Glimmer og gljáandi litir 28. desember 2017 14:00 Þórunn farðaði Önna Láru Orlowska, Miss World Iceland 2016. Glimmer og jarðlitir eru áberandi. MYND/EYÞÓR
Áramótaförðunin einkennist af glimmeri, gljáandi augnskuggum og fallegum varalitum, að sögn Þórunnar Maríu Gizurardóttur. Hún farðaði Önnu Láru Orlowska með nýjustu tískulitunum. „Smekkur fólks á förðun er auðvitað mjög fjölbreyttur en um áramót er glimmer, glans og glamúr alltaf áberandi, Mér finnst rauður varalitur bæði fallegur og sígildur. Sjálf er ég mikið fyrir fjólubrúna varaliti eða liti í þeim dúr. Þeir fara flestum vel og draga fram bros og svipbrigði. Augnskuggar í jarðtónum, t.d. brúnir og vínrauðir, koma vel út í skyggingu í ytri augnkrók,“ segir Þórunn María Gizurardóttir förðunarfræðingur um áramótaförðunina 2017. Þórunn María hafði lengi haft áhuga á förðun og fikraði sig áfram í listinni með því að fylgjast með förðun á samfélagsmiðlum og á YouTube. „Ég ákvað svo að skrá mig á námskeið í Reykjavík Makeup School í janúar í fyrra og útskrifaðist þaðan í júlí sama ár, með diplóma í förðunarfræði. Þetta var frábær tími og ég eignaðist margar góðar vinkonur í náminu. Ég hef fengið fullt af flottum tækifærum eftir útskrift, ég farðaði t.d. keppendur í Ungfrú Ísland bæði 2016 og 2017 og það var mjög skemmtileg reynsla,“ segir hún.Byrja á augnsvæðinuMargar konur fara í förðun fyrir áramótagleðina en flestar mála sig sjálfar. Spurð um ráð varðandi förðun segist Þórunn María mæla með því að byrja að mála sig í kringum augun. „Sérstaklega ef þú ætlar að nota augnskugga því þeir eiga til að dreifast á húðina undir augunum þegar þeim er blandað út með bursta. Mín rútína varðandi förðun er þannig að ég byrja á að setja á mig gott rakakrem og farðagrunn. Síðan móta ég augabrúnirnar og set á mig augnskugga. Ég dusta burt augnskuggann sem dreifist undir augun áður en ég ber farða á húðina. Síðan set ég gerviaugnhárin á og enda á vörunum.“Tískan á samfélagsmiðlumÞórunn María fylgist vel með nýjustu tísku í förðun, ekki síst á samfélagsmiðlunum. „Flestir af virtustu förðunarfræðingunum eru bæði með Instagram og Snapchat og leyfa fólki að fylgjast með sér á þeim miðlum. Síðan finnst mér gaman að kíkja í tískublöð af og til og fæ gjarnan hugmyndir þaðan. Ég og Sara, annar eigandi Reykjavík Makeup School, sáum einmitt um förðun og hár fyrir tímaritið Nýtt Líf á seinasta ári en ég fékk mikinn innblástur þaðan til dæmis um „fashion“ förðun.“ Hægt er að fylgjast með Þórunni Maríu á Instagram undir nafninu thorunnmariamua.
Mest lesið Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Lífið Funheit í fimm ára afmæli Lífið Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Lífið Elegant herrar selja perlu í 101 Lífið Guðmundur Pétursson hlaut Gullnöglina Tónlist Hvað veistu um... íslenska hönnun? Lífið Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Lífið Stjörnulífið: „Lukka lífs míns að vera gift þessum“ Lífið Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs Lífið Hrútar orðnir að kóreskum kálfum Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Hvað veistu um... íslenska hönnun? Funheit í fimm ára afmæli Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs Tendra friðarsúluna í tuttugasta sinn Elegant herrar selja perlu í 101 Tískudrottningar fögnuðu kærkominni opnun Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Stjörnulífið: „Lukka lífs míns að vera gift þessum“ Fæddist á Íslandi en þurfti áratugi til að fá það staðfest Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Ástæða fyrir því að þau fóru ekki hátt með sambandið Hágrét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn Krakkatía vikunnar: Eurovision, Harry Potter og Mr. Beast Líður betur eftir að hún þurfti að þjóta upp á spítala í miðri útsendingu Haustbingó Blökastsins í beinni Hemmi Gunn hjálpaði Hilmari og Birni Braga að svindla Segir Ríkissjónvarpið bregða fyrir sig fæti Unglingavinnan var tískupallurinn í París „Hún byrjaði alla daga á því að fara í kirkjugarðinn í Fossvogi“ Fréttatía vikunnar: Jesus, Haaland og Prettyboitjokkó Neitar að hafa haldið fram hjá Lönu del Rey Ice Spice fór á klósettið á OTO „Ef það er ekki erfitt þá er það ekki þess virði“ Auglýsing fyrir Bleiku slaufuna frumsýnd á Vísi og Sýn Minnkaði áfengisneysluna og kílóin fylgdu með Nálgunarbann á hendur Berry eftir ásakanir um að taka soninn hálstaki Útkall vegna heimilisofbeldis reyndist vera kynlífslæti Sjá meira