Uppgjörið mun styðja við verð Eimskips Hörður Ægisson skrifar 23. nóvember 2017 07:00 Uppgjör Eimskips á þriðja ársfjórðungi, þar sem tekjur jukust um 32 prósent, var í samræmi við væntingar greinenda hagfræðideildar Landsbankans.
Uppgjör Eimskips á þriðja ársfjórðungi, þar sem tekjur jukust um 32 prósent, var í samræmi við væntingar greinenda hagfræðideildar Landsbankans. Fram kemur í viðbrögðum deildarinnar við uppgjörinu að jákvæðu þættirnir hafi verið lægri launakostnaður og góð innkoma nýrra flutningsmiðlunarfyrirtækja. Neikvæðu þættirnir hafi hins vegar legið í áætlunarsiglingum og áframhaldandi misvægi í innflutningi og útflutningi á helstu markaðssvæðum Eimskips. Hagfræðideildin telur þó að uppgjörið muni styðja við verð félagsins frekar en hitt. Samdráttur var í flutningum til Norður-Noregs og einnig í innflutningi til Færeyja. Þá jukust tekjur af flutningsmiðlun um 87 prósent og námu samtals 64,8 milljónum evra. Launakostnaður hækkaði um 10,7 prósent á milli ára sem er minni hækkun en var á hinum tveimur fjórðungum ársins. Þrátt fyrir að uppgjör Eimskips hafi verið í samræmi við spá greinenda þá lækkuðu bréf félagsins í verði um átta prósent í 400 milljóna viðskiptum í gær. Verðlækkunin kemur í kjölfar þess að fjárfestingasjóðurinn Yucaipa tilkynnti samhliða uppgjöri félagsins að hann væri að skoða sölu á hluta eða allri hlutafjáreign sinni en sjóðurinn er stærsti hluthafi Eimskips með 25,3 prósenta hlut. Miðað við gengi bréfa Eimskips við lokun markaða í gær er sá hlutur metinn á um 12,5 milljarða.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Óvíst að fullyrðing um kjaragliðnun standist skoðun Viðskipti innlent Í hvað eru peningarnir þínir að fara? Samstarf Halla ráðin markaðsstjóri BM Vallár Viðskipti innlent „Það sem áður var sígó-pásan er nú jóga-pásan“ Atvinnulíf Setti Ölgerðina í bann en hefur nú snúist hugur Neytendur Boðar aðgerðir á allra næstu dögum gegn verðbólgu Viðskipti innlent Icewear Garn opnar í Kringlunni Samstarf Dæmdir fyrir að taka við fé fyrir Teslur sem þeir afhentu aldrei Viðskipti innlent Andri Þór hættir sem forstjóri Ölgerðarinnar Viðskipti innlent Gjaldþrot Play nemur 21 milljarði króna Viðskipti innlent Fleiri fréttir Óvíst að fullyrðing um kjaragliðnun standist skoðun Halla ráðin markaðsstjóri BM Vallár Andri Þór hættir sem forstjóri Ölgerðarinnar Gjaldþrot Play nemur 21 milljarði króna Boðar aðgerðir á allra næstu dögum gegn verðbólgu Dæmdir fyrir að taka við fé fyrir Teslur sem þeir afhentu aldrei Affineva bar sigur úr býtum Munaðarlausi apinn í Japan farinn að hafa áhrif á Íslandi Gugga fer í fyrirtækjarekstur „Það er einhvers konar pissa í skóinn sinn-hagfræði“ Sýn skilaði hagnaði á fjórða ársfjórðungi Kvikutoppar fóru fýluferð í Landsrétt og borga tugi milljóna Bein útsending: Lokakeppni Gulleggsins 2026 Tekist á um kaupfox og hefð vegna 80 ára jeppa Mikið í húfi ef ekki dregur úr verðbólgu og vaxtalækkun ekki í sjónmáli Tilboð Icelandair það eina og langt yfir áætlun Lilja nýr markaðs- og upplifunarstjóri hjá Högum Verðbólga stendur í stað þvert á spár Bjarni Guðjóns hættir hjá VÍS Festa kaup á hugbúnaðarfyrirtækinu Evolv Selja húsnæði Vélfags á Ólafsfirði Óttar og Jón Arnór látnir róa vegna tengsla við viðskiptavin Velta heilsulinda jókst töluvert „Ægilega hamingjusamur“ með milljarðana frá Kerecis Sögðu upp blaðamönnum Grapevine og reksturinn í járnum Hvar liggur jafnvægið í eyðslu og sparnaði? Samrunaviðræðum Íslandsbanka og Skaga slitið „Við reiknum með því að bandarísk stjórnvöld séu með plan B“ Engin viðvarandi markaðssetning frá 2023 Bestu íslensku vörumerkin 2025 heiðruð í Hörpu Sjá meira