Medis verðlaunað í Frankfurt Atli Ísleifsson skrifar 25. október 2017 08:52 Starfsfólk Medis tók á móti verðlaununum við athöfn í Frankfurt í Þýskalandi sem fór fram í tengslum við stærstu lyfjaráðstefnu heims, CPh. medis
Lyfjafyrirtækið Medis hlaut í gærkvöldi verðlaun sem lyfjafyrirtæki ársins á EMEA-svæðinu svokallaða á vettvangi sem ber heitið Global Generics & Biosimilars Awards. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Medis. „Fyrirtækið hafði fyrr í haust verið tilnefnt í flokkunum Lyfjafyrirtæki ársins sem og Lyfjafyrirtæki ársins á EMEA-svæðinu (fyrirtæki með höfuðstöðvar í Evrópu, Mið-Austurlöndum og Afríku). Starfsfólk Medis tók á móti verðlaununum við athöfn í Frankfurt í Þýskalandi sem fór fram í tengslum við stærstu lyfjaráðstefnu heims, CPhI (Convention on Pharmaceutical Ingredients), sem fer fram þar í borg um þessar mundir. Verðlaunin eru veitt árlega af lyfjatímaritinu Generics Bulletin og samstarfsaðilum þess í tengslum við þessa stóru sýningu. Flest lyfjafyrirtæki heims, ásamt þjónustu- og framleiðslufyrirtækjum sem tengjast iðnaðinum, taka þátt í ráðstefnunni sem telur ríflega 42.000 gesti í ár og 2.400 sýnendur frá 153 löndum. Alls voru afhent verðlaun í fjórtán flokkum þetta kvöld fyrir framúrskarandi árangur á sviði lyfjaiðnaðarins á árinu, þar sem dómnefnd skipuð sérfræðingum metur þætti eins og afkomu, stjórnunarhætti, aðgerðir á markaði, markaðssetningu á vörum, skráningu, einkaleyfi og ýmsa fleiri þætti í starfsemi fyrirtækjanna sem voru tilnefnd á ári sem hefur almennt verið krefjandi fyrir lyfjafyrirtæki um allan heim. Medis var áður hluti af Actavis en er nú að fullu í eigu Teva Pharmaceutical Industries Ltd (NYSE og TASE: TEVA) sem keypti samheitalyfjahluta Actavis, Actavis Genercis, ásamt Medis á síðasta ári. Höfuðstöðvar fyrirtækisins eru í Hafnarfirði og alls vinna um 120 manns hjá Medis í átta löndum,“ segir í tilkynningunni.
Mest lesið Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Viðskipti innlent Fréttamaður missti af strætónum til baka Neytendur Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Viðskipti innlent Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag Viðskipti innlent Þegar svona sprengja springur vill allur vinnustaðurinn „fá allt á hreint“ Atvinnulíf 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Viðskipti innlent „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Viðskipti innlent Gapti þegar hún sá heimilisbókhaldið hjá Röggu nagla Neytendur Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Viðskipti innlent Klíníkin sótti 300 milljónir króna Viðskipti innlent Fleiri fréttir Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Verðbólga ekki meiri í tvö ár Högnuðust um milljarð Rúmlega tuttugu sagt upp hjá ÍAV Hannes Þór, Hannes Þór og Allan greiða sér 100 milljónir í arð Uppsagnir í Arion banka Sjá meira