Íslandsbanki hagnast um 3 milljarða Sæunn Gísladóttir skrifar 11. maí 2017 10:46 Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka. vísir/gva
Á fyrsta ársfjórðungi 2017 var hagnaður Íslandsbanka eftir skatta 3 milljarðar króna, samanborið við 3,5 milljarða. Króna á sama tímabili árið 2016. Hagnaður bankans af reglulegri starfsemi var 3,5 milljarðar króna, sem er sambærilegt við fyrsta fjórðung ársins 2016, segir í tilkynningu. Arðsemi eigin fjár af reglulegri starfsemi miðað við 15 prósent eiginfjárþátt 1 (CET1) var 10,6 prósent á fjórðungnum, samanborið við 9,4 prósent á sama tímabili í fyrra. Hagnaðurinn á fyrsta ársfjórðungi stafar einkum af sterkum grunntekjum. Arðsemi eigin fjár var 7 prósent, samanborið við 6,9 prósent á sama tímabili 2016. Hreinar vaxtatekjur voru 7,4 milljarðar króna sem samsvarar 2,0% lækkun. Vaxtamunur var 2,9 prósent, sama og árið áður. Hreinar þóknanatekjur voru 3,3 milljarðar króna á fjórðungnum, samanborið við 3,1 milljarða króna á sama tímabili í fyrra, sem er 4% hækkun milli ára. Kostnaðarhlutfall var 60,1 prósent, samanborið við 59 prósent árið áður. Bankaskattur og einskiptiskostnaður eru undanskilin við útreikning kostnaðarhlutfalls. Heildareignir voru 1.029 milljarðar króna, samanborið við 1.048 milljarðar króna í árslok 2016. Útlán til viðskiptavina og lausafjársafn voru samtals 96 prósent af efnahagsreikningnum. „Grunnrekstur bankans er áfram stöðugur, en vaxta- og þóknanatekjur standa að baki um 97 prósent af tekjum bankans. Arðsemi eigin fjár af reglulegum rekstri var 10,6 prósent, samanborið við 9,4 prósent á sama tímabili í fyrra. Samþykkt var á aðalfundi bankans í mars að greiða út 10 milljarða króna af hagnaði ársins 2016 í arð til hluthafa. Lausa- og eiginfjárhlutföll eru áfram sterk og vogunarhlutfall var áfram hóflegt eða 15.5 prósent,” segir Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka. „Afnám fjármagnshafta sem tilkynnt var um í mars var stórt skref fyrir íslenskt efnahagslíf. Lánshæfismatseinkunnir ríkissjóðs Íslands hækkuðu í kjölfarið og eins lánshæfismatseinkunnir Íslandsbanka sem standa nú í BBB frá bæði Standard & Poor's og Fitch Ratings.”
Mest lesið Hætt sem framkvæmdastjóri Klíníkurinnar Viðskipti innlent Óskar úr fjarskiptum í fiskinn Viðskipti innlent Sögulegur hagnaður á samrunatímum Viðskipti innlent Slugsagjöldin „neyðarúrræði“ og „ekki til að græða“ Neytendur Óskar eftir starfslokum Viðskipti innlent Stækka hótelveldið á Suðurlandi Viðskipti innlent Grunur um listeríu í vinsælum ostum Neytendur Lægri tollar á samkeppnisríkin veiki stöðuna svo um munar Viðskipti innlent Íslensku KFC-feðgarnir í Danmörku gjaldþrota Viðskipti erlent Almannatenglar stofna fjölmiðil Viðskipti innlent Fleiri fréttir Sögulegur hagnaður á samrunatímum Óskar úr fjarskiptum í fiskinn Hætt sem framkvæmdastjóri Klíníkurinnar Lægri tollar á samkeppnisríkin veiki stöðuna svo um munar Atvinnuleysi eykst hægt með lækkandi sól Almannatenglar stofna fjölmiðil Lánshæfið hækkar úr stöðugu í jákvætt Fleiri ferðamenn og fleiri utanlandsferðir Skilur ekkert í stjórnvöldum að hafa ekki stöðvað „græðgisvæðingu“ í bílastæðamálum Stækka hótelveldið á Suðurlandi Óskar eftir starfslokum „Ekkert Viking eða Gull“ á nýjum stað í B5 Segir ofboðslegan undirliggjandi þrýsting á fasteignamarkaði Reikna með að skila hagnaði á næsta ári Frá Gamma til Arctica og nú Seðlabankans Atvinnuleysi 2,8 prósent í júní Trump-tollarnir hafa tekið gildi Ísland klemmist á milli í alþjóðlegu tollastríði Vonbrigði með makrílinn en síldin og loðnan veki von Ráðin framkvæmdastjóri Magio – viðburðasmiðju Trúa varla að tollahækkanirnar séu að skella á Alaska Airlines hefur daglegt flug til Keflavíkur næsta sumar Vefur og app Íslandsbanka lágu niðri Tímabundin dreifing á sjónvarpsefni Sýnar hjá Símanum Hækkun tolla eins og þruma úr heiðskíru lofti Forstjóraskipti hjá Ice-Group Kísiltollar gætu vel endað fyrir gerðardómi Hvalur hf. stefnir íslenska ríkinu Arion hagnaðist um tíu milljarða á öðrum fjórðungi Ferðum Play til London, Parísar og Berlínar „sjálfhætt“ Sjá meira