Félag í eigu Guðmundar í Brim hagnast um 6,7 milljarða Kristinn Ingi Jónsson skrifar 15. nóvember 2017 10:30 Mikill hagnaður Stillu útgerðar í fyrra kemur að mestu leyti til af því að bræðurnir Guðmundur og Hjálmar Kristjánsson færðu öll bréf sín í Vinnslustöðinni í Vestmannaeyjum (VSV) yfir á sjávarútvegsfyrirtækið Brim, sem er einnig í eigu bræðranna.
Stilla útgerð, í eigu bræðranna Guðmundar og Hjálmars Kristjánssona, hagnaðist um 6,7 milljarða króna í fyrra. Er það mikil aukning frá árinu áður þegar hagnaðurinn nam 239 milljónum króna. Mikill hagnaður Stillu útgerðar í fyrra kemur að mestu leyti til af því að bræðurnir færðu öll bréf sín í Vinnslustöðinni í Vestmannaeyjum (VSV) yfir á sjávarútvegsfyrirtækið Brim, sem er einnig í eigu bræðranna, í mars árið 2016, samkvæmt heimildum Markaðarins. Í árslok 2015 áttu Guðmundur og Hjálmar 25 prósenta hlut í VSV í gegnum Stillu og átti Guðmundur þar að auki fjögur prósent í eigin nafni og Hjálmar 1,85 prósent í gegnum félagið KG Fiskverkun. Brim eignaðist um þriðjungshlut í VSV þegar bræðurnir færðu öll bréf sín í félaginu yfir á sjávarútvegsfyrirtæki sitt. Greindi DV frá því í apríl 2016 að bréfin í VSV, sem bræðurnir færðu yfir á Brim, væru metin á 11,5 milljarða króna. Félagið Seil, sem er meðal annars í eigu Sigurgeirs Brynjars Kristgeirssonar, framkvæmdastjóra VSV, er eftir sem áður stærsti hluthafi VSV með um 41 prósents hlut. Eignir Stillu útgerðar námu 11,3 milljörðum króna í lok síðasta árs borið saman við 2,9 milljarða í lok árs 2015. Var eiginfjárhlutfallið 71,4 prósent í árslok 2016, að því er fram kemur í ársreikningi félagsins.Greinin birtist fyrst í Markaðnum, fylgiriti Fréttablaðsins um viðskipti og fjármál.
Mest lesið Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Viðskipti innlent Fréttamaður missti af strætónum til baka Neytendur Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Viðskipti innlent Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag Viðskipti innlent Þegar svona sprengja springur vill allur vinnustaðurinn „fá allt á hreint“ Atvinnulíf 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Viðskipti innlent „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Viðskipti innlent Gapti þegar hún sá heimilisbókhaldið hjá Röggu nagla Neytendur Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Viðskipti innlent Klíníkin sótti 300 milljónir króna Viðskipti innlent Fleiri fréttir Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Verðbólga ekki meiri í tvö ár Högnuðust um milljarð Rúmlega tuttugu sagt upp hjá ÍAV Hannes Þór, Hannes Þór og Allan greiða sér 100 milljónir í arð Uppsagnir í Arion banka Sjá meira