Markaðurinn misskildi orð seðlabankastjóra Kristinn Ingi Jónsson skrifar 24. ágúst 2017 06:00 Seðlabankastjóri segir að vextir verði ekki lækkaðir til þess að "vinda ofan af fjárstreymistækinu“. vísir/stefán
Agnar Tómas Möller, framkvæmdastjóri sjóða hjá GAMMA, segir að höft Seðlabanka Íslands á innflæði erlends fjármagns sé aðalástæða þess að lengri tíma vaxtamunur við útlönd hafi haldist hár. Ummæli Más Guðmundssonar seðlabankastjóra um að minni vaxtamunur sé forsenda þess að hægt sé að létta á innflæðishöftunum séu því nokkuð undarleg „því eggið komi vanalega ekki á undan hænunni“. Seðlabankastjóri tók fram á fundi í Seðlabankanum í gær, þar sem kynnt var ákvörðun peningastefnunefndar bankans um að halda stýrivöxtum óbreyttum, að vextir bankans yrðu ekki lækkaðir til þess eins að „vinda ofan af fjárstreymistækinu“. Þess í stað yrði losað um innflæðishöftin í skrefum sem tækju tillit til aðstæðna og þá ekki síst þróunar lengri tíma vaxtamismunar við útlönd. Seðlabankinn virkjaði sérstakt fjárstreymistæki í júní í fyrra. Var þá kveðið á um að 40 prósent af innflæði fjármagns vegna fjárfestinga í skuldabréfum þyrfti að binda í eitt ár á núll prósent vöxtum. Jón Bjarki Bentsson, aðalhagfræðingur Íslandsbanka, segir að ýmsir á markaði hafi túlkað orð sem Már hafi látið falla í viðtali við fréttaveitu Bloomberg í byrjun mánaðarins á þá leið að Seðlabankinn teldi sig knúinn til þess að losa um innflæðishöftin og að það væri sjálfstæð ástæða til lækkunar vaxta. Seðlabankastjóri hafi með yfirlýsingu sinni í gær reynt að leiðrétta þann misskilning.Agnar Tómas Möller, framkvæmdastjóri sjóða hjá GAMMA„Það kom skýrt fram í máli seðlabankastjóra í gær að bankinn hugsar þetta öfugt. Að hann muni losa jafnt og þétt um innflæðishöftin þegar vaxtamunurinn við útlönd er orðinn það lítill að það leiði ekki til stórkostlega kviks innflæðis. Þeir virðast þannig sjá losun innflæðishaftanna sem möguleika sem er smám saman að opnast eftir því sem vaxtaumhverfið hér færist nær því sem eðlilegt má teljast erlendis. Með vaxtalækkun hér á landi sem og hækkandi vöxtum erlendis sé ekki lengur þörf á svona ströngum innflæðishöftum.“ Agnar Tómas segir innlenda fjárfesta hafa leitað úr landi eftir að losað var um gjaldeyrishöftin í mars á sama tíma og erlendum skuldabréfafjárfestum sé haldið fyrir utan landið. „Innflæðishöftin hafa þannig leitt til aukinna sveiflna í gengi krónunnar og hugsanlega ýtt upp verðbólguálagi sem gæti stuðlað að aðhaldssamari peningastefnu en ella. Hugsanlega hefur það riðið baggamuninn í þeirri ákvörðun Seðlabankans að halda vöxtum óbreyttum, því yfirlýsingar Seðlabankans í gær tikkuðu í öll box fyrir lækkun vaxta,“ segir hann. Agnar Tómas bendir auk þess á að samkvæmt nýrri þjóðhagsspá Seðlabankans muni fjárfestingar fyrirtækja dragast saman á næstu árum. Það sé mikið áhyggjuefni. „Eftir að losað var um gjaldeyrishöftin vantar nauðsynlega aukið fjármagn inn í hagkerfið. Það skýtur því skökku við að Seðlabankinn skuli ekki fylgja ráðleggingum Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og aflétta hömlum á erlenda lengri tíma skuldabréfafjárfestingu.