Sætir farbanni vegna gruns um smygl á fólki Nína Hjördís Þorkelsdóttir skrifar 17. október 2017 19:59 Maðurinn sætir farbanni til 10. nóvember næstkomandi. Vísir/Pjetur
Hæstiréttur staðfesti í dag úrskurð Héraðsdóms Reykjaness um að maður, sem ákærður er fyrir að hafa reynt að smygla írakskri fjölskyldu til Íslands, skuli sæta farbanni til föstudagsins 10. nóvember. Samkvæmt dómi Hæstaréttar kom maðurinn til landsins með flugi frá Kaupmannahöfn þann 13. september síðastliðinn. Við komuna í Flugstöð Leifs Eiríkssonar fundust á manninum fern skilríki sem ekki tilheyrðu manninum. Um var að ræða pappíra frá Írak og Þýskalandi auk ákvörðunarpappírs frá Þýskalandi, dagsettum 8. apríl 2017, um synjun um hæli með fjórum nöfnum. Tilheyrðu pappírarnir fjögurra manna fjölskyldu frá Írak sem kom með sama flugi til landsins. Lagt var hald á pappírana áður en hinn ákærði hélt inn í landið. Skömmu síðar komu réttmætir eigendur pappíranna í komusal flugstöðvarinnar og sóttu um hæli. Maðurinn var handtekinn fáeinum dögum síðar vegna gruns um smygl á fólki. Hann hefur viðurkennt að hafa borgað fyrir flugmiða fjölskyldunnar frá Íslandi til Dyflinnar. Fjölskyldan segist hafa framvísað fölsuðum rúmenskum skilríkjum á ferðalagi sínu hingað frá Kaupmannahöfn og að maðurinn hefði haft af sér skilríkin skömmu eftir innritun á Kastrup-flugvelli. Skilríkin hafa þó ekki komið í leitirnar enn. Rannsókn á málinu er lokið en ákæra var gefin út á hendur manninum síðastliðinn föstudag. Brot af þessu tagi geta varðað allt að sex ára fangelsi. Krafan um farbann grundvallaðist á því að hinn ákærði er erlendur ríkisborgari og því hætt við að hann muni reyna að komast úr landi eða koma sér með öðrum hætti undan málsókn eða fullnustu refsingar ef honum er heimilt að fara frjáls ferða sinna.
Mest lesið Myndir: Allt á floti í Kringlunni Innlent Umfangsmikið mengunarslys vegna rútuslyssins Innlent „Sumar búðir hafa sloppið vel, aðrar ekki“ Innlent Náði ekki að loka búðinni áður en henni var sagt að koma sér út Innlent „Við munum ekkert hreyfa okkur í sumar“ Innlent Leiðinlegt fyrir útskriftarnema sem er hent út áður en þeir taka sopa Innlent Konungsskip Dana í Reykjavík Innlent Sigurður Ingi ekki búinn að undirrita Isavia-samning Innlent Sumarveður fyrir sunnan en annars staðar skýjað Veður Harma banaslysið og hafa uppfært verkferla Innlent Fleiri fréttir Myndir: Allt á floti í Kringlunni Umfangsmikið mengunarslys vegna rútuslyssins Konungsskip Dana í Reykjavík „Sumar búðir hafa sloppið vel, aðrar ekki“ Safnað fyrir gróðurskála á Kirkjubæjarklaustri „Við munum ekkert hreyfa okkur í sumar“ Flókið verkefni og mikið tjón í Kringlunni Leiðinlegt fyrir útskriftarnema sem er hent út áður en þeir taka sopa Eldur í Kringlunni og Kristján Loftsson um hvalveiðileyfið Náði ekki að loka búðinni áður en henni var sagt að koma sér út Héldu fyrst að þetta væri brunaæfing Sigurður Ingi ekki búinn að undirrita Isavia-samning Eldur logar í þaki Kringlunnar Björgunarsveit kölluð út í Þórsmörk Áhyggjur af vanda drengja í menntakerfinu óþarfar Þyrlan kölluð út vegna reiðslyss Kjósendur Jóns Gnarr líklegastir til að vera ósáttir með Höllu Vilja banna hvalveiðar með lögum Áttatíu prósent af plasti í fjörum landsins kemur frá útlöndum Efast um að ráðherrar nái fram markmiði sínu Tveimur haldið sofandi vegna slyssins Rútuslys í Öxnadal og meintar rangfærslur ráðherra Guðni snýr aftur í sagnfræðina Leita að nýju húsnæði fyrir kaffistofu Samhjálpar Öxnadalsheiði opin á ný Harma banaslysið og hafa uppfært verkferla Bein útsending: Brautskráningar Háskóla Íslands Svandís og Sigurður Ingi sögð bakka upp bílastæðagjöldin Of snemmt að kenna bikblæðingum um Átök á lokametrunum: Saka ríkisstjórn um að „slátra“ samgönguáætlun Sjá meira