Einkaneysla ekki mælst meiri síðan 2007 Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 9. mars 2017 10:41 Kringlan. Vísir/Vilhelm
Landsframleiðsla jókst að raungildi um 7,2 prósent á árinu 2016 og er nú 10 prósent meiri en hún var árið 2008. Einkaneysla jókst um 6,9 prósent, samneysla um 1,5 prósent og fjárfesting jókst um 22,7 prósent. Árlegur vöxtur einkaneyslu hefur ekki mælst meiri frá árinu 2005 en að árinu 2007 undanskildu hefur einkaneysla ekki mælst meiri að raungildi hér á landi að því er kemur fram á vef Hagstofu Íslands.Útflutningur jókst um 11,1 prósent á sama tíma og innflutningur jókst um 14,7 prósent og dró utanríkisverslun úr hagvexti þrátt fyrir 158,8 milljarða króna afgang af vöru- og þjónustuviðskiptum á liðnu ári. Útflutningur þjónustu nam 26,8 prósent af landsframleiðslu á árinu 2016 og er þetta í fyrsta skipti frá því að gerð þjóðhagsreikninga hófst árið 1945 sem tekjur af útfluttri þjónustu mælast hærri en af vöruútflutningi. Fjárfesting jókst um 22,7 prósent á síðasta ári en árlegur vöxtur fjárfestingar hefur ekki mælst meiri síðan árið 2006. Umtalsverð aukning var í fjárfestingu atvinnuveganna, eða 24,7 prósent og sömuleiðis í íbúðafjárfestingu, eða 33,7 prósent. Á sama tímabili jókst fjárfesting hins opinbera um 2,5 prósent. Sem hlutfall af landsframleiðslu var samneysla 23,1 prósent á liðnu ári sem er heldur lægra en undanfarin ár. Á árabilinu 2010-2015 var hlutfallið 24,3 prósent að meðaltali en frá árinu 1996 hefur hlutfall samneyslu af landsframleiðslu verið 23,3 prósent að meðaltali.
Mest lesið Fær 9,5 fyrir IKEA og JYSK samsetningar Atvinnulíf Þegar svona sprengja springur vill allur vinnustaðurinn „fá allt á hreint“ Atvinnulíf Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Viðskipti innlent Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Viðskipti innlent Paramount og Warner Bros. heyra brátt sögunni til Viðskipti erlent Klíníkin sótti 300 milljónir króna Viðskipti innlent Fréttamaður missti af strætónum til baka Neytendur Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Viðskipti innlent 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Viðskipti innlent G7 setja hundrað milljón tunnur á markaðinn Viðskipti erlent Fleiri fréttir Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Verðbólga ekki meiri í tvö ár Högnuðust um milljarð Rúmlega tuttugu sagt upp hjá ÍAV Hannes Þór, Hannes Þór og Allan greiða sér 100 milljónir í arð Uppsagnir í Arion banka Sjá meira