Hækka lánshæfiseinkunn ríkissjóðs Íslands Anton Egilsson skrifar 8. desember 2017 21:57 Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra. Vísir/Anton brink
Bandaríska matsfyrirtækið Fitch Ratings tilkynnti í dag að það hefði hækkað lánshæfiseinkunn ríkissjóðs Íslands á langtímaskuldbindingum í innlendum og erlendum gjaldmiðli í „A“ úr „A-“. Þetta kemur fram fram í frétt á vef Stjórnarráðsins. Fram kemur að helstu drifkraftar að baki hækkuninni séu efnahagsstöðugleiki, batnandi ytri staða þjóðarbúsins og skuldalækkun hins opinbera ásamt öflugum hagvexti. Þá eru horfur fyrir einkunnina sagðar stöðugar. „Þetta eru ánægjulegar fréttir fyrir nýja ríkisstjórn. Hækkun lánshæfiseinkunnarinnar staðfestir trú sérfræðinga Fitch á styrk hagkerfisins og á þau markmið sem sett eru í sáttmála ríkisstjórnarinnar um að áfram verði hlúð að stöðugleika í efnahagsmálum,“ segir Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, en hækkun Fitch nú er fjórða hækkunin á lánshæfi ríkissjóðs á árinu 2017. Bjarni segir jafnframt að hækkunin muni hafa jákvæð áhrif á vaxtakostnað ríkisins og annarra aðila sem taka lán, þar með talið banka, orkufyrirtækja og annarra innlendra fyrirtækja, sem að lokum mun skila sér í bættum hag heimila.
Mest lesið Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Viðskipti innlent Fréttamaður missti af strætónum til baka Neytendur Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Viðskipti innlent Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag Viðskipti innlent „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Viðskipti innlent 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Viðskipti innlent Þegar svona sprengja springur vill allur vinnustaðurinn „fá allt á hreint“ Atvinnulíf Gapti þegar hún sá heimilisbókhaldið hjá Röggu nagla Neytendur Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Viðskipti innlent Klíníkin sótti 300 milljónir króna Viðskipti innlent Fleiri fréttir Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Verðbólga ekki meiri í tvö ár Högnuðust um milljarð Rúmlega tuttugu sagt upp hjá ÍAV Hannes Þór, Hannes Þór og Allan greiða sér 100 milljónir í arð Uppsagnir í Arion banka Sjá meira