Nýir eigendur vilja skoða sölu á hlut í Bláa lóninu Kristinn Ingi Jónsson skrifar 15. nóvember 2017 08:30 EBIDTA-hagnaður Bláa lónsins hefur þrefaldast á fimm árum. Vísir/GVA
Kanadíska orkufyrirtækið Innergex Renewable Energy, sem keypti nýverið Alterra, sem á 53,9 prósenta hlut í HS Orku, hyggst endurskoða eignarhald HS Orku á 30 prósenta hlut fyrirtækisins í Bláa lóninu, að því er fram kemur í fjárfestakynningu stjórnenda Innergex. Telja stjórnendurnir að starfsemi Bláa lónsins falli ekki að kjarnastarfsemi íslenska orkufyrirtækisins. Eins og fram hefur komið í Fréttablaðinu setti HS Orka hlut sinn í Bláa lóninu í söluferli um miðjan maímánuð og var það sjóður í stýringu Blackstone, eins stærsta fjárfestingarsjóðs heims, sem átti hæsta tilboðið, um 11 milljarða króna. Fulltrúar íslenskra lífeyrissjóða, sem eiga 33,4 prósent í HS Orku í gegnum samlagshlutafélagið Jarðvarma, ákváðu hins vegar að beita neitunarvaldi sínu og höfnuðu tilboðinu. Var haft eftir Davíð Rúdólfssyni, stjórnarformanni Jarðvarma, að tilboð Blackstone hefði ekki endurspeglað virði Bláa lónsins. Fram kemur í nýlegri afkomukynningu Alterra að nokkur tilboð að virði yfir 90 milljónir evra, sem jafngildir um 10,9 milljörðum króna, hafi borist í hlut HS Orku í Bláa lóninu í sumar.Fréttin birtist fyrst í Markaðnum, fylgiriti Fréttablaðsins um viðskipti og fjármál.
Mest lesið Kaupsamningum fjölgar en mikið ójafnvægi á leigumarkaði Viðskipti innlent Hætta við hlutafjárútboð og skráningu Íslandshótela Viðskipti innlent Hátt verð fæli ferðamanninn frá Íslandi Viðskipti innlent Ingu Tinnu hjá Dineout gjörsamlega ofboðið Viðskipti innlent Bein útsending: Efnahagsráðstefna í Reykjavík Viðskipti innlent Eignast Securitas að fullu Viðskipti innlent AGS leggur til skattahækkanir Viðskipti innlent „Ég var pæja sem vildi ekki vera með ljótan gulan hatt á hausnum“ Atvinnulíf Þjóðin hafi tekið rétta ákvörðun í Icesave málinu Viðskipti innlent Fyrirtæki hvött til að halda upp á daginn í dag og gera sér dagamun Atvinnulíf Fleiri fréttir Bein útsending: Efnahagsráðstefna í Reykjavík Kaupsamningum fjölgar en mikið ójafnvægi á leigumarkaði Hætta við hlutafjárútboð og skráningu Íslandshótela Hátt verð fæli ferðamanninn frá Íslandi Deilan um boltann fer alla leið í Hæstarétt AGS leggur til skattahækkanir Gerður ráðin til BBA//Fjeldco Þjóðin hafi tekið rétta ákvörðun í Icesave málinu Úr tveggja milljarða tekjum í fimm en töpuðu þrjátíu Ingu Tinnu hjá Dineout gjörsamlega ofboðið Eignast Securitas að fullu Netflix, Stöð2+, Prime og Disney greiði til menningar Segja markaðstorg blóðmjólka fyrirtæki Há laun og dýr bjór séu vandamál ÁTVR Hnífjöfn atkvæðagreiðsla sem gæti endað fyrir dómi Segir arðgreiðslur ÁTVR hafa lækkað um 400 milljónir vegna netsölu Fóru í fyrsta flugið milli Calgary og Keflavíkurflugvallar Segir að Play sé og verði áfram með höfuðstöðvar á Íslandi Guðmundur tilnefndur til Evrópsku nýsköpunarverðlaunanna 2024 Forstjóri Play íhugar að fljúga frekar til Íslands en frá Base parking gjaldþrota Endurkjörinn formaður og fimm koma ný inn í stjórn Þjónusturof hjá alþjóðlegum birgja Samkaup, Heimkaup og Orkan hefja samrunaviðræður Stefna á opnun fyrsta skammtíma raforkumarkaðarins á næsta ári Bein útsending frá Nýsköpunarviku Sparisjóður hagnaðist um 205 milljónir króna Starfsfólk fær 150 milljónir í hlutabréfum Magnús eignast Latabæ á nýjan leik Ráðin framkvæmdastjóri Rue de Net Sjá meira