Bein útsending: Seðlabankinn rökstyður óbreytta stýrivexti Stefán Ó. Jónsson skrifar 8. febrúar 2017 09:48 Arnór Sighvatsson aðstoðarseðlabankastjóri og Már Guðmundsson seðlabankastjóri.
Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands tilkynnti í morgun að hún hefði ákveðið að halda vöxtum bankans óbreyttum. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því áfram 5 prósent. Peningastefnunefnd Seðlabankans mun skýra rök fyrir ákvörðuninni á fréttamannafundi sem hefst klukkan 10. Hægt verður að fylgjast með fundinum í beinni útsendingu hér að neðan.Sjá einnig: Seðlabankinn heldur stýrivöxtum óbreyttumRökstuðningur bankans fyrir óbreyttum stýrivöxtum er eftirfarandi: „Áætlað er að hagvöxtur hafi verið 6% í fyrra. Það er heilli prósentu meiri vöxtur en spáð var í nóvemberhefti Peningamála, sem skýrist einkum af meiri fjárfestingu atvinnuveganna og þjónustuútflutningi á fyrstu níu mánuðum ársins. Spáð er að hagvöxtur verði áfram ör, 5⅓% í ár og á bilinu 2½-3% á næstu tveimur árum. Störfum fjölgar hratt, atvinnuleysi er komið niður fyrir 3% og atvinnuþátttaka orðin meiri en hún var mest á þenslutímanum fyrir fjármálakreppuna. Þrátt fyrir að innflutningur erlends vinnuafls vegi á móti fer spenna í þjóðarbúinu vaxandi og verður meiri en áður var áætlað. Verðbólguhorfurnar hafa batnað lítillega frá nóvemberspánni þrátt fyrir meiri spennu í þjóðarbúskapnum. Þær byggjast þó á þeirri forsendu að kjarasamningar á vinnumarkaði losni ekki á næstunni. Um það ríkir hins vegar töluverð óvissa. Á móti innlendum verðbólguþrýstingi vegur lítil alþjóðleg verðbólga, hækkun gengis krónunnar á spátímanum og aðhaldssöm peningastefna. Peningastefnan hefur skapað verðbólguvæntingum kjölfestu, haldið aftur af útlánavexti og stuðlað að meiri sparnaði en ella. Gengi krónunnar hefur lækkað frá síðasta fundi nefndarinnar eftir hraða hækkun á seinni hluta síðasta árs. Skammtímasveiflur það sem af er ári hafa einnig verið nokkru meiri en síðustu tvö ár. Stefnt er að því að skammtímasveiflur verði minni á næstunni í samræmi við það markmið að draga úr sveiflum í gengi krónunnar. Viðskipti bankans á gjaldeyrismarkaði munu einnig markast af því að ekki er þörf fyrir frekari stækkun gjaldeyrisforða og að hætta á tímabundnu ofrisi krónunnar í aðdraganda losunar fjármagnshafta hefur minnkað eftir að stór skref voru stigin nýlega. Ör vöxtur efnahagsumsvifa og skýr merki um vaxandi spennu í þjóðarbúskapnum kalla á peningalegt aðhald svo að tryggja megi verðstöðugleika til meðallangs tíma. Traustari kjölfesta verðbólguvæntinga við verðbólgumarkmiðið og hækkun gengis krónunnar hafa hins vegar gert peningastefnunefnd mögulegt að ná lögboðnu markmiði um verðstöðugleika við lægra vaxtastig en ella. Kröftugur vöxtur eftirspurnar og órói á vinnumarkaði kalla á varkárni við ákvörðun vaxta. Aðhaldsstig peningastefnunnar á komandi misserum mun ráðast af framvindu efnahagsmála og annarri hagstjórn,“ segir í yfirlýsingu frá Seðlabankanum.
Tengdar fréttir Seðlabankinn heldur stýrivöxtum óbreyttum Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því áfram 5%. 8. febrúar 2017 08:48 Mest lesið Afbókaði dýra ferð þremur dögum fyrir brottför og fær endurgreitt Neytendur „Eitt sinn var ég ekki svo lánsöm að tilheyra stóru vinkonusamfélagi“ Atvinnulíf Loka verslun Útilífs í Smáralind Viðskipti innlent Bætir við sig nýjum áfangastað á Ítalíu Viðskipti innlent Meðalsölutími fasteigna hundrað dagar Viðskipti innlent Spyr hvort tilefni sé til ánægju með sölu á Íslandsbanka Viðskipti innlent Nálgast samkomulag um TikTok Viðskipti erlent Búinn að fá sig fullsaddan af þjónustunni hjá Wolt Neytendur Systurfélag ÞG verktaka kaupir Arnarland Viðskipti innlent Framkvæmdastjórar kveðja og sviðum stokkað upp Viðskipti innlent Fleiri fréttir Birgir til Banana Spyr hvort tilefni sé til ánægju með sölu á Íslandsbanka Bætir við sig nýjum áfangastað á Ítalíu Loka verslun Útilífs í Smáralind Meðalsölutími fasteigna hundrað dagar Systurfélag ÞG verktaka kaupir Arnarland Play sé ekki að fara á hausinn Fór yfir breytingarnar sem verði ekki allar þægilegar fyrir starfsfólk Framkvæmdastjórar kveðja og sviðum stokkað upp Sammála um aukna verðbólgu í september Tekur við stöðu framkvæmdastjóra LÍS Kristín nýr framkvæmdastjóri Eflu Taka tvær Airbus-þotur til á leigu Stefán stefnir á opnun fyrir jól: „Þetta verður bullandi stemning“ Vilja selja Landsbankann Lísbet nýr lögfræðingur Viðskiptaráðs Ráðin forstöðumaður Trygginga hjá Landsbankanum Samdráttur hafinn í byggingariðnaði sem skapi efnahagslegan vítahring Yrði fljótt kvíðinn með aleiguna í Bitcoin Kormákur og Skjöldur yfirgefa Leifsstöð Egill Örn inn fyrir Stefán hjá Solid Clouds Nýtti glugga þegar hann opnaðist og þurfti ekki að kaupa fyrirtækið til baka Breytingar á tollskrá megi ekki grafa undan íslenskri framleiðslu Matvöruverslanir kattslakar en lyfjarisi fylgist grannt með Stofnar einkahlutafélagið Uppselt ehf. Lítið fékkst upp í háar kröfur í bú Blackbox Bein útsending: Borgar sig að vanmeta menntun? Breytir tollflokkun pitsaosts eftir allt saman Ueno snýr aftur og Haraldur framkvæmdastjóri „Hvert á ég að ráðstafa séreigninni?“ Sjá meira
Seðlabankinn heldur stýrivöxtum óbreyttum Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því áfram 5%. 8. febrúar 2017 08:48