Fjárfestingin í kísilveri United Silicon verstu viðskipti ársins Kristinn Ingi Jónsson skrifar 27. desember 2017 07:00 "Þegar er búið að afskrifa 5 milljarða, það á eftir að afskrifa marga til viðbótar og eigandinn tapar 200 milljónum króna á mánuði á verksmiðju sem er ekki í rekstri,“ segir einn álitsgjafi um fjárfestingu Arion banka í kísilveri United Silicon. Vísir/Anton Brink
Fjárfesting Arion banka og lífeyrissjóða, þar af þriggja sjóða í stýringu bankans, í kísilverksmiðju United Silicon í Helguvík fær þann vafasama heiður að vera verstu viðskipti ársins 2017 að mati dómnefndar Fréttablaðsins, Stöðvar 2 og Vísis. „Þetta eru ekki bara verstu viðskipti ársins heldur mesti skandallinn frá fjármálahruninu. Ég vona innilega að þeir sem bera ábyrgð á fjárfestingum í þessu ágæta verkefni líti í eigin barm, axli ábyrgð gagnvart sjálfum sér og finni sér eitthvað annað að gera en að fjárfesta fyrir annarra manna fé,“ segir einn dómnefndarmaður Markaðarins. Annar segir útskýringar á valinu óþarfar: „Þetta hlýtur að vera óumdeilt og skýrir sig sjálft.“ Enn einn segir stein ekki hafa staðið yfir steini. „Það er engu líkara en að menn hafi verið blindaðir af að klára dílinn. Viðvörunarflögg, sem eru augljós eftir á, voru virt að vettugi.“ Einn úr dómnefndinni bendir á að saga kísilversins hafi verið samfelld sorgarsaga. „Kísilverið átti að vera það stærsta í heiminum en eftir stendur – nú rúmum þremur árum eftir að fyrsta skóflustungan var tekin – að Arion banki og þrír lífeyrissjóðir í stýringu bankans hafa þurft að taka á sig níðþungt fjárhagslegt högg vegna eintómra vandræða kísilversins. Ábyrgð Arion banka, sem aðalfjárfestis kísilversins, er þung,“ segir sá hinn sami.Allt á afturfótunum Eins og kunnugt er hefur verið slökkt á ofni verksmiðjunnar og framleiðsla legið niðri frá því í lok ágústmánaðar þegar Umhverfisstofnun ákvað að stöðva starfsemi kísilversins. Ríflega eitt ár er síðan verksmiðjan var ræst en frá þeim tíma hefur hvorki gengið né rekið. Tvívegis hefur komið upp eldur í verksmiðjunni og þá hafa hundruð kvartana borist Umhverfisstofnun vegna lyktarmengunar frá kísilverinu. Verksmiðjan fékk heimild til greiðslustöðvunar um miðjan ágústmánuð en hún gildir til 22. janúar. Gert er ráð fyrir því að það taki einhverja mánuði að koma verksmiðjunni í þannig stand að hægt verði að hefja þar framleiðslu á kísilmálmi. Arion banki, sem er stærsti hluthafi kísilversins og var í ofanálag alltumlykjandi í fjármögnun hennar, hefur sagt að það þurfi að leggja til „verulega fjármuni“ til að fullklára verksmiðjuna en samkvæmt heimildum Markaðarins hleypur sú upphæð á milljörðum króna. Ekki er útilokað að United Silicon verði sett í þrot þegar greiðslustöðvunartímabili félagsins lýkur.Magnús Garðarsson er stofnandi og fyrrverandi forstjóri United Silicon.Vísir/EyþórBankinn hefur þegar afskrifað 4,8 milljarða króna af lánveitingu sinni til kísilversins, en útistandandi skuldbinding nemur um 5,4 milljörðum sem eru um 2,4 prósent af eigin fé bankans. Greint var frá því í Markaðinum í nóvember að kostnaður vegna reksturs United Silicon hafi að jafnaði numið í kringum 200 milljónir króna í hverjum mánuði frá því að kísilverið fékk heimild til greiðslustöðvunar. Þrír lífeyrissjóðir í stýringu bankans – Frjálsi lífeyrissjóðurinn, Eftirlaunasjóður Félags íslenskra atvinnuflugmanna og Lífeyrissjóður starfsmanna Búnaðarbanka Íslands – fjárfestu auk þess í kísilverinu fyrir alls 1.375 milljónir króna og þá hefur Festa lífeyrissjóður fært niður 875 milljóna króna fjárfestingu sína. Arion banki kærði Magnús Garðarsson, fyrrverandi forstjóra og stofnanda United Silicon, til héraðssaksóknara í haust vegna gruns um refsiverða háttsemi. Magnús hefur mótmælt þeim ásökunum og sagt þær „rangar og tilhæfulausar“.