Erlendu ráðgjafarnir fengu mun hærri laun Kristinn Ingi Jónsson skrifar 8. júní 2017 07:00 Sigurður Hannesson og Benedikt Gíslason, fyrrverandi varaformenn framkvæmdahóps stjórnvalda um afnám hafta, kynntu aðgerðir stjórnvalda í Hörpu þann 8. júní árið 2015, fyrir réttum tveimur árum. Vísir/GVA
Stjórnvöld greiddu erlendum ráðgjöfum hátt í 380 milljónir króna á árunum 2013 til 2015 fyrir vinnu við afnám gjaldeyrishafta. Innlendir ráðgjafar stjórnvalda fengu margfalt minna, eða um 73 milljónir króna, í sinn hlut. Þetta er á meðal þess sem fram kemur í skýrslu Ríkisendurskoðunar um kaup ráðuneyta á sérfræðiþjónustu sem birt var í síðustu viku. Lögmannsstofan Cleary Gottlieb Steen & Hamilton LLP fékk, af öllum ráðgjöfum stjórnvalda, langmest í sinn hlut, um 239 milljónir króna, en Lee C. Buchheit, einn eigandi stofunnar, stýrði vinnu stofunnar í verkefninu. Þá greiddu stjórnvöld Glenn Victor Kim, fjármálaráðgjafa hjá LC Capital, sem veitti framkvæmdahópi stjórnvalda um afnám hafta forystu, 95,1 milljón króna á árunum 2014 og 2015. Ríkisendurskoðun vekur athygli á því í skýrslunni að kostnaður vegna vinnu Kims og lögmannsstofu Buchheits hafi verið langt umfram það sem kveðið var á um í samningum stjórnvalda við ráðgjafana tvo.Ríkisendurskoðun fjallar um ráðgjafarkostnað vegna vinnu við afnám hafta í skýrslunni, en stofnunin kannaði með hvaða hætti stjórnvöld stóðu að kaupum á þjónustu nokkurra sérfræðinga vegna vinnunnar. Ekki er um tæmandi yfirlit að ræða. Í skýrslunni kemur fram að stjórnvöld greiddu Benedikt Gíslasyni, sem var ráðgjafi fjármálaráðherra í haftamálum og sat auk þess í framkvæmdahópi stjórnvalda, 14,8 milljónir króna árið 2014 og 11,1 milljón árið 2015. Þá fékk Seapool ehf. í eigu Sigurðar Hannessonar, sem sat auk þess í framkvæmdahópnum, 10,8 milljónir króna greiddar árið 2015. Hélst kostnaðurinn innan áætlunar, að sögn Ríkisendurskoðunar. Meltún ehf., sem er í eigu Eiríks S. Svavarssonar hæstaréttarlögmanns, veitti stjórnvöldum ráðgjöf vegna haftamála á árunum 2013 til 2015 og fékk tæpar þrjátíu milljónir króna greiddar fyrir. Eiríkur sat um tíma í umræddum framkvæmdahópi og veitti einnig ráðherranefnd um efnahagsmál ráðgjöf. Anne Krueger, prófessor í hagfræði við John Hopkins-háskólann, veitti stjórnvöldum enn fremur ráðgjöf á árunum 2014 og 2015 og fékk fyrir það samtals 15,7 milljónir. Stjórnvöld greiddu auk þess ráðgjafarfyrirtækinu White Oak Advisory LLP 23,2 milljónir króna fyrir vinnu sína árin 2014 og 2015. Þórir Óskarsson, sviðsstjóri stjórnsýslusviðs Ríkisendurskoðunar, segir að samkvæmt upplýsingum frá stjórnvöldum hafi vinnan við afnám hafta lotið að grundvallarhagsmunum ríkisins. Slíkir samningar falli ekki undir lög um opinber innkaup. Ríkisendurskoðun hafi því ekki séð ástæðu til að gera athugasemdir við að samið var við ráðgjafa án útboðs eða verðkannana. Eins sýni Ríkisendurskoðun því skilning að kostnaður vegna þessara verkefna hafi í sumum tilfellum verið umfram það sem kveðið var á um í samningum. Oft hafi verið erfiðleikum bundið að sjá fyrirfram með nákvæmum hætti hver ráðgjafarkostnaðurinn yrði. Eftir sem áður sé ávallt brýnt að ráðuneyti geri raunhæfa og vandaða samninga, nýti undanþáguheimildir einungis þegar brýna nauðsyn ber til og haldi eins og kostur er í heiðri leiðbeiningar um opinber innkaup. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, fyrrverandi forsætisráðherra, segir muninn á launagreiðslunum til erlendu ráðgjafanna annars vegar og þeirra innlendu hins vegar ótrúlega mikinn, en „því miður hættir mörgum til að hafa meiri efasemdir um landa sína en útlendinga og það veldur meiri tortryggni þegar Íslendingar fá meira greitt en útlendingar. Auk þess litu Sigurður og Íslendingarnir að mínu mati fyrst og fremst á þetta verkefni sem þjónustu við lýðveldið og samfélagið sem þeir ólust upp í fremur en vel launaða vinnu. Það er hins vegar ekkert launungarmál að verðmæti vinnu þeirra nemur stjarnfræðilegum upphæðum,“ segir Sigmundur Davíð.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Landsbankinn hækkar líka vexti Viðskipti innlent JYSK opnar nýtt og glæsilegt vöruhús í Mosfellsbæ Samstarf Jón Þór fer til Samherja Viðskipti innlent Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Viðskipti innlent „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Viðskipti innlent Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst Viðskipti innlent „Þegar þú verður betri manneskja nærðu lengra“ Samstarf Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Viðskipti innlent Geti munað allt að tvö þúsund krónum á matarkörfunni eftir verslunum Neytendur Síminn orðinn Ásar hf Viðskipti innlent Fleiri fréttir Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Síminn orðinn Ásar hf Icelandair kaupir helming í dreggjum Play á 83 milljónir Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Ekkert nýtt að frétta af boðuðum kaupum Telur ESB-viðræður engu breyta um verðbólgu og stýrivexti Minni íbúafjölgun minnkar þörfina á nýjum íbúðum Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu „Það eru engin fórnarlömb hér“ Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Hækka stýrivexti Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Árni skattakóngur annað árið í röð Sigurður Arnar nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Bryndís Ósk nýr framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda María Klara til Athygli Guðmundur Fertram í nýtt hlutverk hjá Coloplast Sjá meira