Fjaðrandi sæti í fyrsta sæti Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 14. mars 2017 10:15 Páll, Svavar og Birgir Fannar hressir með 1. verðlaunin.
Safe Seat, fjaðrandi bátasæti sem verndar hrygginn, var sú viðskiptahugmynd sem vann Gulleggið 2017 í frumkvöðlakeppni sem Icelandic Startups hefur staðið fyrir árlega um tíu ára skeið. „Milljónin kemur sér vel. Við erum að fara í þróunarfasa á bátasætinu sem við ætlum að framleiða, það er sérlega hugsað til að vernda hryggsúlu skipstjórnarmanna í vondu sjólagi,“ segir Svavar Konráðsson, einn þriggja félaga sem hlutu 1. verðlaun í frumkvöðlakeppninni Gullegginu á laugardaginn var. Félagar hans eru Birgir Fannar Birgisson og Páll Einarsson. Eliza Reid forsetafrú og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, afhentu verðlaunin. Þremenningarnir hafa stofnað hönnunarstofuna Driftwood sem hjálpar fyrirtækjum með vöruþróun, teikningar og að koma hlutum í framleiðslu. Svavar segir Birgi og Pál enn vera í hlutastarfi en kveðst sjálfur vera í sætisverkefninu í fullu starfi. „Sætið er okkar hugmynd og verður okkar vara og ég mun vinna útreikninga og verkfræðilega hönnun sem meistaraverkefni mitt í vélaverkfræði við HÍ. Við vorum allir að vinna hjá bátasmiðjunni Rafnari og þar urðum við varir við eftirspurnina. Planið er að framleiða prufuseríu í lítilli bátasmiðju í Noregi og fara svo í fjöldaframleiðslu sem fram færi í trefjaplastverksmiðju í Lettlandi.“ Frumkvöðlakeppnin Gulleggið er tíu ára í ár. Samtals komu 125 viðskiptahugmyndir inn í keppnina þetta árið sem stóð í tvo mánuði. Þátttakendur sóttu námskeið og fengu þjálfun í mótun hugmyndanna og leiðsögn í uppbyggingu nýrra fyrirtækja. Annað sætið hreppti S. Stefánsson & co. sem hanna hágæða útivistarfatnað einangraðan með íslenskum æðardún. Þriðja sætið hreppti Project Monsters sem er einstaklingsmiðaður námsleikur sem eykur færni og skilning og er ætlað að veita skólum forskot inn í framtíðina. BlissApp sigraði Val Fólksins á Nútímanum og Procura hlaut tíu klukkustunda endurgjaldslausa lögfræðiráðgjöf frá lögmannastofunni Advel.Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu 14. mars 2017.
Mest lesið Fær 9,5 fyrir IKEA og JYSK samsetningar Atvinnulíf Þegar svona sprengja springur vill allur vinnustaðurinn „fá allt á hreint“ Atvinnulíf Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Viðskipti innlent Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Viðskipti innlent Paramount og Warner Bros. heyra brátt sögunni til Viðskipti erlent Klíníkin sótti 300 milljónir króna Viðskipti innlent Fréttamaður missti af strætónum til baka Neytendur Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Viðskipti innlent 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Viðskipti innlent G7 setja hundrað milljón tunnur á markaðinn Viðskipti erlent Fleiri fréttir Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Verðbólga ekki meiri í tvö ár Högnuðust um milljarð Rúmlega tuttugu sagt upp hjá ÍAV Hannes Þór, Hannes Þór og Allan greiða sér 100 milljónir í arð Uppsagnir í Arion banka Sjá meira