Telja Ísland geta borið 42% fleiri Domino's pitsustaði Haraldur Guðmundsson skrifar 15. mars 2017 10:00 Pizza-Pizza á og rekur 21 Domino's-stað hér á landi. Vísir/Eyþór
Stjórnendur Domino’s í Bretlandi (Domino’s Pizza Group, DPG), sem mun að öllum líkindum eignast ráðandi hlut í Domino’s á Íslandi á næstunni, telja að fjölga megi pitsustöðum keðjunnar hér um 42 prósent eða níu staði. Salan hér jókst um 16 prósent í fyrra og til stendur að opna tvo staði á þessu ári. Þetta kemur fram í fjárfestakynningu DPG á bráðabirgðatölum vegna reksturs bresku pitsukeðjunnar í fyrra. Samkvæmt henni telur félagið að hér megi reka 30 staði. Breska fyrirtækið, sem er skráð í kauphöllinni í London, keypti sig inn í rekstur Domino’s á Íslandi, í Noregi og Svíþjóð í júní í fyrra. Kaupverðið var 24 milljónir punda, eða rúmir fjórir milljarðar króna miðað við þáverandi gengi, og keypti DPG hlut í Pizza-Pizza ehf. Í fréttatilkynningu DPG á fimmtudag kom fram að breska félagið ætlar að bæta við sig tveggja prósenta hlut í Pizza-Pizza og þannig eiga meirihluta eða 51 prósent. DPG keypti 45 prósenta hlut í rekstrinum í Noregi og Svíþjóð í júní í fyrra og ætlar sér nú einnig 51 prósent í þeim hluta. Viðskiptin eru háð samþykki Seðlabanka Íslands. Samkvæmt áætlunum DPG og Pizza-Pizza er gert ráð fyrir að fjórir til sex staðir verði opnaðir í Noregi á þessu ári. Markaðurinn þar beri allt að 75 staði en þeir eru nú einungis tólf. Tæp þrjú ár eru liðin síðan Pizza-Pizza opnaði fyrsta staðinn þar og jókst salan um 131 prósent í fyrra. Félagið opnaði í Svíþjóð í desember í fyrra og sinn annað pitsustað þar í janúar. DPG telur eftirspurn eftir pitsum keðjunnar í Svíþjóð geta borið 125 staði. Birgir Þór Bieltved, fjárfestir og starfandi stjórnarformaður Pizza-Pizza, Eygló Björk Kjartansdóttir, eiginkona hans og stjórnarmaður í félaginu, og aðrir fjárfestar, þar á meðal framtakssjóðurinn EDDA, í eigu lífeyrissjóða og annarra fagfjárfesta, seldu DPG hluta af sinni eign í félaginu.Fréttin birtist fyrst í Markaðnum, fylgiriti Fréttablaðsins um viðskipti og efnahagsmál.
Mest lesið Fær 9,5 fyrir IKEA og JYSK samsetningar Atvinnulíf Þegar svona sprengja springur vill allur vinnustaðurinn „fá allt á hreint“ Atvinnulíf Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Viðskipti innlent Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Viðskipti innlent Paramount og Warner Bros. heyra brátt sögunni til Viðskipti erlent Klíníkin sótti 300 milljónir króna Viðskipti innlent Fréttamaður missti af strætónum til baka Neytendur Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Viðskipti innlent 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Viðskipti innlent G7 setja hundrað milljón tunnur á markaðinn Viðskipti erlent Fleiri fréttir Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Verðbólga ekki meiri í tvö ár Högnuðust um milljarð Rúmlega tuttugu sagt upp hjá ÍAV Hannes Þór, Hannes Þór og Allan greiða sér 100 milljónir í arð Uppsagnir í Arion banka Sjá meira