Aukin fjárfesting erlenda sjóða í ríkisskuldabréfum Kristinn Ingi Jónsson skrifar 25. október 2017 09:00 Það sem af er ári nemur bindiskylt fjármagnsinnflæði rúmlega 26 milljörðum króna. vísir/daníel
Innflæði fjármagns vegna nýfjárfestinga erlendra aðila í ríkisskuldabréfum nam 8,5 milljörðum króna á þriðja fjórðungi ársins. Til samanburðar var innflæðið 7 milljarðar á öðrum ársfjórðungi. Þetta kemur fram í tölum sem birtust í nýrri fjármálastöðugleikaskýrslu Seðlabanka Íslands í síðustu viku. Eins og kunnugt er hófst fjármagnsinnflæði í ríkisskuldabréf, vegna fjárfestinga erlendra aðila, á nýjan leik í apríl síðastliðnum eftir að það stöðvaðist alfarið þegar Seðlabankinn virkjaði sérstakt fjárstreymistæki í júní 2016. Var þá kveðið á um að 40 prósent af innflæði fjármagns vegna fjárfestinga í skuldabréfum þyrfti að binda í eitt ár á núll prósent vöxtum. Í skýrslu Seðlabankans er tekið fram að umrædd bindiskylda dragi úr ávöxtun fjárfestinga og að áhrif hennar séu meiri eftir því sem fjárfest er til skemmri tíma. Hún dragi þannig úr hvata til spákaupmennsku til skamms tíma. Segir Seðlabankinn að fjárfesting í ríkisskuldabréfum fyrir nýtt innstreymi erlends gjaldeyris, þrátt fyrir sérstöku bindiskylduna, kunni að benda til þess að um langtímafjárfesta sé að ræða. Það sem af er ári nemur bindiskylt fjármagnsinnflæði rúmlega 26 milljörðum króna, að sögn Seðlabankans, og eru um 40 prósent af þeirri fjárhæð bundin til eins árs á sérstökum fjárstreymisreikningum. Í skýrslu Seðlabankans er auk þess bent á að undanfarna mánuði hafi hrein erlend nýfjárfesting að mestu leyti farið í skráð hlutabréf og sé ekki háð sérstöku bindiskyldunni. Í tölum bankans kemur fram að innflæði í skráð hlutabréf hafi numið 8 milljörðum króna á þriðja fjórðungi ársins borið saman við 10,3 milljarða króna á öðrum ársfjórðungi.Greinin birtist fyrst í Markaðnum, fylgiriti Fréttablaðsins um viðskipti og fjármál.
Mest lesið Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Viðskipti innlent Dæmi um kolranga áætlun Skattsins Neytendur Þarf stundum að kalla á eiginkonuna „komdu að sofa ástin“ Atvinnulíf Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Viðskipti innlent Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Viðskipti innlent Úthluta rúmlega þrjátíu þúsund tonna loðnukvóta Viðskipti innlent Fullt af nýjum bílum hjá Toyota Samstarf Ákvörðunin á ábyrgð stjórnenda Icelandair en ekki flugmanna Viðskipti innlent Fleiri fréttir Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila „Biðröðin er löng“ Ákvörðunin á ábyrgð stjórnenda Icelandair en ekki flugmanna Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Bein útsending: Skattadagurinn 2026 „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Leggja til að Heiðar verði stjórnarformaður Íslandsbanka Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Kappahl og Newbie opna á Íslandi Verðbólguaukning vegna vörugjalda: „Þetta er nú nokkuð meira en við gerðum ráð fyrir“ Vélfagsmálið beint í Hæstarétt Hulda til Basalt arkitekta Hvernig bæti ég fjárhagslegt öryggi þegar ég verð eldri? Úr útvarpinu í orkumálin Spá verulega aukinni verðbólgu vegna breytinga Skipta um forstjóra hjá Origo Segir komið í veg fyrir að starfsmenn Vélfags fái greitt Úthluta rúmlega þrjátíu þúsund tonna loðnukvóta Íslendingar aldrei farið í fleiri utanlandsferðir Eldur segir Bandaríkjastjórn íhuga fjárfestingu og Amaroq tekur stökk S4S-veldið tekur við Lindex Nýr íslenskur rekstraraðili tekur við Lindex Sjá meira