Fjöllin kölluðu hann heim Sigríður Inga Sigurðardóttir skrifar 23. október 2017 10:00 “Ég var ekki tilbúinn til að fórna öllu fyrir tískuna en það er næstum því skilyrði vilji maður ná langt innan tískuheimsins. Mig langaði að gera eitthvað meira.” MYND/ANTON BRINK
Undanfarin ár hef ég verið verkefnisstjóri hjá Hinu húsinu en er hægt og rólega að færa mig yfir til Listahátíðar í Reykjavík. Þetta er þvílíkt spennandi verkefni, fjölbreytt og víðfeðmt og ég mun vinna náið með listrænum stjórnanda, kynningarstjóra og framkvæmdastjóra,“ segir Friðrik Agni Árnason glaður í bragði. „Ég hlakka til að vinna með listamönnum, koma listinni á framfæri og setja listina inn í samfélagið. Það er ótrúlega dýrmætt og gefandi að fá að vinna með skapandi og virtum listamönnum og skipuleggja mismunandi viðburði.“Vildi ekki fórna öllu fyrir tískuna Friðrik Agni lærði listræna stjórnun við Instituto Europeo di Design í Mílanó á Ítalíu með áherslu á tísku og starfaði innan þess geira um tíma. „Ég vann við listræna stjórnun, stíliseringu og tískuljósmyndun í Stokkhólmi, á Ítalíu og í Dúbaí, þar sem ég bjó í hálft ár. Ég hef mikinn áhuga á tísku og fylgist vel með nýjustu tískustraumum og stefnum en á einhverjum tímapunkti fann ég að ég var ekki tilbúinn til að fórna öllu fyrir tískuna en það er næstum því skilyrði vilji maður ná langt innan tískuheimsins. Mig langaði að gera eitthvað meira. Þegar leiðin lá heim á ný tók ég mastersgráðu í menningarstjórnun frá Háskólanum á Bifröst,“ segir Friðrik Agni og samþykkir að hann hafi vissulega mikla reynslu og prófað margt miðað við aldur en hann verður þrítugur í lok ársins. „Ég hef alltaf lifað ótrúlega hratt. Þegar ég fæ hugmyndir sem mig langar að verði að raunveruleika hika ég oftast ekki við að framkvæmda þær. Margir eiga sér drauma en finnst of flókið eða erfitt að hrinda þeim í framkvæmd en ég hvet alla til að grípa tækifærið og láta drauma sína rætast. Það þarf ekki að vera svo flókið,“ segir Friðrik Agni brosandi.Friðrik Agni hefur níu sinnum orðið Íslandsmeistari í samkvæmisdönsum. Dansinn leiddi hann til Ástralíu þegar hann var aðeins nítján ára gamall. MYND/ANTON BRINKMenningarheimar mætast Spurður hvernig það hafi verið að búa í Dúbaí segir hann það hafa verið merkilega reynslu því þar sé menningin í mikilli mótun. „Borgin er mjög sérstök. Hún er eins og annar heimur, miðað við það sem við þekkjum í Evrópu. Í Dúbaí mætast ólíkir menningarheimar en landið er um leið mjög alþjóðlegt. Tæpur fjórðungur íbúa er innlendur en aðrir hafa flutt þangað frá öðrum löndum, þar af margir frá Evrópu og flestir tala ensku. Það er mikið um andstæður í Dúbaí og mikið af fjármagni í gangi. Þar eru tækifæri á hverju strái fyrir ungt fólk í skapandi geiranum og auðvelt að öðlast mikla vinnureynslu. Dúbaí er mikil vinnuborg og hægt að þéna mikinn pening og einnig spara mikið fé því það er enginn tekjuskattur í landinu. Margir eiga erfitt með að snúa til baka til Evrópu eftir að hafa vanist því að lifa hátt og lifa því lúxuslífi sem þar er í boði.“„Dúbaí er mikil vinnuborg. Margir eiga erfitt með að snúa til baka til Evrópu og venjast því að lifa hátt og lifa því lúxuslífi sem þar er í boði.“Fjöllin heima kölluðuFriðrik Agni ákvað hins vegar að snúa heim aftur. „Fjöllin hér heima kölluðu á mig. Ég var reyndar á leiðinni til New York en ég fékk skólastyrk til að læra grafíska hönnun. Ég var þó tvístígandi yfir því vegna þess að ég var búinn að vera á svo miklu flakki. Mér fannst ég hafa uppfyllt þessa ævintýraþrá og langaði líka að vera í kringum fjölskylduna mína. Ég flutti því heim og settist á skólabekk á Bifröst.