Glamour

Sendir öflug skilaboð með útsaumi

Ritstjórn skrifar
Skjáskot/Instagram
Breska listakonan Sophie King hefur að undanförnu vakið athygli fyrir áhugavert handavinnu sína en það má segja að hún sendi ákveðin skilaboð með útsaumi.

King hefur einbeitt sér að því að gefa konum ráðleggingar varðandi karlmenn, sambönd og sjálfsvirðingu. Skilaboð sem hún saumar út í flíkur eða með hefðbundum útsaumshætti. Í gegnum þá byltingu sem núna er í gangi í samfélaginu í tengslum við #metoo þá hefur King orðið á stuttum tíma einn vinsælasti aktívistinn á Instagram, með yfir 40 þúsund fylgjendur þar og heimasíðu þar sem flíkurnar og aðrar vörur eru til sölu.

Skilaboðin sem um ræðir eru til dæmis:

You’re not a bad boy/you’re just a bad person“ 

“Your first love should be yourself “

Stop teaching girls that boys are mean to them because they like them.“

Stop blaming women for men’s inadequacies“

 

 

 Þessi skilaboð eiga heldur betur vel við í dag og segir King í samtali við Vogue að hún hafi verið orðin langþreytt á því að karlmenn séu ekki látnir taka ábyrgð á gjörðum sínum og þeim kúltur sem er viðvarandi í samfélaginu að vondir strákar sé settir á stall.

Til dæmis er hún farin að sauma skilaboð í blúndu brjóstarhaldara, flík sem er mjög kvenleg.



„Ég vona að ef fólk vill þá mun það fá smá kraft með því að klæðast flíkum með útsauminum mínum, sem er fjallar í grunninn um að endurheimt valdið yfir okkar eigin líkama.“

Hægt er að skoða meira á Instagramsíðu King hér og á heimsíðunni hér. 


 

Stop romanticising the bad boy trope Top now available!

A post shared by Sophie King (@kingsophiesworld) on

New embroidery.

A post shared by Sophie King (@kingsophiesworld) on






×