GAMMA og Interlink hefja samstarf með sjö milljarða þróunarsjóði Daníel Freyr Birkisson skrifar 12. desember 2017 12:37 Gísli Hauksson, stjórnarformaður GAMMA. Vísir/GVA
GAMMA Capital Management hefur hafið samstarf á sviði jarðvarma við Interlink Capital Strategies, bandarískt ráðgjafarfyrirtæki sem sérhæfir sig í fjármögnun og viðskiptaþróun í nýmarkaðsríkjum. Fyrst um sinn felur samstarfið í sér rekstur þróunarsjóðsins Geothermal Development Facility (GDF), en hann veitir styrkjafjármögnun til jarðvarmaverkefna í Suður-Ameríku. Sjóðurinn er að mestu fjármagnaður af þýska þróunarbankanum KfW í samstarfi við Evrópusambandið.Uppsett afl 350 MWMarkmið sjóðsins er að fjármagna yfirborðskönnun og tilraunaboranir í Suður-Ameríku og draga þannig úr óvissu verkefna með það að markmiði að auðvelda þeim aðgengi að lánsfé og annarri fjármögnun. Alls er GDF ætlað að gera jarðvarmaverkefni með uppsett afl 350 MW að veruleika. Til samanburðar er uppsett rafafl Reykjanesvirkjunar um 100 MW. GDF sjóðurinn var stofnaður á síðasta ári en fyrsta úthlutun úr sjóðnum átti sér stað nú í haust. Sjóðurinn er nú þegar um 65 milljónir Bandaríkjadala að stærð (andvirði tæplega 7 milljarða króna). Áætlað er að snemma á næsta ári verði sjóðurinn allt að tvöfaldaður með fjármagni frá núverandi sjóðsfélögum.Jarðvarminn sinnir sífellt stærra hlutverki „Jarðvarminn hefur þá sérstöðu umfram vind- og sólarorku að geta tryggt grunnafl inn á raforkukerfi án truflana eða dægursveiflu, auk þess sem framfarir á sviði djúpborunar munu stórauka nýtingarmöguleika á næstu árum. Við hjá GAMMA höfum óbilandi trú á möguleikum jarðvarma, ekki aðeins á Íslandi, heldur um allan heim, og teljum að hann muni leika sífellt stærra hlutverk í raforkuframleiðslu á heimsvísu. Við erum því afar stolt af samstarfinu við INTERLINK, sem deilir sýn okkar á möguleikum jarðvarmans sem orkugjafa,“ segir Gísli Hauksson, stjórnarformaður GAMMA. Interlink Capital Strategies var stofnað árið 1994 og er með höfuðstöðvar í Washington DC. Félagið sinnir fjármála-, fjárfesta-, fjármögnunar- og annarri viðskiptaráðgjöf á alþjóðavísu. Ráðgjafar Interlink sérhæfa sig í þróun, fjármögnun og framkvæmd ýmissa verkefna víða um heim. Félagið er jafnframt þátttakandi og ráðgefandi aðili í fjárfestingum á vegum opinberra aðila í Afríku, S-Ameríku, Austur Evrópu, í Mið-Austurlöndum, Asíu og Rússlandi.
Mest lesið Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Viðskipti innlent Fréttamaður missti af strætónum til baka Neytendur Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Viðskipti innlent Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag Viðskipti innlent Þegar svona sprengja springur vill allur vinnustaðurinn „fá allt á hreint“ Atvinnulíf 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Viðskipti innlent „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Viðskipti innlent Gapti þegar hún sá heimilisbókhaldið hjá Röggu nagla Neytendur Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Viðskipti innlent Klíníkin sótti 300 milljónir króna Viðskipti innlent Fleiri fréttir Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Verðbólga ekki meiri í tvö ár Högnuðust um milljarð Rúmlega tuttugu sagt upp hjá ÍAV Hannes Þór, Hannes Þór og Allan greiða sér 100 milljónir í arð Uppsagnir í Arion banka Sjá meira