Vill skattaafslátt vegna hlutabréfakaupa Sæunn Gísladóttir skrifar 18. júlí 2017 07:00 Í gær sendu Samtök atvinnulífsins frá sér yfirlýsingu um að samtökin telji skynsamlegt að stjórnvöld hvetji almenning til þátttöku í atvinnurekstri með því að veita einstaklingum skattaafslátt vegna hlutabréfakaupa. Vísir/GVA „
Ég held það sé skynsamlegt að vera með slíka skattalega hvata fyrir almenning til að taka þátt í atvinnulífinu,“ segir Óli Björn Kárason, formaður efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis. „Við höfum góða reynslu af því og ég held að þetta verði ekki bara til þess að auka sparnað almennings heldur ekki síður til þess að við sjáum hér öflugri hlutabréfamarkað,“ heldur Óli Björn áfram. Hann sér fyrir sér að leggja fram frumvarp um skattaafslátt vegna hlutabréfakaupa þegar þing kemur saman, taki ríkisstjórnin ekki af skarið. Í gær sendu Samtök atvinnulífsins frá sér yfirlýsingu um að samtökin telji skynsamlegt að stjórnvöld hvetji almenning til þátttöku í atvinnurekstri með því að veita einstaklingum skattaafslátt vegna hlutabréfakaupa. Fyrir síðustu aldamót var um hríð hvatt til þátttöku almennings í atvinnulífinu með því að kaup á hlut í hlutafélögum, sem uppfylltu tiltekin skilyrði, veittu rétt til skattaafsláttar upp að ákveðnu marki.Óli Björn Kárason.Samtök atvinnulífsins benda á að hægt sé að horfa til Svíþjóðar sem fyrirmyndar í þessum málum. Óli Björn telur sænsku leiðina þó ekki endilega þá farsælustu. „Það er dálítið annað og hún er flóknari. Ég er ekki viss um að hún henti okkur en hún kemur auðvitað vel til greina. Hin leiðin, sem er afsláttur þar sem þú getur dregið ákveðna fjárhæð vegna hlutabréfakaupa frá tekjuskattsstofni, eins og við þekkjum og var hér við lýði í mörg ár, er einföld og gegnsæ aðferð til að hvetja launafólk til að taka þátt í atvinnulífinu,“ segir Óli Björn. Páll Harðarson, forstjóri Kauphallarinnar, telur bæði sænsku leiðina og þá sem áður var við lýði hér koma sterklega til athugunar. „Þetta eru ólíkar leiðir að sama marki. En ég myndi svo sannarlega styðja sænsku leiðina ef hún yrði farin.“ Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna, telur að skoða þyrfti skattaafslætti af þessu tagi vel áður en ráðist yrði í þá. „Mér finnst mjög mikilvægt að skattkerfið eigi að vera réttmætt og sanngjarnt. Það er ekki ólíklegt að skattaafsláttur vegna hlutabréfakaupa myndi fyrst og fremst nýtast þeim sem hafa efni á að kaupa hlutabréf. Mér finnst að slíkar skattaívilnanir þurfi að hafa tilgang, að stuðla að aukinni fjölbreytni í atvinnulífi, aukinni áherslu á þekkingariðnað eða eitthvað slíkt.“
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Löggan bankaði upp á á skírdag Neytendur „Flestir sem eru á þessum lista eru dánir“ Neytendur Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Viðskipti innlent Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Atvinnulíf Mælir með eistnesku poppi til að vekja börnin almennilega Atvinnulíf Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Viðskipti innlent Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Ný þjálfun í golfi: „Ég vildi að sjálfsögðu ná meiri árangri“ Atvinnulíf Traustur samstarfsaðili í byggingariðnaði Samstarf Einföld hugmynd sem er nú orðin grunnstoð í rekstri þúsunda fyrirtækja Samstarf Fleiri fréttir Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Sjá meira