Lúxuskerran Ford Edge Vignale frumsýnd Finnur Thorlacius skrifar 9. nóvember 2017 12:15 Ford Edge Vignale.
Brimborg frumsýnir Ford Edge Vignale á laugardaginn, 11. nóvember, milli kl. 12 og 16 í sýningarsal Ford að Bíldshöfða 6. Boðið verður uppá dýrindis kaffi frá Kaffitár og bollakökur frá Mosfellsbakarí. Vignale er ný lúxusútfærsla af hinum vinsæla Ford Edge jeppa, hlaðinn lúxusbúnaði. Glæsilegt handverk, einstakt val á efnum og hljóðlátt farþegarými tekur á móti þér í nýjum Ford Edge Vignale. Komdu og prófaðu Edge Vignale og þú sannfærist!Sérstök útgáfa af Ford EdgeFord Edge Vignale býður uppá akstursupplifun sem er engri lík. Bíllinn er stútfullur af notendavænni tækni og innra rýmið umvefur þig lúxus. Edge Vignale sér um þetta fyrir þig, þú nýtur ferðarinnar. Háþróuð fjöðrun, sem eykur nákvæmni bílsins í akstri, kraftmikil 210 hestafla dísilvél og Ford PowerShift gírskiptingin sameinast með lágri eldsneytiseyðslu án þess þó að það komi niður á akstursánægju.Sérlega vel búinnStaðalbúnaður hans er ríkulegur en hann býr yfir Vignale útlistkitti, 20" Vignale álfelgum, stillanlegum LED aðalljósum, baksýnisspeglum með dimmingu, LED þokuljósum, Vignale lúxus leðuráklæði, leðurklæddu mælaborði, leðurklædd hurðarspjöld, framsæti með minni, Sony hljómtækjum, Vignale snertiskjá, Vignale innilýsingu, álútliti á langbogum, upphitanlegri framrúðu (þarft ekki að skafa), upphitanlegu stýri, hálfsjálfvirkri bílastæðaaðstoð og myndavél að framan og aftan með tvískiptum skjá í mælaborði og íslensku leiðsögukerfi. Öryggisbúnaðurinn er einnig mjög mikill og má þar nefna umferðaskiltalesara, veglínuskynjara, árekstrarvörn, veltivörn, upphitanleg framrúða með sólarvörn og regnskynjara, 7 öryggispúðar og þar á meðal fyrir hné ökumanns og svo mætti lengi telja.Reynsluakstur í boðiVið hvetjum áhugasama til að koma og prófa nýjan Ford Edge Vignale laugardaginn 11. nóvember milli kl. 12 og 16. Innréttingin er ekki af lakari gerðinni.
Mest lesið Húðlæknir bregst við brúnkutískunni Innlent Þremur skemmtisöðum lokað í sameiginlegum aðgerðum Innlent Eldhaf gaus upp í vélarrúmi og skipið rak í þrjá tíma Innlent Sæbrautargátan leyst: Það er 58, ekki 60 - en samt ekki alveg Innlent Tveir látnir eftir að bíl var ekið í hlið húss Erlent Felldi loks tár þegar andlát eiginmannsins var rætt Innlent Friður í augsýn að uppfylltum skilyrðum Erlent „Þú getur ekkert forðað þér, það verður bara að takast á við þetta“ Innlent Staðfesta synjun SÍ: „Þetta er ekki bara fyrir Jón Atla“ Innlent Hlaðvarparar hrósa sigri: „Logi er greinilega nettur gæi“ Innlent