Virðing kaupir allt hlutafé ALDA sjóða Hörður Ægisson skrifar 8. júní 2017 18:37 Hannes Frímann Hrólfsson er forstjóri Virðingar en eftir kaupin á hlutafé ALDA sjóða verður samstæða félagsins með um 140 milljarða eignir í stýringu.
Verðbréfafyrirtækið Virðing hefur fest kaup á öllu hlutafé ALDA sjóða hf. og munu hluthafar ALDA, sem eru stjórnendur félagsins, koma inn í hluthafahóp Virðingar, að því er fram kemur í tilkynningu frá Virðingu. Heildareignir í stýringu hjá samstæðu Virðingar eftir kaupin að ganga í gegn verða um 140 milljarðar króna. Kaupin eru meðal annars gerð með fyrirvara um samþykki hluthafafunda félaganna og eftirlitsstofnana. ALDA sjóðir verður áfram rekið sem sjálfstætt rekstrarfélag í fullri eigu Virðingar. Heildareignir ALDA í stýringu námu 36 milljörðum um síðustu áramót og hjá félaginu starfa fimm starfsmenn. Í tilkynningunni er haft eftir Hannesi Frímanni Hrólfssyni, forstjóra Virðingar: „Kaup Virðingar á ALDA sjóðum hf. er liður í að styrkja félagið enn frekar á sviði eignastýringar en hjá ALDA sjóðum hf. starfar eitt reynslumesta eignastýringateymi landsins. Árangur ALDA sjóða hf. hefur verið góður og vöxtur þess mikill á síðustu árum. Kaupin eru liður í metnaðarfullum markmiðum okkar í að verða leiðandi aðili á sviði eignastýringar á Íslandi.” Þá segir Þórarinn Sveinsson, forstjóri ALDA og stærsti hluthafi félagsins, að við þessi viðskipti verði til eitt öflugasta eignastýringarfyrirtæki landsins sem mun skila sér í aukinni þjónustu við viðskiptavini beggja fyrirtækja. „ALDA mun starfa áfram í sama nafni sem dótturfélag Virðingar og áhersla áfram lögð á vönduð og fagleg vinnubrögð."
Mest lesið Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Viðskipti innlent Stjórnendur þurfa líka stuðning og FOBO á vinnustöðum eykst Atvinnulíf Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Viðskipti innlent Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Viðskipti innlent Samherji selur Margréti til Færeyja Viðskipti innlent Spá óbreyttum vöxtum Viðskipti innlent Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Viðskipti innlent Olíuflæðið nálgast fyrra horf en verð lækkar ekki Viðskipti erlent Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Viðskipti innlent Högnuðust um milljarð Viðskipti innlent Fleiri fréttir Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Verðbólga ekki meiri í tvö ár Högnuðust um milljarð Rúmlega tuttugu sagt upp hjá ÍAV Hannes Þór, Hannes Þór og Allan greiða sér 100 milljónir í arð Uppsagnir í Arion banka Loka Krambúðinni á Húsavík Atvinnulausum Íslendingum fjölgaði um 700 á einu ári Verulegur samdráttur hjá Isavia 50skills tryggir 729 milljónir í fjármögnun Mikill munur á afkomu almannatengla Vill að ríkissáttasemjari fái auknar valdheimildir í kjaradeilu Selja fyrir 400 milljónir í Síldarvinnslunni Setja upp fjörutíu smáhýsi í Þjórsárdal Sextán starfsmönnum sagt upp á Siglufirði Vilja að 23 lóðir verði seldar undan Vatnsendaerfingja Launahækkanir gætu orðið upptaktur að harðri lendingu Tíu milljarðarnir sem ráðherra segir hafa farið til bílaleiga Sonja ráðin viðskiptastjóri hjá OK Sjá meira