Grænar tölur á fyrsta haftalausa deginum Haraldur Guðmundsson skrifar 15. mars 2017 07:30 Stefán Sigurðsson, forstjóri Vodafone, undirritaði samning um kaup á 365 miðlum. Vísir/GVA
Fjarskipti, móðurfélag Vodafone á Íslandi, var hástökkvari gærdagsins í Kauphöll Íslands þegar bréf félagsins hækkuðu um 5,5 prósent. Velta með bréf fjarskiptafélagsins nam þá 398 milljónum króna en það tilkynnti rétt fyrir opnun markaða í gær um samkomulag um kaup á rekstri 365 miðla að Fréttablaðinu og Glamour undanskildum. Bréf verslunarfyrirtækisins Haga hækkuðu um 3,6 prósent og tryggingafélagið Sjóvá fór upp um 3,3 prósent. Þar á eftir komu bréf TM sem hækkuðu um 2,8 prósent og Skeljungs um 2,6 prósent. Nýherji var eina félagið á Aðalmarkaði Kauphallarinnar sem lækkaði í verði í gær og fór það niður um 0,7 prósent í einungis 89 milljóna króna viðskiptum. Úrvalsvísitala Kauphallarinnar hækkaði um 1,39 prósent. Sérfræðingar á hlutabréfamarkaði sem Markaðurinn ræddi við segja ljóst að fjárfestar séu jákvæðir gagnvart ákvörðun stjórnvalda um losun gjaldeyrishafta hér á landi. Einnig að fjárfestar bíði í eftirvæntingu eftir niðurstöðu peningastefnunefndar Seðlabankans sem mun í dag greina frá stýrivaxtaákvörðun sinni. Hafa greiningaraðilar spáð óbreyttum vöxtum eða að þeir lækki um 0,25 prósentustig.Fréttin birtist fyrst í Markaðnum, fylgiriti Fréttablaðsins um viðskipti og efnahagsmál.
Mest lesið Mátti rifta kaupum á bíl sem bilaði þremur dögum eftir kaup Neytendur Tollasamkomulag Bandaríkjanna og Kanada út um þúfur Viðskipti erlent Landsbankinn hækkar líka vexti Viðskipti innlent JYSK opnar nýtt og glæsilegt vöruhús í Mosfellsbæ Samstarf Geti munað allt að tvö þúsund krónum á matarkörfunni eftir verslunum Neytendur Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst Viðskipti innlent Jón Þór fer til Samherja Viðskipti innlent Icelandair kaupir helming í dreggjum Play á 83 milljónir Viðskipti innlent Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Viðskipti innlent „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Viðskipti innlent Fleiri fréttir Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Síminn orðinn Ásar hf Icelandair kaupir helming í dreggjum Play á 83 milljónir Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Ekkert nýtt að frétta af boðuðum kaupum Telur ESB-viðræður engu breyta um verðbólgu og stýrivexti Minni íbúafjölgun minnkar þörfina á nýjum íbúðum Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu „Það eru engin fórnarlömb hér“ Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Hækka stýrivexti Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Árni skattakóngur annað árið í röð Sigurður Arnar nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Bryndís Ósk nýr framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda María Klara til Athygli Guðmundur Fertram í nýtt hlutverk hjá Coloplast Sjá meira