Svipmynd Markaðarins: Ein besta ákvörðunin að fara í kór Sæunn Gísladóttir skrifar 8. maí 2017 09:00 Gunnar Þór Pétursson tók á dögunum við nýju starfi í Brussel. Vísir/GVA
Gunnar Þór Pétursson tók við starfi framkvæmdastjóra hjá Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) í Brussel þann 1. maí síðastliðinn. Hann fer þá í leyfi frá störfum sem prófessor við lagadeild Háskólans í Reykjavík. Hann hefur undanfarin ár verið í kór Lindakirkju undir stjórn Óskars Einarssonar, og segir það eina bestu ákvörðun sem hann hefur tekið að taka þátt í því starfi. Gunnar Þór ólst upp á Suðureyri við Súgandafjörð og í Árbænum. Hann lauk grunnskólaprófi frá Árbæjarskóla og stúdentsprófi frá Verzlunarskóla Íslands. Gunnar Þór lauk prófi í lögfræði frá HÍ 1997. Hann er með L.LM. gráðu í Evrópurétti frá lagadeild Háskólans í Lundi og lauk einnig doktorsprófi í lögum þaðan árið 2014. Gunnar Þór hefur áður starfað hjá Eftirlitsstofnun EFTA, verið lögmaður hjá Logos lögmannsstofu og var lögfræðingur Actavis Group 2005 til 2008. Hann hefur verið í fullu starfi hjá Háskólanum í Reykjavík frá árinu 2008.Hvað hefur komið þér mest á óvart það sem af er ári? Það var margt óvænt sem gerðist á sl. ári, í þjóðmálunum og á alþjóðavettvangi, sem enn hefur ekki verið toppað á þessu ári, sem betur fer. Af öðru mikilvægu, þá finnst mér úrslitakeppnin í körfunni hafa verið ótrúlega góð og gæðin hafa reyndar komið mér á óvart. Góð blanda af góðum erlendum og íslenskum leikmönnum.Hvaða app notarðu mest? Æ, vildi að ég gæti sagt eitthvað gáfulegt, en ætli það sé ekki mest Facebook – annars nota ég Spotify mjög mikið, er oft með tónlist í gangi og hef gaman af því að hlusta á tónlist, ekki síst að kynnast nýju efni og tónlistarfólki.Hvað gerir þú í frístundum þínum? Hef undanfarin ár verið í kór Lindakirkju undir stjórn Óskars Einarssonar, sem er ein besta ákvörðun sem ég hef tekið. Virkilega endurnærandi og góð tilbreyting. Kórinn syngur í öllum messum, en hefur líka verið duglegur að koma fram, m.a. verið þátttakandi í uppfærslu Jesus Christ Superstar undanfarið í Hörpu og Hofi. Er að eigin mati ekkert sérstakur söngvari, en finnst ég hljóma ótrúlega vel þegar ég syng með kórnum. Þar fyrir utan eru gönguferðir á lág- og hálendi með minni ástkæru eiginkonu og/eða í góðum hópi vina og fjölskyldu ofarlega á lista.Hvernig heldur þú þér í formi? Ég er sæmilega duglegur í crossfit og hlaupum. Það er góð blanda, hægt að hugsa margt á hlaupunum og kom sjálfum mér á óvart með að klára eitt maraþon og nokkur hálf. Crossfit er frábær alhliða hreyfing sem passar mér vel. Lagði golfsettinu fyrir sex árum eftir skamman og tilþrifalítinn feril. Gæti samt hugsað mér að taka kylfurnar fram aftur ef áskoranir berast.Hvernig tónlist hlustar þú á? Ég er ekki alæta á tónlist, en hlusta þó á frekar fjölbreytt efni. Rokk, fusion djass, gospel og smá klassík er það helsta. Finnst líka mjög gaman að hlusta á nýja íslenska tónlist, er t.d. að hlusta á Júníus Meyvant þessa dagana.Ertu í þínu draumastarfi? Er í draumastarfi og á leið í draumastarf – hvernig hljómar það? Búinn að vera í akademíunni sl. níu ár. Það hefur verið góður tími. Mér finnst mjög gaman að kenna – sérstaklega þegar mér tekst að kveikja neista hjá nemendum (það gerist!). Ég hef líka verið töluvert í erlendu rannsóknarsamstarfi sem hefur opnað margar dyr. Nýja starfið felur í sér góða blöndu af stjórnun og lögfræði, á sviði sem ég þekki vel og ég er spenntur fyrir þeirri tilbreytingu.
Mest lesið Þegar svona sprengja springur vill allur vinnustaðurinn „fá allt á hreint“ Atvinnulíf Fær 9,5 fyrir IKEA og JYSK samsetningar Atvinnulíf Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Viðskipti innlent Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Viðskipti innlent Paramount og Warner Bros. heyra brátt sögunni til Viðskipti erlent Fréttamaður missti af strætónum til baka Neytendur Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Viðskipti innlent Klíníkin sótti 300 milljónir króna Viðskipti innlent 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Viðskipti innlent G7 setja hundrað milljón tunnur á markaðinn Viðskipti erlent Fleiri fréttir Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Verðbólga ekki meiri í tvö ár Högnuðust um milljarð Rúmlega tuttugu sagt upp hjá ÍAV Hannes Þór, Hannes Þór og Allan greiða sér 100 milljónir í arð Uppsagnir í Arion banka Sjá meira