“ Undir þetta tekur Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Hann segir Seðlabankann ekki geta lengur falið sig á bak við það að innflæðishöftin séu neyðarúrræði fyrir íslenskt efnahagslíf. „Innflæðishöftin hefta, eðli máls samkvæmt, erlenda fjárfestingu og skaða þar með íslenskt efnahagslíf til lengri tíma litið. Höftin hafa verið við lýði í rúmlega ár þvert gegn ráðleggingum Alþjóðagjaldeyrissjóðsins sem hefur lagt áherslu á að þau eigi ekki að gegna lykilhlutverki í hagstjórn. Það er mjög gagnrýnivert.“
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Þegar allt er að fara fjandans til… Atvinnulíf Hermann framkvæmdastjóri Fálkans Ísmars Viðskipti innlent Telur Þórð hafa misskilið en sama tala varð niðurstaðan Viðskipti innlent Fjórar af hverjum fimm íbúðum seljast undir auglýstu verði: „Við höfum miklar áhyggjur“ Viðskipti innlent Bundu nær allan koltvísýring og brennistein á Hellisheiði Viðskipti innlent Ráðin markaðsstjóri Prís Viðskipti innlent Skipuleggur matseðil fjölskyldunnar á augabragði, passar upp á óþol og sparar í innkaupum Atvinnulíf Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá Íslandshótelum Viðskipti innlent Eina vottunin sem sýnir hvaða fyrirtæki skara raunverulega fram úr Framúrskarandi fyrirtæki Saka Símann um undirboð með áskriftarpakka Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hermann framkvæmdastjóri Fálkans Ísmars Telur Þórð hafa misskilið en sama tala varð niðurstaðan Fjórar af hverjum fimm íbúðum seljast undir auglýstu verði: „Við höfum miklar áhyggjur“ Bundu nær allan koltvísýring og brennistein á Hellisheiði Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá Íslandshótelum Ráðin markaðsstjóri Prís Saka Símann um undirboð með áskriftarpakka Opna nýtt kaffihús í Listasafni Reykjavíkur Svona er umhorfs í endurbættri fríhöfn Tjáir sig ekki um hvort mál tengt Heiðari sé til skoðunar 65 milljarða halli ef svartsýna sviðsmyndin rætist Á ég að festa vextina á húsnæðisláninu? Atli Þór til Almannaróms Sjö milljarðar gætu farið frá ríki til flugfélaga með sérlausn Markaðurinn verðleggur meiri verðbólgu eftir fjárlögin Reiðarslag, gríðarleg vonbrigði og „efnahagslegt flanerí“ Færri tengifarþegar en fleiri komu til Íslands Ferðamenn verða rukkaðir um aðgang að ferðamannastöðum Bankaskattur hækkaður um 75 prósent Gert ráð fyrir fimm milljarða afgangi „Það er svona sem við stækkum þessa köku“ Bakarar í basli eftir bandarísk mistök Yfir sjö þúsund tóku þátt í Regluverðinum Stóð varla í lappirnar og fattaði að þau gætu ekki staðið í þessu lengur Hagnaðist um 58 milljónir og greiddi 67 í arð „Lán á bara að vera lán“ Komin með ný nöfn Jóhanna, Egill og dr. Tingting til Reykjavík Geothermal Malbiksmeistari stýrir Malbikstöðinni Svara ekki spurningum um mögulegar uppsagnir hjá NetApp Sjá meira
Fjórar af hverjum fimm íbúðum seljast undir auglýstu verði: „Við höfum miklar áhyggjur“ Viðskipti innlent
Skipuleggur matseðil fjölskyldunnar á augabragði, passar upp á óþol og sparar í innkaupum Atvinnulíf
Fjórar af hverjum fimm íbúðum seljast undir auglýstu verði: „Við höfum miklar áhyggjur“ Viðskipti innlent
Skipuleggur matseðil fjölskyldunnar á augabragði, passar upp á óþol og sparar í innkaupum Atvinnulíf