Glamour

Þetta verða trendin 2018 samkvæmt Pinterest

Ritstjórn skrifar
Glamour/Getty
Samfélagsmiðillinn vinsæli Pinterest hefur gefið úr sína tískuspá fyrir árið 2018 en spánna gera þau útfrá því hvernig myndir notendur eru helst að tengja við og setja inn á miðilinn. 

Það kennir ýmissa grasa inn á þessum trendlista, mörg trend sem er halda áfram frá síðasta ári en líka eitthvað um nýjungar. 

Alpahúfan

Svo sem ekki ný af nálinni en það má segja að þetta höfuðfat hafi átt goða endurkomu á seinni hluta þessa árs og mun greinilega strykja þá stöðu sína enn frekar á næsta ári. Það er eitthvað franska tískuhúsinu Dior að þakka sem skelltu alpahúfunni á tískupallinn á síðasta ári. Skemmtilegt enda fylgihlutur sem fer flestum. 

Lakkið 



Í buxum, jökkum og skóm. Þetta er efni verður áfram sterkt á næsta ári og það er sniðugt að fjárfesta í lakkflík fyrir næsta ár. 

Af tískupallinum hjá Alexander McQueen
Skreyttir skór

Nú eiga skórnir að stela senunni - skreyttir demöntum, perlum og útsaum. 

Klaufar

Hingað til hafa klaufar á kjólum og pilsum einungis átt heima á tískupöllunum en nú er annað upp á teninginn. 

Lógómanía



Nei, þetta trend er ekki að fara að kveðja. Því fleiri því betra - því stærra því betra. Við munum því að öllum líkindum halda áfram að merkja okkur í bak og fyrir á komandi ári. 

Bláar gallabuxur

Já, þetta er nú einfalt að leika eftir, eða hvað? Margir leita logandi ljósi að hinum fullkomnu bláu gallabuxum og sú leit mun standa yfir á næsta ári líka. Gott snið og hinn fullkomni milliblái litur. 

Víðar skálmar

Víðar stuttar buxnaskálmar hafa lengi reynt að troða sér inn á trendradarinn - er þeirra ár loksins komið? Allavega þægilegt trend. 

Síðir kjólar

Þetta kjólasnið kom aftur á síðasta ári eftir dágóða fjarveru og mun vinsældum síðra kjóla ekkert dala á næsta ári. Kvenlegt og fjölbreytilegt trend. 






×