Þurftu ekki að bíða eftir samþykki vegna sölu Ölgerðarinnar Haraldur Guðmundsson skrifar 15. mars 2017 07:30 Kaupsamningur um 69 prósenta hlut í Ölgerðinni var undirritaður í október. Vísir/Anton Brink
Eigendur Ölgerðarinnar og hópur fjárfesta sem undirritaði kaupsamning um 69 prósenta hlut í fyrirtækinu í október biðu eftir samþykki Samkeppniseftirlitsins fyrir sölunni í rúma fjóra mánuði að óþörfu. Salan var ekki tilkynningarskyld og úrskurðaði stofnunin endanlega um það í byrjun mars. Tilkynnt var um kaup framtakssjóðanna Akurs fjárfestinga og Horns III, sem eru að mestu í eigu lífeyrissjóða, og hóps einkafjárfesta á 69 prósenta hlut í Ölgerðinni um miðjan október. Eignarhaldsfélagið Þorgerður ehf., F-13 ehf. og Lind ehf. seldu þá hluti sína í fyrirtækinu og í fréttatilkynningu um viðskiptin kom fram að undirritaður kaupsamningur innihéldi fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins. Samkvæmt upplýsingum Markaðarins vildu hinir nýju hluthafar ganga úr skugga um það hvort kaupin væru tilkynningarskyld eða ekki. Starfsmenn Samkeppniseftirlitsins hafi aftur á móti svarað fyrirspurn þeirra skömmu eftir að samningurinn var undirritaður um að stofnunin teldi þau ekki tilkynningarskyld samkvæmt samrunareglum samkeppnislaga. Þeir hafi þá verið beðnir um að skoða málið betur og endanlegt svar stofnunarinnar borist í byrjun mars. „Til álita kom að salan fæli í sér ný yfirráð sem tilkynna bæri Samkeppniseftirlitinu. Niðurstaðan var hins vegar sú að svo væri ekki,“ segir Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins, í skriflegu svari við fyrirspurn Markaðarins. Heimildir Markaðarins herma að salan á Ölgerðinni gangi því í gegn á næstu dögum. Í frétt blaðsins í byrjun mars kom fram að söluverð 69 prósenta hlutarins hefði numið um fimm milljörðum króna þegar ekki er tekið tillit til skulda fyrirtækisins og handbærs fjár. Kom það fram í dómsmáli sem einn eigenda Þorgerðar höfðaði eftir að Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu hafnaði beiðni hans um lögbann á söluna. Salan á 69 prósenta hlutnum var samþykkt þann 16. október 2016 og fréttatilkynning send daginn eftir. Þorgerður átti þar af 45 prósent en þeir Októ Einarsson, stjórnarformaður Ölgerðarinnar, og Andri Þór Guðmundsson, forstjóri fyrirtækisins, ákváðu á endanum að selja ekki 31 prósents eignarhlut OA eignarhaldsfélags í fyrirtækinu. Samkvæmt upplýsingum blaðsins er þess nú beðið að allir erlendir birgjar og samstarfsaðilar Ölgerðarinnar samþykki breytinguna á hluthafahópnum.Fréttin birtist fyrst í Markaðnum, fylgiriti Fréttablaðsins um viðskipti og efnahagsmál.
Mest lesið Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Viðskipti innlent Fréttamaður missti af strætónum til baka Neytendur Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Viðskipti innlent Þegar svona sprengja springur vill allur vinnustaðurinn „fá allt á hreint“ Atvinnulíf Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag Viðskipti innlent 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Viðskipti innlent „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Viðskipti innlent Gapti þegar hún sá heimilisbókhaldið hjá Röggu nagla Neytendur Klíníkin sótti 300 milljónir króna Viðskipti innlent Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Verðbólga ekki meiri í tvö ár Högnuðust um milljarð Rúmlega tuttugu sagt upp hjá ÍAV Hannes Þór, Hannes Þór og Allan greiða sér 100 milljónir í arð Uppsagnir í Arion banka Sjá meira