Yfirmaður hjá Icelandair var í slagtogi með dæmdum sakamanni Kristinn Ingi Jónsson skrifar 21. júlí 2017 06:00 Maðurinn hefur verið sendur í leyfi frá störfum hjá Icelandair. vísir/pjetur
Yfirmaður hjá Icelandair, sem er grunaður um brot á lögum um verðbréfaviðskipti, var í slagtogi með að minnsta kosti þremur mönnum, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. Einn mannanna hlaut nýlega fangelsisdóm í Hæstarétti fyrir peningaþvætti, fíkniefnabrot og rekstur á spilavíti. Rannsókn beinist meðal annars að viðskiptum með hlutabréf í Icelandair Group sem gerð voru í nafni félags í hans eigu. Mennirnir hafa allir verið yfirheyrðir. Heimildir Fréttablaðsins herma að á meðal sönnunargagna séu tölvupóstar sem hinn grunaði yfirmaður sendi til meintra samverkamanna sinna. Rannsókn héraðssaksóknara beinist meðal annars að framvirkum samningi sem gerður var aðeins fáeinum dögum áður en Icelandair Group sendi frá sér tilkynningu til Kauphallarinnar 1. febrúar þar sem afkomuspá félagsins fyrir 2017 var lækkuð um liðlega þrjátíu prósent. Mun rannsóknin jafnframt ná til lengra tímabils en einungis aðdraganda þess að félagið sendi frá sér umrædda afkomuviðvörun. Er þá sérstaklega til skoðunar hvort samstarf mannanna eigi sér lengri sögu. Hinn grunaði yfirmaður átti í lok árs 2016 hlutabréf í Icelandair Group í eigin nafni að virði rúmlega níu milljónir á þáverandi gengi. Ólafur Þór Hauksson héraðssaksóknari segir rannsókn málsins vera vel á veg komna. Óvíst sé þó á þessari stundu hvenær henni ljúki. Að öðru leyti vill hann ekki tjá sig um málið. Þetta er í fyrsta sinn frá falli fjármálakerfisins sem héraðssaksóknari rannsakar mál er varðar meint brot í viðskiptum með bréf í skráðu félagi. Fréttablaðið greindi frá því í fyrradag að Icelandair hefði í lok maí fengið upplýsingar um að starfsmaður þess hefði stöðu grunaðs í rannsókn vegna meintra brota á lögum um verðbréfaviðskipti. Var hann í kjölfarið sendur í leyfi frá störfum. Fram kom í Fréttablaðinu í gær að eignir hefðu verið frystar vegna málsins en fjárhæðirnar sem um ræðir hlaupa á tugum milljóna króna.
Birtist í Fréttablaðinu Tengdar fréttir Eignir frystar vegna meintra brota yfirmanns Icelandair Héraðssaksóknari rannsakar nú meint brot yfirmanns hjá Icelandair. 19. júlí 2017 18:45 Yfirmaður hjá Icelandair sendur í leyfi vegna rannsóknar FME Yfirmaður hjá Icelandair grunaður um brot á lögum um verðbréfaviðskipti. Var sendur í leyfi frá störfum í lok maí. Rannsóknin beinist að viðskiptum með bréf í aðdraganda kolsvartrar afkomuviðvörunar sem félagið sendi frá sér 1. febrúar. 19. júlí 2017 06:00 Mest lesið Áhrifavaldur losar sig við steinefni Viðskipti innlent Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Neytendur Ímyndaðu þér ef yfirmaðurinn væri eins og Trump Atvinnulíf ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Viðskipti innlent „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Viðskipti innlent Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Viðskipti innlent Daníel Þór frá Kviku til Reita Viðskipti innlent Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Fleiri fréttir Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Höfðar til ábyrgðar olíufélaga og segir verðið nú þegar óeðlilegt Atvinnulausum verkamönnum fjölgar um fjörutíu prósent Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Rammagerðin leitar nauðasamninga Sjá meira
Eignir frystar vegna meintra brota yfirmanns Icelandair Héraðssaksóknari rannsakar nú meint brot yfirmanns hjá Icelandair. 19. júlí 2017 18:45
Yfirmaður hjá Icelandair sendur í leyfi vegna rannsóknar FME Yfirmaður hjá Icelandair grunaður um brot á lögum um verðbréfaviðskipti. Var sendur í leyfi frá störfum í lok maí. Rannsóknin beinist að viðskiptum með bréf í aðdraganda kolsvartrar afkomuviðvörunar sem félagið sendi frá sér 1. febrúar. 19. júlí 2017 06:00