Risarnir seldu kaffi fyrir 2,2 milljarða í fyrra Sigurður Mikael Jónsson skrifar 17. nóvember 2017 07:00 Kaffitár tapaði 10 milljónum í fyrra. Vísir/arnþór
Tekjur stóru kaffikeðjanna tveggja, Kaffitárs og Te og kaffi, námu alls rúmlega 2,2 milljörðum króna í fyrra. Afkoma þeirra var þó ólík og ljóst að nokkrar sviptingar hafa orðið í kaffibransanum. Kaffitár, sem velti tæplega 1.100 milljónum, skilaði tapi annað árið í röð þó heldur minna en árið 2015. Í fyrra nam tapið 10,5 milljónum en var 19,7 milljónir árið áður. Eftir verulega jákvæða afkomu árin 2012 og 2013 þar sem hagnaðurinn nam um og yfir 80 milljónum króna hafa síðustu þrjú rekstrarár verið erfið. Kaffitár stofnaði dótturfélagið Kruðerí árið 2015 sem sérhæfir sig í framleiðslu meðlætis með kaffi. Í skýrslu stjórnar segir að rekstur ársins 2016 hafi mótast nokkuð af uppbyggingu dótturfélagsins. Í fyrra voru fest kaup á húsnæði að Stórhöfða 17 og opnað þar kaffihús og þá gerði félagið samning um veitingarekstur í Perlunni sem hófst í ár. Forstjóraskipti urðu hjá fyrirtækinu í fyrra þegar stofnandi og aðaleigandi Kaffitárs, Aðalheiður Héðinsdóttir, lét af störfum og Kristbjörg Edda Jóhannsdóttir tók við. Kaffitár rekur að auki kaffibrennslu og sjö kaffihús á höfuðborgarsvæðinu. Te og kaffi, sem velti rúmum 1.150 milljónum króna, skilaði hagnaði upp á rúmar 6,5 milljónir króna árið 2016. Dregst hagnaður fyrirtækisins nokkuð saman milli ára en hann nam 19,7 milljónum árið 2015. Te og kaffi rekur 13 kaffihús samhliða kaffiframleiðslu.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Eins og Steve Jobs hafi verslað í fataskápinn hans Atvinnulíf „Þjóðaröryggismál að viðhalda þessari stétt“ Samstarf Hvenær getur þú hætt að vinna? Samstarf Afkoma umfram áætlanir Viðskipti innlent Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Viðskipti innlent Fjölmenntu á vorviðburð Málningar og Slippfélagsins Samstarf Súperdósin snýr aftur Neytendur Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Viðskipti innlent Þakefni sem standast rokið, rigninguna og tímans tönn Samstarf Ungir frumkvöðlar byggðu allt frá grunni Samstarf Fleiri fréttir Afkoma umfram áætlanir Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Gætu lagt 757-þotunum í haust Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Sólin sest á Guide to Europe Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Himneskt ei meir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Sjá meira