Kosið í stjórn Íslenska viðskiptaráðsins í Japan Daníel Freyr Birkisson skrifar 21. desember 2017 10:09 Frá aðalfundinum þann 7. desember síðastliðinn. sendiráð íslands í tókýó
Kosið var í stjórn Íslenska viðskiptaráðsins í Japan á aðalfundi þann 7. desember síðastliðinn. Bolli Thoroddsen framkvæmdastjóri Takanawa Japan K.K. var endurkjörinn formaður, Manabu Fukuda stjórnarmaður Fulbright sjóðsins í Japan var kjörinn varaformaður og Halldór Elís Ólafsson viðskiptafulltrúi sendiráðs Íslands í Japan, var skipaður aðalritari. Aðrir stjórnarmenn sem kosnir voru eru Akiko Hasegawa, fyrrv. viðskiptafulltrúi íslenska sendiráðsins í Japan, Hirotaka Ueno, forstjóri Cross Alliance Group, Kenta Inaba framkvæmdastjóri COAST Corporation, umboðsaðila Hampiðjunnar í Japan, Kaoru Nozu aðalfulltrúi Takanawa Pharamceutical og Shoko Nireki framkvæmdastjóri Össur Japan. Fundurinn fór fram í sendiráði Íslands í Tókýó, en sendiráðið hefur umsjón með starfi ráðsins. Heiðursformaður ráðsins er Hannes Heimisson, sendiherra Íslands í Japan. Í tilkynningunni segir að ráðið fagni fyrirhugaðri undirritun tvísköttunarsamnings Íslands og Japans. „Viðskiptaráðið fagnar ráðgerðri undirritun tvísköttunarsamnings Íslands og Japans í janúar á næsta ári en ráðið hefur undanfarin ár beitt sér fyrir því að Ísland og Japan hefji viðræður um samninga sem snúa að fríverslun, tvísköttun, loftferðum og gagnkvæmum tímabundnum atvinnuréttindindum.“ Ráðið var stofnað árið 2003 í því skyni að stuðla að auknum viðskiptum milli Íslands og Japans. Íslenska viðskiptaráðið er auk íslenska sendiráðsins helsti fulltrúi íslenskra viðskiptahagsmuna í Japan. Viðskiptaráðið mun starfa eins og kostur er með japanska viðskiptaráðinu á Íslandi og sendiráði Íslands í Japan við að efla viðskipta- og fjárfestingaumhverfi fyrir íslensk fyrirtæki í Japan. Viðskiptaráðið starfar einnig náið með öðrum erlendum viðskiptaráðum í Japan og er meðlimur Evrópska viðskiptaráðsins í Japan.
Mest lesið Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Viðskipti innlent Fréttamaður missti af strætónum til baka Neytendur Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Viðskipti innlent Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag Viðskipti innlent „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Viðskipti innlent 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Viðskipti innlent Þegar svona sprengja springur vill allur vinnustaðurinn „fá allt á hreint“ Atvinnulíf Gapti þegar hún sá heimilisbókhaldið hjá Röggu nagla Neytendur Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Viðskipti innlent Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Verðbólga ekki meiri í tvö ár Högnuðust um milljarð Rúmlega tuttugu sagt upp hjá ÍAV Hannes Þór, Hannes Þór og Allan greiða sér 100 milljónir í arð Uppsagnir í Arion banka Sjá meira