Helgi Magnússon í hóp stærstu hluthafa Nýherja Hörður Ægisson skrifar 15. febrúar 2017 08:00 Helgi Magnússon hóf að kaupa bréf í Nýherja í byrjun þessa árs.
Helgi Magnússon, fjárfestir og fyrrverandi formaður Samtaka iðnaðarins og Lífeyrissjóðs verslunarmanna, er kominn í hóp stærstu hluthafa Nýherja með 1,3 prósenta hlut. Félagið Varðberg ehf., sem er að fullu í eigu Helga, átti þannig rúmlega 6 milljónir hluta í Nýherja í lok síðustu viku sem gerir það að 13. stærsta hluthafa upplýsingatæknifyrirtækisins. Miðað við gengi bréfa við lokun markaða í gær er hlutur Helga í Nýherja metinn á um 170 milljónir króna. Helgi hóf að kaupa bréf í Nýherja í upphafi þessa árs en hlutabréfaverð félagsins hefur hækkað um liðlega 40 prósent frá áramótum. Nýherji birti ársuppgjör sitt í lok síðasta mánaðar þar sem meðal annars kom fram að tekjur samstæðunnar hefðu aukist um 11 prósent á milli ára og EBITDA-hagnaður um sjö prósent. Í afkomutilkynningu félagsins var haft eftir Finni Oddssyni, forstjóra Nýherja, að nýliðið rekstrarár hefði verið „með þeim betri í sögu félagsins“. Hlutabréfaverð Nýherja hefur hækkað um 20 prósent síðan félagið birti ársuppgjör sitt fyrir um tveimur vikum. Helgi er stjórnarmaður og hluthafi í Marel og N1. Félagið Hofgarðar ehf., sem er að fullu í eigu Helgu, á þannig 2,24 prósenta hlut í N1 og þá fer Eignarhaldsfélag Hörpu, sem er í meirihlutaeigu Helga, með tæplega 0,4 prósenta hlut í Marel. Markaðsvirði þessara hluta er samanlagt um 1.650 milljónir. Eignarhaldsfélag Hörpu minnkaði hlut sinn í Marel fyrr í vikunni þegar félagið seldi eina milljón hluta á genginu 309. Hagnaður þriggja félaga Helga – Hofgarða, Varðbergs og Eignarhaldsfélags Hörpu – nam 838 milljónum eftir skatta á árinu 2015. Fyrir utan hlutafjáreign í skráðum félögum á markaði er Helgi jafnframt á meðal stærstu hluthafa í Bláa lóninu með rúmlega 5 prósenta hlut.Fréttin birtist fyrst í Markaðnum fylgiriti Fréttablaðsins um viðskipti og efnahagsmál.
Mest lesið Apple aftur verðmætasta fyrirtæki heims Viðskipti erlent Birtu tíu tillögur að nýjum seðlum Viðskipti erlent Steingrímur kaupir fyrir 51 milljón króna í Heimum Viðskipti innlent „Það er allt of ódýrt að fara út að borða á Íslandi“ Viðskipti innlent Olíuverð fellur í kjölfar sprengjuhlés Viðskipti erlent Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Neytendur ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Viðskipti innlent Ímyndaðu þér ef yfirmaðurinn væri eins og Trump Atvinnulíf „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Steingrímur kaupir fyrir 51 milljón króna í Heimum „Það er allt of ódýrt að fara út að borða á Íslandi“ Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Sjá meira