Forkaupsrétturinn úti Sæunn Gísladóttir skrifar 6. apríl 2017 06:00 Erlendir vogunarsjóðir keyptu um 30 prósent hlut í Arion banka í síðasta mánuði. vísir/stefán
Nefndarmenn í efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis líta svo á að ríkið hafi ekki heimild til að nýta sér forkaupsrétt að hlutnum sem Goldman Sachs og þrír vogunarsjóðir keyptu í Arion banka, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. Þetta sé skoðun þeirra eftir að Steinar Þór Guðgeirsson, sérstakur eftirlitsmaður stjórnvalda inni í Kaupþingi við söluferlið á Arion banka, mætti á lokaðan fund nefndarinnar í gær. Samkvæmt stöðugleikaskilyrðum sem kröfuhafar Kaupþings féllust á í tengslum við nauðasamninga 2015 hafa stjórnvöld heimild til að ganga inn í kaup ef hlutur í Arion banka er seldur á undir 80 prósentum af eigin fé bankans hverju sinni. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, fyrrverandi forsætisráðherra, ásamt tveimur öðrum þingmönnum Framsóknarflokksins lagði fram þingsályktunartillögu í síðustu viku þar sem kallað er eftir því að Alþingi feli fjármálaráðherra að nýta þann forkaupsrétt. Í tillögunni er bent á að hluturinn hafi verið seldur undir genginu 0,8 miðað uppgjör Arion banka í árslok 2016. Á nefndarfundinum í gær kom hins vegar fram að samkomulagið við vogunarsjóðina og Goldman Sachs hafi miðast við þriðja ársfjórðung 2016 og gengið sé því yfir 80 prósentum af eigin fé. Það sé einnig tilfellið ef farið er algjörlega eftir enska textanum í samningnum og miðað við árslok 2015, en þá væri gengið langt fyrir ofan. Því sé ljóst að forkaupsrétturinn sé úti. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins vilja nefndarmenn í efnahags- og viðskiptanefnd að Fjármálaeftirlitið framkvæmi hæfismat á nýju hluthöfunum í Arion banka, þrátt fyrir að enginn þeirra fari nú með virkan eignarhlut. Forsvarsmenn FME hafa áður gefið út að undirbúningur að slíku hæfismati sé nú þegar hafinn. Þrír hinna nýja hluthafa Arion banka hafi enda þegar upplýst FME um að þeir hafi hug á því að fara með virkan eignarhlut síðar á árinu. Fréttablaðið greindi frá því í gær að Fjármálaeftirlitið telji sig geta upplýst um hverjir endanlegir eigendur séu á hlutnum aukist hlutur hvers þeirra í yfir 10 prósent og að þeir fari þá með virkan eignarhlut. Kallað hefur verið eftir því að eignarhaldið verði skýrt áður en slíkt gerist. Jónas Fr. Jónsson, fyrrverandi forstjóri Fjármálaeftirlitsins, telur að það þurfi að skoða hvort kominn sé virkur eignarhlutur hjá vogunarsjóðunum með þessum kaupum og núverandi aðkomu þeirra að Kaupþingi og þeirri fyrirætlun sem virðist koma fram í kauprétti, að eignast meira í bankanum.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Fær 9,5 fyrir IKEA og JYSK samsetningar Atvinnulíf Þegar svona sprengja springur vill allur vinnustaðurinn „fá allt á hreint“ Atvinnulíf Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Viðskipti innlent Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Viðskipti innlent Paramount og Warner Bros. heyra brátt sögunni til Viðskipti erlent Klíníkin sótti 300 milljónir króna Viðskipti innlent Fréttamaður missti af strætónum til baka Neytendur Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Viðskipti innlent 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Viðskipti innlent G7 setja hundrað milljón tunnur á markaðinn Viðskipti erlent Fleiri fréttir Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Verðbólga ekki meiri í tvö ár Högnuðust um milljarð Rúmlega tuttugu sagt upp hjá ÍAV Hannes Þór, Hannes Þór og Allan greiða sér 100 milljónir í arð Uppsagnir í Arion banka Sjá meira