Hafnar ásökunum Haga um þrýsting Kristinn Ingi Jónsson skrifar 11. ágúst 2017 06:00 Hagar saka Fríhöfnina um brot á samkeppnislögum vísir/andri marinó
Fríhöfnin vísar á bug ásökunum stjórnenda Haga um að hafa beitt erlendan birgi þrýstingi til þess að hafa áhrif á verðlagningu á snyrtivörum í Hagkaup. Hagar kvörtuðu til Samkeppniseftirlitsins sem ákvað að taka málið ekki til rannsóknar. Hins vegar beindi eftirlitið tilmælum til Fríhafnarinnar til að draga úr hættu á því að starfsemin færi gegn samkeppnislögum.Finnur Árnason, forstjóri HagaSamkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins sendi Fríhöfnin bréf til erlends birgis árið 2013 þar sem kvartað var yfir tilboðsverði á snyrtivörum í verslunum Hagkaups. Stjórnendur Haga telja að Fríhöfnin hafi þannig reynt að koma í veg fyrir að viðskiptavinir Hagkaups nytu lágs verðs á slíkum vörum. Um leið hafi Fríhöfnin brotið gegn samkeppnislögum. Kvartað var til Samkeppniseftirlitsins. Páll Gunnar Pálsson, forstjóri eftirlitsins, segir gagna hafa verið aflað til þess að meta hvort tilefni væri til rannsóknar en að ekki væri talin ástæða til að hefja ítarlega rannsókn á því hvort brot hefðu átt sér stað. Þorgerður Þráinsdóttir, framkvæmdastjóri FríhafnarinnarÞorgerður Þráinsdóttir, framkvæmdastjóri Fríhafnarinnar, segir verslunina vísa ásökunum Haga á bug. „Samkeppniseftirlitið fékk málið á sitt borð á sínum tíma og ákvað að aðhafast ekkert í því.“ Umrætt mál var rifjað upp í aðdraganda ákvörðunar Samkeppniseftirlitsins um að ógilda samruna Haga og Lyfju. Stjórnendur Haga tóku fram í tilkynningu í gær að sterk staða sameinaðs félags á snyrtivörumarkaði hefði verið meginástæða þess að eftirlitið hafnaði kaupunum. Þar vægi þungt að eftirlitið telur Fríhöfnina ekki hluta af íslenskum snyrtivörumarkaði. Hagar telja hins vegar að Fríhöfnin líti á sig og aðra innlenda snyrtivörusala sem keppinauta. Páll Gunnar tekur fram að samruninn hefði talist skaðlegur þótt Fríhöfnin hefði verið talinn hluti af markaði málsins.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Komst ekki á toppinn og bótakröfunni hafnað Neytendur Ný tækni, ný kynslóð, ný viðhorf: Yngsti sölumaðurinn eins árs Atvinnulíf Fær íshellaferð ekki endurgreidda Neytendur Gert að afhenda búslóðina eftir að hafa haldið henni í gíslingu Neytendur „Ásta mín, ef þú segir nei við þessu tilboði þá rek ég þig“ Atvinnulíf Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Viðskipti innlent Húðflúrari fór frá hálfkláruðum fugli á hálsi Neytendur Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Viðskipti innlent Kvartanir berast í hverri viku vegna gjafabréfa Neytendur Fleiri fréttir Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Flogin frá Icelandair til Nova Virðist ekki vera hægt á Íslandi Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sjá meira