Jól

Sparistellið og kisi með í bústaðinn

Sigríður Inga Sigurðardóttir skrifar
Kyrrð og friður einkennir jólin hjá Elsu Sif og fjölskyldu.
Kyrrð og friður einkennir jólin hjá Elsu Sif og fjölskyldu.

„Við héldum jól í sumarbústað í fyrsta sinn árið 2009. Árið áður vorum við í útlöndum á þessum tíma og fannst æðislegt að vera ekki heima á jólunum. Tengdaforeldrar mínir eiga sumarbústað sem við höfum aðgang að og við ákváðum að prófa að dvelja í honum yfir jólin. Það heppnaðist svo vel að við höfum haldið því áfram,“ segir Elsa Sif Guðmundsdóttir brosandi en hún er kennari við Lindaskóla.

„Það er dásamlegt að verja jólunum í Borgarfirðinum og njóta náttúrufegurðarinnar, sjá norðurljósin og slaka á.“ MYND/ERNIR

„Það árið fórum við af stað í bústaðinn á Þorláksmessu og tókum allt með okkur, svo sem sparistellið, jólamatinn, jólaskrautið, allar jólagjafirnar, sparifötin og köttinn okkar. Þegar komið var upp í Borgarfjörð fórum við út í skóg og felldum grenitré sem síðan var fallega skreytt. Í hádeginu á aðfangadag fórum við í Baulu og fengum þær fregnir að hefð væri fyrir því að þar væri skötuveisla á Þorláksmessu, sem við höfðum misst af. Við vorum þá þegar búin að ákveða að endurtaka leikinn að ári og fannst því tilvalið að bæta skötuveislu inn í dagskrána, sem við og gerðum. Undanfarin ár höfum við farið í kringum 20. desember og ekki með alveg eins mikið og við gerðum í fyrstu.“

Taka jólatréð með í bæinn

Jólamaturinn og jólagjafirnar eru að sjálfsögðu alltaf með í för og ávallt er farið út í skóg að höggva jólatré.

„Sú hefð hefur skapast að við borðum grjónagraut í hádeginu, dúllum okkur svo aðeins, förum síðan í heita pottinn sem er jólabaðið, klæðum okkur í sparifötin og borðum jólamatinn en við erum alltaf með hreindýr í matinn. Eftir matinn fara allir í náttfötin og það er varla farið úr þeim fram að heimför. Daginn fyrir gamlársdag höldum við heim á ný og við tökum jólatréð með okkur,“ segir Elsa Sif og hlær þegar hún er spurð hvort það sé ekki mikil fyrirhöfn. 

„Nei, alls ekki. Það er lítið mál,“ segir hún.

Jólin eru frítími fjölskyldunnar

Á annan í jólum koma góðir gestir í heimsókn en annars einkennast jólin af rólegheitum.

„Jólin eru okkar frítími. Birgir er tónlistarmaður og áður fyrr spilaði hann alltaf í messu á aðfangadag og jóladag en svo hætti hann því þannig að það varð möguleiki að fara að heiman. Ein jólin fórum við ekki í bústað sökum anna hjá honum í leikhúsinu. Það hefur líka komið fyrir að hann hafi skotist í bæinn að spila en við látum það ekki trufla okkur. Það er dásamlegt að verja jólunum í Borgarfirðinum og njóta náttúrufegurðarinnar, sjá norðurljósin og slaka á. Hjá okkur er ekki til neitt sem heitir jólastress,“ segir Elsa Sif.








×