Skórisi hagnast um 159 milljónir Haraldur Guðmundsson skrifar 23. ágúst 2017 10:30 Markaðshlutdeild S4S á skómarkaðnum er allt að 50 prósent. Vísir/Ernir
Heildverslunin S4S, sem rekur skóverslanir á höfuðborgarsvæðinu, hagnaðist um 159,4 milljónir króna í fyrra. Afkoma fyrirtækisins var þá 48 milljónum betri en árið 2015 og rekstrartekjur jukust um 159 milljónir og námu 1.936 milljónum. Hagnaður S4S fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta (EBITDA) var 222 milljónir samanborið við 172,5 milljónir árið 2015. Í árslok 2016 námu eignir félagsins 761 milljón en skuldirnar 380 milljónum. S4S á og rekur skóverslanirnar Steinar Waage, Ecco, Kaupfélagið, Skór.is, Toppskóinn og íþróttavöruverslunina Air.is í Smáralind. Pétur Þór Halldórsson er stærsti eigandi S4S með helmingshlut. Fjárfestingarfélagið Sjávarsýn, í eigu Bjarna Ármannssonar, fjárfestis og fyrrverandi forstjóra Glitnis, keypti í október í fyrra 26 prósenta hlut í heldversluninni, eins og Markaðurinn greindi frá. Aðrir eigendur eru Hermann Helgason, framkvæmdastjóri S4S, og Georg Kristjánsson, en báðir eiga þeir hvor sín tólf prósentin. Sjávarsýn seldi í maí síðastliðnum allt hlutafé í útivistar- og lífstílsfyrirtækinu Ellingsen til S4S. Samkvæmt nýbirtum ársreikningi fyrirtækisins lagði stjórn þess til að greiddur yrði arður til hluthafa á yfirstandandi ári að upphæð allt að 160 milljónir króna. Eigendur félagsins hafa því greitt sér alls 360 milljónir í arð frá ársbyrjun 2015.Fréttin birtist fyrst í Markaðnum, fylgiriti Fréttablaðsins um viðskipti og efnahagsmál.
Mest lesið Ætla í hart vegna ákvörðunar Fjarskiptastofu Viðskipti innlent Farþegum fjölgaði um 14 prósent í október Viðskipti innlent Steinunn frá UNICEF til Festu Viðskipti innlent Fjölda fólks sagt upp hjá Icelandair Viðskipti innlent Engin u-beygja vegna pillu forstjóra Icelandair Viðskipti innlent Bein útsending: Kanónur ræða sjávarútveginn í Hörpu Viðskipti innlent Af hverju hefur lánið ekki lækkað? Viðskipti innlent Sýn tapaði 239 milljónum Viðskipti innlent Ómögulegt sé fyrir fólk á Eflingarlaunum að komast á húsnæðismarkað Viðskipti innlent Engir sérfræðingar að verki og sá yngsti um tvítugt Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Kanónur ræða sjávarútveginn í Hörpu Farþegum fjölgaði um 14 prósent í október Steinunn frá UNICEF til Festu Ætla í hart vegna ákvörðunar Fjarskiptastofu Sýn tapaði 239 milljónum Engin u-beygja vegna pillu forstjóra Icelandair Segja fulla ástæðu til að hafa áhyggjur af stöðu efnahags og vinnumarkaðar „Óveðurský á lofti í ferðaþjónustu“ Engir sérfræðingar að verki og sá yngsti um tvítugt Fullyrðingar Sigurðar um minni verðbólgu standist ekki Bein útsending: Í hvað á orkan að fara? Sækja á fjórða milljarð króna Afreksíþróttamenn sendast með tvö þúsund matarskammta á dag Fjölda fólks sagt upp hjá Icelandair Amaroq staðfestir merkilegan fund sjaldgæfra jarðmálma Af hverju hefur lánið ekki lækkað? Vextir geti lækkað fyrr og lækkað meira Eyddu illa fengnum milljónum í bíla og rafmyntir Segja Tango Travel verða að fara í gjaldþrot Stálu hundruðum milljóna hjá Landsbankanum Gengi Alvotech aldrei lægra 25 sagt upp í fiskvinnslu „Hætt við því að það muni bitna á leigjendum“ „Nær engar líkur á vaxtalækkun“ Uppsagnir hjá Morgunblaðinu Gengi Alvotech hrynur „Misvitrir stjórnmálamenn“ skattleggi útgerðina í drep Alvotech fær ekki leyfi fyrir hliðstæðu Simponi að svo stöddu „Ástand sem við getum ekki búið við til lengdar“ Hefur aldrei upplifað aðra eins óvissu á þrettán ára ferli Sjá meira