Kaffipokar fá nýtt líf Sigríður Inga Sigurðardóttir skrifar 25. október 2017 12:00 Astrid hefur alla tíð haft mikinn áhuga á handavinnu og virðist allt leika í höndunum á henni.
Ég endurnýti notaða kaffipoka, þeir eru þvegnir og klipptir í renninga sem ég skáflétta svo úr verður taska eða karfa,“ segir Astrid Björk Eiríksdóttir brosandi. „Ég vel kaffipoka sem fara vel saman hvað varðar lit og áferð. Eina hættan er sú að maður kaupi kaffi eftir því í hvernig pokum það er, en ekki eftir bragðinu,“ segir hún hlæjandi og bætir við að hingað til hafi ekki verið mikið vandamál að fá kaffipoka til að flétta úr. „Ég drekk heilmikið kaffi sjálf en fólk hefur einnig boðið mér kaffipoka og þetta safnast einhvern veginn saman.“Taska úr kaffipokum. MYNDir/EYÞÓRTöskur úr kaffipokum eru bæði slitsterkar og léttar, að sögn Astridar, og endast vel. „Ég fléttaði stóra tösku fyrir tveimur árum og nota hana oft þegar ég fer út í búð. Hún hefur reynst afbragðsvel og það er tilvalið að nota hana í staðinn fyrir plastpoka. Mér finnst líka gaman að flétta litlar buddur og töskur og hef áhuga á að þróa það áfram.“Kaffipokar verða að hátísku í meðförum Astridar.Fléttað úr birkiberki Astrid er ekki alveg ókunnug handverki af þessu tagi. Svíþjóð hefur um árabil verið hennar annað heimili og þar í landi er löng hefð fyrir því að flétta muni á borð við körfur og skó úr birkiberki. „Sú aðferð er ekki ólík þeirri sem ég nota við að flétta úr kaffipokum. Finnsk vinkona mín kenndi mér þessa aðferð og þetta hefur þróast þannig að ég kenni grunnnámskeið í skáfléttun hjá Heimilisiðnaðarskóla Íslands.“ Áhugi Astridar á handavinnu kviknaði strax í æsku og hún var aðeins fjögurra ára þegar hún lærði að prjóna. „Það kom þannig til að mamma var að prjóna lopapeysu og mig langaði til að gera eins og hún og það leið ekki á löngu þar til ég var búin að prjóna teppi í dúkkuhúsið mitt. Á sumrin fór ég til Svíþjóðar til afa og ömmu og þar voru engir krakkar til að leika við en amma var dugleg að hjálpa mér við að prjóna peysur og ýmsa aðra handavinnu svo ég hafði nóg fyrir stafni. Ég hlakkaði alltaf til handavinnutímanna í grunnskóla og bókstaflega lifði fyrir þá tíma,“ rifjar Astrid upp.Skart sem er gert með orkeringu.Endurvakti orkeringu Á unglingsárunum lærði Astrid orkeringu en það er gamalt handverk sem tilheyrir íslenska þjóðbúningnum og var um tíma við það að deyja út. „Þegar ég var komin í gaggó langaði mömmu að kenna mér að orkera en hún hafði lært það í sínum heimabæ, Vík í Mýrdal. Orkering er í raun nokkuð flókið handverk en um leið og ég náði góðum tökum á að orkera fannst mér það auðvelt og ekki síður skemmtilegt. Ég fór á fullt að orkera blúndur og seldi til þeirra sem voru að sauma sér peysuföt. Svo var ég beðin um að kenna orkeringu við Heimilisiðnaðarskólann og ákvað að slá til og hef nú haldið námskeið í nokkur ár,“ segir Astrid. „Mér finnst gaman að halda þessu gamla handverki við og hef þróað það áfram og bý líka til skart með þessari aðferð.“ Þegar Astrid er spurð hvort hún selji töskurnar eða skartið sem hún gerir svo listilega vel segir hún svo ekki vera. „Ekki enn þá en það er aldrei að vita hvað verður í framtíðinni,“ segir hún sposk að lokum. Nánari upplýsingar um skáfléttun á kaffibokum má fá á vefsíðu Heimilisiðnaðarfélags Íslands, www.heimilisidnadur.is Í kvöld hefst námskeið með Astrid. Astrid lærði orkeringu þegar hún var unglingur.
Mest lesið „Af hverju er ég að leita í eitthvað svona ljótt?“ Lífið Óresteia og Lína sigursælust á Grímunni Menning Stjörnulífið: Berir að ofan í brúðkaupi Lífið „Þetta er búið að vera eins og einhver brandari“ Bíó og sjónvarp Gói Sportrönd og Tinna selja í Hveragerði Lífið Frumkvöðull selur elegant íbúð í 101 Lífið Nálægðin við dauðann gjörbreytti ferlinum Lífið Móðurhlutverkið næst á dagskrá hjá Þóreyju Lífið Óhefðbundið leynivopn Helgu Sigrúnar Lífið Kveðjustund í ráðhúsinu Lífið Fleiri fréttir „Af hverju er ég að leita í eitthvað svona ljótt?“ Frumkvöðull selur elegant íbúð í 101 Kveðjustund í ráðhúsinu Þegar yfirvöld gengust við fljúgandi furðuhlutum Óhefðbundið leynivopn Helgu Sigrúnar Nálægðin við dauðann gjörbreytti ferlinum Gói Sportrönd og Tinna selja í Hveragerði Móðurhlutverkið næst á dagskrá hjá Þóreyju Stjörnulífið: Berir að ofan í brúðkaupi Stórstjörnur tróðu upp í útskriftarveislum Verzlinga Áslaug lék eftir útskriftarpósu móður sinnar Draumabrúðkaup Gerðar við Garda-vatn Stjúpur og fjólur það heitasta Þeir lofuðu rokki en afhentu rækjusamloku á Þingvöllum „Formaður Sjálfstæðisflokksins átti eflaust flott úr“ Sagt að drulla sér heim þegar hún ætlaði að kjósa í fyrsta sinn Krakkatía vikunnar: Bein, Grettir og gúrkutíð Grafinn í sand í sólarhring Fréttatía vikunnar: Eldur, Karl III og Þjóðhátíð „Við erum bara tvö eftir“ Afi snýr aftur á litla sviði Þjóðleikhússins Allir fárveikir eftir tónlistarmyndband Helgi Björns og Ragga Gísla ætla að trylla lýðinn með tali og tónum „Ég viðurkenni alveg að ég mun sakna Tenerife“ Tilkynntu óvart dauða konungsins „Ógeðslega flókinn tími í lífi fólks“ Ætla valdasjúkir tækifærissinnar að steypa okkur í glötun? Hvað veistu um... flugvelli? Vignir Vatnar opnar sig um sjálfsvígshugsanir Lygilega erfið þrautabraut Sjá meira