Ógildir samruna Tempru og Plastgerðar Suðurnesja Atli Ísleifsson skrifar 7. júní 2017 09:50 Páll Gunnar Pálsson er forstjóri Samkeppniseftirlitsins. Vísir/anton
Samkeppniseftirlitið ógilti dag samruna sem áformaður var með kaupum Tempru ehf. á öllu hlutafé í Plastgerð Suðurnesja ehf. Fyrirtækin starfa bæði við framleiðslu og sölu á frauðplastkössum og frauðplasteinangrun, en kassarnir eru einkum nýttir við flutning á ferskum fiski en frauðplasteinangrun aðallega notuð við húsbyggingar. Í tilkynningu frá Samkeppniseftirlitinu segir að það sé niðurstaða eftirlitsins að samruninn hefði það í för með sér að til yrði mjög öflugt fyrirtæki með nánast einokunarstöðu á markaði fyrir framleiðslu og sölu á frauðplastkössum annars vegar og markaði fyrir framleiðslu og sölu á frauðplasteinangrun hins vegar. „Þá myndi samruninn leiða til umtalsverðrar breytingar á markaðsgerðinni þar sem mikilvægur keppinautur myndi hverfa af markaði. Fæli samruninn þannig í sér alvarlega röskun á samkeppni og væri til þess fallin að valda viðskiptavinum tjóni. Samrunaaðilar lögðu fram tillögur að skilyrðum til þess að vinna gegn samkeppnishömlum sem stafað gætu af samrunanum. Það er mat Samkeppniseftirlitsins að þessar tillögur myndu ekki duga til að koma í veg fyrir samkeppnishamlandi áhrif samrunans. Því telur eftirlitið óhjákvæmilegt að ógilda samrunann.Ákvörðun nr. 23/2017 er aðgengileg á vefsíðu Samkeppniseftirlitsins,“ segir í tilkynningunni.
Mest lesið Löggan bankaði upp á á skírdag Neytendur „Flestir sem eru á þessum lista eru dánir“ Neytendur Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Viðskipti innlent Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Atvinnulíf Mælir með eistnesku poppi til að vekja börnin almennilega Atvinnulíf Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Viðskipti innlent Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Ný þjálfun í golfi: „Ég vildi að sjálfsögðu ná meiri árangri“ Atvinnulíf Einföld hugmynd sem er nú orðin grunnstoð í rekstri þúsunda fyrirtækja Samstarf Traustur samstarfsaðili í byggingariðnaði Samstarf Fleiri fréttir Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Sjá meira