Lífeyrissjóðir eignast 46% í HS Orku Kristinn Ingi Jónsson skrifar 31. júlí 2017 07:00 Markaðsvirði HS Orku er um 54 milljarðar króna. VÍSIR/Valli vísir/valli
Eignarhlutur íslenskra lífeyrissjóða í HS Orku mun aukast um 12,7 prósent og verða 46,1 prósent. Þetta varð ljóst í lok síðustu viku þegar samkomulag náðist á milli fagfjárfestasjóðsins ORK, sem er að mestu leyti í eigu lífeyrissjóða, og Magma Energy, dótturfélags kanadíska orkufélagsins Alterra. Samkomulagið varðar uppgjör á skuldabréfi sem Magma gaf út við kaup á hlut sínum í HS Orku árið 2009. Samkomulagið felur það í sér að ORK mun yfirtaka 12,7 prósenta hlut Magma í HS Orku á genginu 6,97 krónur á hlut, sem þýðir að verðmæti eignarhlutarins nemur um 6,9 milljörðum króna. Hlutur Magma mun minnka úr 66,6 prósentum í 53,9 prósent, en fyrir eiga fjórtán lífeyrissjóðir 33,4 prósenta hlut í HS Orku í gegnum félagið Jarðvarma. Íslenskir lífeyrissjóðir munu því samtals eignast 46,1 prósent í félaginu að virði 25,2 milljarða króna. Yfirtaka ORK á hlut Magma er þó háð því að stjórn HS Orku eða aðrir hluthafar félagsins nýti ekki forkaupsrétt sinn að hlutnum. Magma hefur þegar fallið frá forkaupsrétti sínum og þá hafa stjórnarmenn í HS Orku, sem tilnefndir eru af sænska félaginu, skuldbundið sig til að greiða ekki atkvæði með nýtingu forkaupsréttarins fyrir hönd félagsins. Enn er hins vegar óvíst hvort Jarðvarmi nýti forkaupsrétt sinn.
Mest lesið Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Viðskipti innlent Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Viðskipti innlent Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Viðskipti innlent Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Viðskipti innlent Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Viðskipti innlent Vara við skordýrum í chia-fræjum Neytendur Kanada svarar tollum Bandaríkjastjórnar Viðskipti erlent Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Viðskipti innlent Atvinnuleysi jókst í júlí Viðskipti innlent Nýr og ódýrari valkostur fyrir fyrirtæki sem þurfa að losa úrgang Samstarf Fleiri fréttir Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Síminn orðinn Ásar hf Icelandair kaupir helming í dreggjum Play á 83 milljónir Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Ekkert nýtt að frétta af boðuðum kaupum Telur ESB-viðræður engu breyta um verðbólgu og stýrivexti Minni íbúafjölgun minnkar þörfina á nýjum íbúðum Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Sjá meira