Hagnaður N1 minnkaði um fimmtung á milli ára Kristinn Ingi Jónsson skrifar 24. ágúst 2017 06:00 Eggert Þór Kristófersson. forstjóri N1. vísir/valli
Hagnaður olíufélagsins N1 nam 831 milljón króna á fyrstu sex mánuðum ársins og dróst saman um 19,9 prósent á milli ára. Dróst EBITDA félagsins – rekstrarhagnaður fyrir afskriftir, skatta og fjármagnsliði – saman um 12,7 prósent og nam 1.478 milljónum króna. Segja stjórnendur félagsins samdráttinn skýrast af óhagstæðri þróun á heimsmarkaðsverði á olíu, en bensínverð lækkaði um 9,8 prósent á öðrum fjórðungi ársins, sem og hærri launakostnaði, en hann hækkaði um 11 prósent á tímabilinu. Engu að síður er afkomuspá félagsins óbreytt fyrir árið. Gera stjórnendur N1 ráð fyrir að EBITDA verði á bilinu 3.500 til 3.600 milljónir að undanskildum kostnaði við fyrirhuguð kaup félagsins á Festi. Framlegð N1 af vörusölu dróst saman um átta prósent á öðrum fjórðungi ársins og nam 2.796 milljónum króna á fjórðungnum. Er sérstaklega tekið fram í afkomutilkynningu að þróun á heimsmarkaðsverði á eldsneyti og gengisstyrking krónunnar hafi haft neikvæð áhrif á afkomu félagsins á öðrum fjórðungi ársins, en til samanburðar voru áhrif þessara þátta á afkomuna jákvæð á sama tímabili í fyrra. Rekstrartekjur félagsins námu alls 16.077 milljónum króna á fyrstu sex mánuðum ársins sem er 3,9 prósenta hækkun frá sama tímabili árið áður. Á móti var rekstrarkostnaður félagsins 4.013 milljónir króna og jókst um 4,8 prósent á milli ára. Arðsemi eigin fjár N1 var 10,8 prósent á fyrstu sex mánuðum ársins borið saman við 22,6 prósent á sama tíma í fyrra. Var eigið fé félagsins 12.471 milljón króna og eiginfjárhlutfallið 46,4 prósent í lok júnímánaðar.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Viðskipti innlent Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Viðskipti innlent Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Viðskipti innlent Bora eftir jarðhita á Tenerife Viðskipti erlent Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Viðskipti innlent ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Viðskipti erlent Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Viðskipti innlent „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Sjá meira