Minni umsvif fataverslana þrátt fyrir aukna kaupgleði sunna karen sigurþórsdóttir skrifar 15. mars 2017 15:01 Velta fataverslana hefur dregist saman þrátt fyrir mikinn hagvöxt. vísir/vilhelm
Velta í dagvöruverslunum er að aukast jafnt og þétt, og var veltan í febrúar síðastliðnum þremur prósentum meiri en í sama mánuði í fyrra. Að jafnaði hefur velta dagvöxuverslana aukist um sex prósent síðustu tólf mánuði. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Rannsóknarsetri verslunarinnar. Þar segir að verð á matvælum fari lækkandi. Þar af leiðandi sé magn þess sem keypt er meira en velta í krónum gefur til kynna. Velta áfengisverslunar vex einnig og var átta prósentum meiri í febrúar en í sama mánuði í fyrra. „Aukinn kaupmáttur og vaxandi væntingar er jafnan ávísun á aukna kaupgleði,“ segir í tilkynningunni, og því veki það athygli að í hinum mikla hagvexti, sem sé að nokkru drifinn áfram af aukinni neyslu, skuli fataverslun dragast saman. Rannsóknarsetrið ætlar að hluti skýringarinnar sé aukin netverslun frá útlöndum auk þess sem sterkar vísbendingar séu um að landsmenn kaupi stóran hluta fata þegar þeir ferðast til útlanda. Velta fataverslana var 12,4 prósent minni í febrúar en í sama mánuði í fyrra, en á þessu tólf mánaða tímabili lækkaði verð á fötum um 7,3 prósent. Þetta á hins vegar ekki við um skóverslun því hún jókst um 23,7 prósent í febrúar. Verð á skóm í síðasta mánuði var 6,1 prósent lægra en í sama mánuði í fyrra.
Mest lesið Fær 9,5 fyrir IKEA og JYSK samsetningar Atvinnulíf Þegar svona sprengja springur vill allur vinnustaðurinn „fá allt á hreint“ Atvinnulíf Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Viðskipti innlent Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Viðskipti innlent Paramount og Warner Bros. heyra brátt sögunni til Viðskipti erlent Klíníkin sótti 300 milljónir króna Viðskipti innlent Fréttamaður missti af strætónum til baka Neytendur Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Viðskipti innlent 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Viðskipti innlent G7 setja hundrað milljón tunnur á markaðinn Viðskipti erlent Fleiri fréttir Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Verðbólga ekki meiri í tvö ár Högnuðust um milljarð Rúmlega tuttugu sagt upp hjá ÍAV Hannes Þór, Hannes Þór og Allan greiða sér 100 milljónir í arð Uppsagnir í Arion banka Sjá meira