Á níunda tug nemenda útskrifuðust frá Háskólanum á Bifröst atli ísleifsson skrifar 18. febrúar 2017 17:34 Frá útskriftinni fyrr í dag. Háskólinn á Bifröst
Alls útskrifuðust 82 nemendur úr öllum deildum Háskólans á Bifröst, námi í verslunarstjórnun og Háskólagátt á háskólahátíð fyrr í dag. Vilhjálmur Egilsson, rektor skólans, sagði það vera mikilvægt fyrir skólann að styrkja enn frekar stöðu sína á sviði fjarnáms og því sé nú verið að fara yfir þau tækifæri sem þurfi að grípa með uppfærslu á kerfum og endurnýjun á aðstöðu nemenda og tæknibúnaði í skólanum. Markmiðið sé að verja ótvírætt forystuhlutverk háskólans á þessu sviði. Rektor sagði í útskriftarræðu sinni að Bifrestingum gengi almennt mjög vel á vinnumarkaði, „enda séu þeir fólk sem leysi vandamál og kunni að vinna með öðrum. Samfélagið nú sem í framtíðinni gengi ekki upp nema fólk ynni vel saman.“Vilhjálmur Egilsson.Háskólinn á Bifröst.Vilhjálmur sagði Háskólann á Bifröst vera ótrúlega gott samfélag sem hafi mótandi áhrif á alla sem verða hluti af því. „Skólinn nýtur þess að hafa nemendur sem vilja ná árangri og taka að sér leiðandi hlutverk í atvinnulífinu og samfélaginu. Skólinn nýtur líka kennaranna og annars starfsfólks sem hefur metnað til að skila góðu verki og skila skólanum sterkum áfram inn í framtíðina. Við stöndum í þakkarskuld við alla nemendur og starfsmenn sem hafa lagt sitt af mörkum í skólanum okkar. Allt þetta fólk er að vinna íslensku samfélagi mikið gagn,“ sagði Vilhjálmur. Í tilkynningu frá skólanum segir að útskriftarverðlaun hlutu í grunnnámi, Svanberg Halldórsson, viðskiptadeild, Edda Bára Árnadóttir, lagadeild og Sigurður Kaiser félagsvísindadeild. „Útskriftarverðlaun hlutu í meistaranámi Sigurbjörg R Hjálmarsdóttir, viðskiptadeild, Þórunn Unnur Birgisdóttir, lagadeild og Friðrik Árnason og Sigríður Valdimarsdóttir,félagsvísindadeild. Að auki fengu eftirfarandi þrír nemendur felld niður skólagjöld á haustönn í tilefni af framúrskarandi námsárangri, Vera Dögg Höskuldsdóttir, viðskiptadeild, Þórarinn Halldór Óðinsson lagadeild og Pétur Steinn Pétursson félagsvísindadeild. Ræðumaður fyrir hönd viðskiptadeildar var Svanberg Halldórsson, fyrir hönd lagadeildar Edda Bára Árnadóttir og fyrir hönd félagsvísindadeildar Sif Guðmundsdóttir. Ræðumaður fyrir hönd meistaranema var Helga Margrét Friðriksdóttir, viðskiptadeild. Karlakórinn Söngbræður sá um söngatriði við útskriftina við undirleik Heimis Klemenzssonar,“ segir í tilkynningunni.Háskólinn á Bifröst
Tengdar fréttir Háskólarektor minntist Birgis og Birnu við brautskráningu kandidata Samanlagður fjöldi brautskráðra var 455, 329 konur og 126 karlar. 18. febrúar 2017 16:07 Mest lesið Allt önnur spá í kortunum Innlent Sextán ára reyndi að stinga lögguna af Innlent Gosmóða yfir höfuðborgarsvæðinu í dag Innlent Skynsamlegt að loka gluggum og setja á hringrásarstillingu í bílnum Innlent „Ég kem ekki nálægt þessum málum aftur“ Innlent „Þessi kostnaður hverfur ekki“ Innlent Einn stunginn þegar tveir hópar voru að útkljá sín mál Innlent Loka vinnuskólanum og leikskólabörnum haldið innandyra Innlent Ók í gegnum grindverk heimahúss og fannst skammt frá Innlent Segja ákvörðun Bjarkeyjar í berhöggi við stjórnarskrá Innlent Fleiri fréttir Skýra þurfi stöðu ríkissáttasemjara Karlmaður á þrítugsaldri lést í slysinu á Vesturlandsvegi Kári Stefánsson formaður í nýjum starfshóp „Ég kem ekki nálægt þessum málum aftur“ Senda fólk inn úr sólinni Segir allan áburð um kynferðisbrot úr lausu lofti gripinn Sextán ára reyndi að stinga lögguna af Ólíðandi misbeiting matvælaráðherra á valdi Þyrla kölluð út vegna vélsleðaslyss við Langjökul „Svartur dagur fyrir dýravelferð á Íslandi“ Allt önnur spá í kortunum Ólafur Ragnar segir deilur um forsetaembættið endanlega afgreiddar Skynsamlegt að loka gluggum og setja á hringrásarstillingu í bílnum Segja ákvörðun Bjarkeyjar í berhöggi við stjórnarskrá Fjórar snyrtistofur sektaðar fyrir ófullnægjandi verðmerkingar Ákvörðunin skref í rétta átt Loka vinnuskólanum og leikskólabörnum haldið innandyra Óttast að enginn hvalur verði veiddur þrátt fyrir leyfið Fækkar í Þjóðkirkjunni og fjölgar í Siðmennt Hvalveiðar heimilaðar og gosmóða yfir höfuðborginni Bjarkey veitir Hval leyfi til að veiða 128 langreyðar Siðanefnd sýknar Halldór og Vísi af kæru Arnars Þórs Rafmagnsleysi í Kópavogi og Fossvogi Landris hafið að nýju og má gera ráð fyrir öðru gosi Þeim fjölgar sem kenna án kennsluréttinda Einn stunginn þegar tveir hópar voru að útkljá sín mál Vaktin: Bjarkey gefur grænt ljós á hvalveiðar Kosningastjóri og áhrifavaldur aðstoða Bjarkeyju Inga vill helst fjármálaráðuneytið Skemmdarverk unnin á lögreglubílum Sjá meira
Háskólarektor minntist Birgis og Birnu við brautskráningu kandidata Samanlagður fjöldi brautskráðra var 455, 329 konur og 126 karlar. 18. febrúar 2017 16:07