Sameigendur á Landslögum gættu andstæðra hagsmuna Kristinn Ingi Jónsson skrifar 7. júní 2017 07:00 Málið snerist um fasteignamat Hörpu. vísir/eyþór
Sameigendur á lögmannsstofunni Landslögum gættu andstæðra hagsmuna í Hæstaréttarmáli um fasteignamat Hörpu í febrúar í fyrra. Stjórn Lögmannafélags Íslands lagði málið fyrir úrskurðarnefnd lögmanna sem komst nýverið að þeirri niðurstöðu að ekki hefði verið brotið gegn lögum eða siðareglum lögmanna.Jóhannes Karl Sveinsson hæstaréttarlögmaðurvísir/anton brinkMálið á upphaf að rekja til þess að hæstaréttarlögmaðurinn Jóhannes Karl Sveinsson tók að sér að reka mál fyrir Hörpu í Hæstarétti, en í málinu krafðist Harpa þess að úrskurður yfirfasteignamatsnefndar um opinbert fasteignamat Hörpu yrði ógiltur. Til varnar voru Þjóðskrá Íslands og Reykjavíkurborg, en verjandi borgarinnar var Vilhjálmur H. Vilhjálmsson, sameigandi Jóhannesar á Landslögum. Lex lögmannsstofa rak málið fyrir Hörpu í héraði, þar sem félagið tapaði, en þegar rúm vika var eftir af gagnaöflunarfresti Hæstaréttar sagði lögmaðurinn á Lex sig frá málinu og Jóhannes tók við því að beiðni forstjóra Hörpu. Svo fór að Harpa vann málið í Hæstarétti. Í kjölfarið krafðist stjórn Lögmannafélags Íslands að úrskurðarnefndin legði mat á hvort Jóhannes hefði brotið gegn 11. gr. siðareglna lögmanna. Samkvæmt henni skal lögmaður varast að taka að sér nýjan skjólstæðing ef hagsmunir hans fá ekki samrýmst hagsmunum skjólstæðings lögmanns á sömu stofu. Úrskurðarnefndin benti á að fyrir lægi að deilendur málsins, Harpa og Reykjavíkurborg, hefðu verið fyllilega upplýstir um að lögmenn á sömu lögmannsstofu gættu hagsmuna hvors þeirra fyrir sig. Þeir hefðu ekki lagst gegn tilhöguninni. Virðist ekkert fram komið um að með nokkrum hætti hafi verið brotið gegn hagsmunum kæranda, stjórnar Lögmannafélagsins, eða lögmanna yfirleitt með að Jóhannes tæki að sér málið. Jóhannes segir í samtali við blaðið að hann sé sammála túlkun nefndarinnar. Hann hefði ekki tekið málið að sér nema af því að allir hlutaðeigandi samþykktu það sérstaklega og Harpa var í þröngri stöðu.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Löggan bankaði upp á á skírdag Neytendur „Flestir sem eru á þessum lista eru dánir“ Neytendur Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Viðskipti innlent Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Atvinnulíf Mælir með eistnesku poppi til að vekja börnin almennilega Atvinnulíf Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Viðskipti innlent Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Ný þjálfun í golfi: „Ég vildi að sjálfsögðu ná meiri árangri“ Atvinnulíf Einföld hugmynd sem er nú orðin grunnstoð í rekstri þúsunda fyrirtækja Samstarf Traustur samstarfsaðili í byggingariðnaði Samstarf Fleiri fréttir Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Sjá meira