frá stofnun þess. Fyrirtækið sendi svo frá sér tilkynningu í lok ágúst á síðasta ári þess efnis að skrifstofu þess í Reykjavík yrði lokað. Öllum 36 starfsmönnum fyrirtækisins var sagt upp. Ákvörðunin var tekin í kjölfar þess að NBC hætti við framleiðslu á þáttum byggðum á leiknum. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins hefur Þorsteinn tekið á leigu húsnæði undir nýja fyrirtækið á Laugavegi 26 en þar er meðal annars til húsa auglýsingastofan Jónsson & Le’macks. „Ég er ekki að kaupa neina fasteign en við höfum verið að leita að húsnæði undir þetta nýja verkefni,“ segir hann. Þorsteinn segist ekki að svo stöddu geta sagt meira um verkefnið eða hverjir standi að því með honum. En samkvæmt heimildum eru það meðal annars Gunnar Hólmsteinn Guðmundsson, sem var starfsmannastjóri (COO) hjá Plain Vanilla, og Ýmir Finnbogason, sem var fjármálastjóri hjá Plain Vanilla. „Ég er búinn að taka mér ágætis frí eftir rússíbanann í kringum QuizUp, ég er bara aðeins að skoða nokkur tækifæri og meta það. Það er skemmtilegt. Skemmtilegasti hlutinn í þessu frumkvöðlastarfi er að kasta fram hugmyndum og pæla í hvernig sé hægt að búa til verðmæti,“ segir Þorsteinn.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Fær 9,5 fyrir IKEA og JYSK samsetningar Atvinnulíf Þegar svona sprengja springur vill allur vinnustaðurinn „fá allt á hreint“ Atvinnulíf Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Viðskipti innlent Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Viðskipti innlent Paramount og Warner Bros. heyra brátt sögunni til Viðskipti erlent Fréttamaður missti af strætónum til baka Neytendur Klíníkin sótti 300 milljónir króna Viðskipti innlent Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Viðskipti innlent 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Viðskipti innlent G7 setja hundrað milljón tunnur á markaðinn Viðskipti erlent Fleiri fréttir Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Verðbólga ekki meiri í tvö ár Högnuðust um milljarð Rúmlega tuttugu sagt upp hjá ÍAV Hannes Þór, Hannes Þór og Allan greiða sér 100 milljónir í arð Uppsagnir í Arion banka Sjá meira