“ Líf Friðriks Agna hefur einnig snúist um dans og hann hefur níu sinnum orðið Íslandsmeistari í samkvæmisdönsum. Dansinn leiddi hann til Ástralíu þegar hann var aðeins nítján ára gamall, en þar kenndi hann samkvæmisdansa, æfði dans og tók þátt í danskeppnum. „Mér bauðst að koma út að kenna og dansa og ég ákvað að slá til. Það var góð reynsla en ég ákvað að snúa mér heldur að tísku og fór þaðan í námið í Mílanó. Það var heldur langt í burtu að vera hinum megin á hnettinum en ég áttaði mig í raun ekki á fjarlægðinni fyrr en ég var kominn þangað.“Friðrik Agni fór til Spánar með bestu vinkonu sinni, Önnu Claessen, ásamt hópi fólks að dansa.Kennir og kynnir dansFriðrik Agni hefur alls ekki sagt skilið við dansinn þótt hann hafi ráðið sig til Listahátíðar í Reykjavík. Hann kennir bæði zumba og jallabina og er með vefsíðuna, www.dansogkultur.is ásamt Önnu Claessen, bestu vinkonu sinni. „Jallabina er nýjung en um er að ræða miðausturlenskt dansfitness sem mér finnst ótrúlega skemmtilegt. Dans og kúltúr snýst svo um að miðla því sem er að gerast í dansheiminum á Íslandi en þar er ótrúlega margt í boði. Hægt er að dansa á hverjum degi á fleiri en einum stað í Reykjavík. Við erum í góðu samstarfi við dansskóla og -félög og þau eru stundum með snappið okkar. Við höfum einnig verið í samstarfi við ferðaskrifstofu og fórum út til Spánar með tuttugu manna hóp þar sem við dönsuðum á ströndinni á hverjum degi. Við erum þegar farin að skipuleggja næstu ferðir og þær munu örugglega koma á óvart,“ segir Friðrik Agni að lokum.
Mest lesið Hvernig er hægt að elska foreldrið sem hefur sært mann? Lífið Hulunni svipt af Taskmaster Bíó og sjónvarp „Komum okkur fyrir í Hugrekkislestinni“ Lífið Fréttatía vikunnar: Fótur, fit og Gunnar Nelson Lífið Innistæðulaus stjörnudýrkun: Plácido Domingo hefði betur setið heima Gagnrýni Hjálmar H. Ragnarsson er látinn Menning Hvernig fer Óskarinn? Bíó og sjónvarp Höfundur Fíusólar svarar reiðum mæðrum eftir ákall um bókabrennu Lífið Fjórar evrópskar perlur sem fullkomna vorferðina Lífið samstarf Kelly Clarkson segist hvorki hafa fengið sigurféð né bílinn sem henni var lofað Lífið Fleiri fréttir Hvernig er hægt að elska foreldrið sem hefur sært mann? „Komum okkur fyrir í Hugrekkislestinni“ Fréttatía vikunnar: Fótur, fit og Gunnar Nelson „Viljum alls ekki fá fólk hingað inn og skamma það“ Gauragangur í Menntaskólanum að Laugarvatni Kelly Clarkson segist hvorki hafa fengið sigurféð né bílinn sem henni var lofað Flughræddur Dóri DNA fékk hrós frá flugfreyju Sigríður Dögg komin í ömmuklúbbinn Andar í burtu kvíðann og drekkur te til að slá á sykurþörfina Fimmta dóttirin skírð Ozzy Gísli Marteinn rís upp í krafti sýklalyfja Þegar fólk var skotmarkið í safaríferð Pearl Jam á móti sjókvíaeldi á Íslandi Finnbogi hlaut Íslensku myndlistarverðlaunin fyrir Skjálfta Trúlofun slitið, forræðisdeila hafin og lögreglu blandað í málið Íslensk ungmenni fá sendar nektarmyndir í hefndarskyni Skíðaferðin til Sviss endaði á spítala á fyrsta degi Djammið lifir á Prikinu Lýsir yfir stuðningi við Hafdísi Höfundur Fíusólar svarar reiðum mæðrum eftir ákall um bókabrennu „Enn önnur ömurlega lygasagan um mig“ Spurð hvort hún væri að kyssa bróður sinn „Fjárhagslega stór biti“ Hafdís stígur fram vegna Kleina Sjóðandi hiti á klúbbnum á föstudag Varð að svara einni spurningu rétt til að fá eina milljón Deilur Bríetar og Pálma smitast yfir á síðu Zöru Larsson Ingibjörg Sólrún steig trylltan dans Simmi og Hugi taka sér pásu: „Það er hagsmunaárekstur“ Skotið á hús Rihönnu í Beverly Hills Sjá meira