Afkoma borgarinnar sjö milljarðar umfram áætlun Daníel Freyr Birkisson skrifar 30. nóvember 2017 12:19 Árshlutareikningur var afgreiddur í borgarráði í gær. Vísir/GVA
Rekstrarniðurstaða Reykjavíkurborgar í A- og B-hluta var jákvæð um 20,6 milljarða króna en áætlanir höfðu gert ráð fyrir jákvæðri niðurstöðu um tæplega 12,7 milljarða króna. Árshlutareikningur borgarinnar fyrir tímabilið janúar til september 2017 var afgreiddur í borgarráði í gær. Helstu ástæður fyrir betri afkomu má rekja til hærri tekjufærðra matsbreytinga fjárfestingaeigna Félagsbústaða hf. og lægri fjármagnsgjalda samstæðunnar vegna gangvirðisbreytinga innbyggðra afleiða í raforkusamningum hjá Orkuveitu. Rekstrarniðurstaða fyrir fjármagnsliði var jákvæð um rúmlega 18 milljarða króna sem er tæplega 2,3 milljörðum betri niðurstaða en áætlun gerði ráð fyrir.Eiginfjárhlutfall hækkar lítillegaHeildareignir samstæðunnar samkvæmt samanteknum efnahagsreikningi námu í árslok rúmlega 570 milljörðum króna, heildarskuldir ásamt skuldbindingum voru rúmlega 300 milljarðar og eigið fé var 264 milljaðar tæpir en þar af var hlutdeild meðeigenda 14,5 milljarðar tæpir. Eiginfjárhlutfall samstæðunnar fer hækkandi og er nú 46,3 prósent en var 45,8 prósent um síðustu áramót. Til A-hluta Reykjavíkurborgar telst starfsemi sem að hluta eða öllu leyti er fjármögnuð með skatttekjum. Um er að ræða Aðalsjóð, sem heldur utan um rekstur fagsviða, Eignasjóð og Bílastæðasjóð. Til B-hluta teljast fjárhagslega sjálfstæð fyrirtæki sem að hálfu eða meirihluta eru í eigu borgarinnar, en rekstur þeirra er að stofni til fjármagnaður með þjónustutekjum. Fyrirtækin eru: Orkuveita Reykjavíkur, Faxaflóahafnir sf., Félagsbústaðir hf., Íþrótta- og sýningahöllin hf., Malbikunarstöðin Höfði hf., Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins bs., Sorpa bs. og Strætó bs, auk Aflvaka hf og Jörundar ehf.
Mest lesið Uppsagnir hjá Fjársýslunni Viðskipti innlent Opnar stað í anda Kaffi Vest í Fossvoginum Viðskipti innlent „Fyrir löngu orðin að aðstoðarmanninum sem ég leitaði að í tólf ár“ Atvinnulíf Verðbólgan 4,1% og fer upp á milli mánaða Viðskipti innlent Guðný ráðin fræðslustjóri og Kristófer Orri í gjaldeyrismiðlun Viðskipti innlent Kostaði tvo milljarða að selja Íslandsbanka Viðskipti innlent Viðskiptavinurinn alltaf í fókus Samstarf Bein útsending: Framsýn forysta Viðskipti innlent Edda María leiðir stafræna markaðsþjónustu Vettvangs Viðskipti innlent Neyslan mikil og sjá ekki að stýrivextir fari hratt lækkandi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Edda María leiðir stafræna markaðsþjónustu Vettvangs Uppsagnir hjá Fjársýslunni Guðný ráðin fræðslustjóri og Kristófer Orri í gjaldeyrismiðlun Kostaði tvo milljarða að selja Íslandsbanka Verðbólgan 4,1% og fer upp á milli mánaða Bein útsending: Framsýn forysta Opnar stað í anda Kaffi Vest í Fossvoginum Neyslan mikil og sjá ekki að stýrivextir fari hratt lækkandi Sexfölduðu veltuna á einu ári Gjaldeyrisforðinn nálægt billjón króna Rúna nýr innkaupastjóri Banana Úr geimskipaútgerð til Faxaflóahafna Bein útsending: Kynna yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar Selur Alvogen í Bandaríkjunum með samruna sem skapar risa á lyfjamarkaði Óvissa á alþjóðavettvangi undirstrikar mikilvægi ríflegs gjaldeyrisforða SVEIT muni afhenda öll gögn og ekki greiða dagsektir SVEIT sleppi ekki við milljónasektir Bætist í eigendahóp Strategíu Guðrún til Landsbankans Hvernig fæ ég unglingana mína til að fara betur með peninga? „Það er betlmenning og allir eiga að fá allt frítt“ Vélfag stefnir ríkinu Meirihluti í SA andvígur ESB aðild Ráðinn nýr tækni- og þjónustustjóri Advania á Akureyri Syndis kaupir sænskt fyrirtæki Tveir nýir stjórnendur hjá Símanum Jóhann Páll hættir við þátttöku á haustfundi SVEIT Heimavöllur Aftureldingar kenndur við rafmyntafyrirtæki Ráðinn markaðsstjóri Emmessíss Hörður og Svala endurvekja Macland Sjá meira