„Algjörlega skelfilegt“ „Ég skil ekki hvernig ákvörðunin um að fara alla leið með lánveitingu, fjárfestingu og sjóði í stýringu inn í eitt og sama verkefnið gengur upp innan við tíu árum eftir hrun,“ segir einn úr dómnefnd Markaðarins og bætir við: „Þetta er andhverfa þess sem lærðist í bankahruninu. Það er svo margt sem lítur út fyrir að vera brotið í ferlinu og ekki hjálpa meint svik forstjórans til.“ „Þetta eru algjörlega skelfileg viðskipti, bæði fyrir fjárfesta sem lögðu fram eigið fé og bankann sem tapaði lánsfénu,“ nefnir annar. „Þetta eru verstu viðskipti ársins og áratugarins,“ segir enn einn álitsgjafi. „Þegar er búið að afskrifa 5 milljarða, það á eftir að afskrifa marga til viðbótar og eigandinn tapar 200 milljónum króna á mánuði á verksmiðju sem er ekki í rekstri.“ Fréttin birtist fyrst í Markaðinum, fylgiriti Fréttablaðsins um viðskipti og efnahagsmál.
Mest lesið Fór yfir breytingarnar sem verði ekki allar þægilegar fyrir starfsfólk Viðskipti innlent Fær endurgreiðslu þar sem sjónvarpið í herberginu virkaði ekki Neytendur Framkvæmdastjórar kveðja og sviðum stokkað upp Viðskipti innlent Dældi dísil á bensínbíl en fær kostnaðinn endurgreiddan Neytendur Algengustu og neyðarlegustu mistökin í tölvupóstum Atvinnulíf Kristín nýr framkvæmdastjóri Eflu Viðskipti innlent Stefán stefnir á opnun fyrir jól: „Þetta verður bullandi stemning“ Viðskipti innlent Sýnishornið of ólíkt borðplötunni sem skilaði sér heim Neytendur Sammála um aukna verðbólgu í september Viðskipti innlent Tekur við stöðu framkvæmdastjóra LÍS Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fór yfir breytingarnar sem verði ekki allar þægilegar fyrir starfsfólk Framkvæmdastjórar kveðja og sviðum stokkað upp Sammála um aukna verðbólgu í september Tekur við stöðu framkvæmdastjóra LÍS Kristín nýr framkvæmdastjóri Eflu Taka tvær Airbus-þotur til á leigu Stefán stefnir á opnun fyrir jól: „Þetta verður bullandi stemning“ Vilja selja Landsbankann Lísbet nýr lögfræðingur Viðskiptaráðs Ráðin forstöðumaður Trygginga hjá Landsbankanum Samdráttur hafinn í byggingariðnaði sem skapi efnahagslegan vítahring Yrði fljótt kvíðinn með aleiguna í Bitcoin Kormákur og Skjöldur yfirgefa Leifsstöð Egill Örn inn fyrir Stefán hjá Solid Clouds Nýtti glugga þegar hann opnaðist og þurfti ekki að kaupa fyrirtækið til baka Breytingar á tollskrá megi ekki grafa undan íslenskri framleiðslu Matvöruverslanir kattslakar en lyfjarisi fylgist grannt með Stofnar einkahlutafélagið Uppselt ehf. Lítið fékkst upp í háar kröfur í bú Blackbox Bein útsending: Borgar sig að vanmeta menntun? Breytir tollflokkun pitsaosts eftir allt saman Ueno snýr aftur og Haraldur framkvæmdastjóri „Hvert á ég að ráðstafa séreigninni?“ „Óhóflegt gjald“ fyrir símanotkun í Bretlandi heyri fljótt sögunni til Elín Tinna nýr framkvæmdastjóri 66°Norður á Íslandi Heiðrún Lind kaupir í Sýn Ráðin forstöðukona markaðsmála hjá Olís Eldri stjórnendur sætti sig oftar við slæma hegðun og frammistöðu Farþegum til Íslands fjölgaði um 21 prósent Ekkert tillit tekið til aðstæðna og ljóst að vöruúrval minnki Sjá meira