Gaman að finna gersemar Sigríður Inga Sigurðardóttir skrifar 5. október 2017 10:30 Védís Fríða keypti græna bolinn á Fatamarkaðnum við Hlemm. Pilsið er úr Zöru og sokkabuxurnar úr Rauðakrossbúðinni. Bakpokinn er frá Yves Saint Laurent og keyptur í Góða hirðinum, líkt og eyrnalokkarnir. MYND/EYÞÓR
Fjölskyldan mín ákvað eiginlega að ég yrði listakona strax þegar ég var á unga aldri þar sem ég gerði lítið annað en að teikna. Það var engin pressa því ég kann hvort eð er ekkert annað. Nema kannski að elda,“ segir Védís Fríða Óskarsdóttir. Hún er á öðru ári í sjónlistadeild við Myndlistaskólann í Reykjavík. Samhliða náminu vinnur hún á sambýli hjá Reykjavíkurborg.Spáir þú mikið í tísku? Ég get verið föst í tölvunni tímunum saman á meðan tískuvikan í New York stendur yfir, en spái lítið í hvað er í tísku þegar ég kaupi föt á sjálfa mig.Hvernig myndir þú lýsa þínum stíl? Ég myndi lýsa honum sem mjög óreglulegum.Hvar kaupir þú helst fötin þín? Ég versla aðallega hjá Rauða krossinum og Hjálpræðishernum en svo rata ég einnig oft inn á skemmtilega markaði og í leyndar nytjabúðir.Áttu þér uppáhaldsfataverslun? Það er svo ógurlega mikið til af fötum í heiminum að ég kaupi eiginlega bara notuð föt. Mér finnst sérstaklega gaman að fara á fatamarkaðinn við Hlemm, þar leynast helstu gersemarnar.Hvaða föt eru í mestu uppáhaldi hjá þér? Föt sem er erfitt að greina hvort manni finnst vera hryllingur eða tærasta snilld. Svo er efnið auðvitað eitt það mikilvægasta að mínu mati.Hvaða flík hefur þú átt lengst og notar enn þá? Það mun vera fölbleika Spaksmannsspjaraskyrtan mín sem ég keypti á 100 kall í Kolaportinu fyrir um það bil 10 árum. Ég hef notað hana rosalega mikið í gegnum tíðina, enda sést það vel á henni.Skyrtan er keypt á fatamarkaði á Bar Ananas. Gallabuxurnar eru frá Tommy Hilfiger og beltið átti mamma Védísar Fríðu þegar hún var unglingur. MYND/EYÞÓRUppáhaldshönnuður? Alessandro Michele, yfirhönnuðurinn hjá Gucci, er búinn að gera magnaða hluti upp á síðkastið.Notar þú fylgihluti? Ég á mjög mikið af skartgripum en nota þá örsjaldan, set þá kannski á mig og ríf þá af mér áður en klukkutími er liðinn. Ég kaupi samt alltaf meira af skartgripum þrátt fyrir að vera hundrað prósent meðvituð um þessa hegðun.Áttu þér tískufyrirmynd? Já, flest allar úr sjónvarsþáttum og bíómyndum frá 10. áratugnum. Buffy og Willow úr Buffy the Vampire Slayer og Cher úr Clueless myndu líklega þó teljast sem uppáhalds.EYÞÓRBestu og verstu fatakaupin? Bestu fatakaupin mín eru klossalegir pönkaraskór sem ég keypti á fatamarkaði háskólanema og passa við allt! Verstu kaupin eru goth tútúpils sem ég keypti í 8. bekk sem mér fannst ógurlega nett og kostaði 5.000 krónur sem var heilmikill peningur á þeim tíma, og svo að sjálfsögðu notaði ég það aldrei.Er eitthvert tímabil sem þú tengir sérstaklega við í tískunni? Já, aðallega 70’s og 90’s.Finnst þér gaman að klæða þig upp á? Aðeins of gaman stundum en ég má ekki hafa samt of mikinn tíma til að hafa mig til, þá fer allt til fjandans.
Mest lesið Hryllingur og hiti á klúbbnum Lífið „Götustelpan“ glöð Lífið „Ég fæddist nefnilega á endalausu breytingarskeiði“ Lífið samstarf Hættur með fimmtíu árum yngri kærustunni Lífið Ekki gálgadans heldur hæ dúddelí dæ Gagnrýni Stjörnurnar fögnuðu flúruðum Maroni Tónlist Fær nafn átta árum eftir opinberun Leikjavísir Stefna á gullið með tíu tonn í farteskinu Matur „Ég er enn að venjast andlitinu á mér“ Bíó og sjónvarp Hinsegin ást í loftinu Lífið Fleiri fréttir „Af hverju eru allir að gefa ránfuglinum að borða?“ „Götustelpan“ glöð Hryllingur og hiti á klúbbnum Hvernig fílarðu böndin á Airwaves? Fundu ástina á Domino's Klöppuðu fyrir ofan höfuð á Frikka Dór Ellý er röddin sem þúsundir manna heyra á hverjum degi Hinsegin ást í loftinu Hættur með fimmtíu árum yngri kærustunni Tæplega þriggja áratuga löng gönguferð á enda Hvað veistu um… eyjar við Ísland? Íslensk listakona sló í gegn í Miami Safna í minningu Johns Snorra fyrir munaðarlaus börn Ólafía Þórunn orðin þriggja barna móðir „Erum bara vinir“ Áhrifavaldur lést í mótorhjólaslysi Útúrkókaður lögreglumaður stökk á mann sem var að slá garðinn um nótt Arnór Sig kominn á fast Stjörnulífið: Fáklædd og frjáls Mistök að hafa klætt sig upp sem heimilislausa Robert Irwin nýtti fríið og ferðaðist um Ísland Vonlaust að gagnrýna vini sína Luku þrjátíu ára hjónabandi með skilnaðarferð Krakkatía vikunnar: Hrekkjavaka, þjóðtrú og goðafræði Hnýta í Trump í nýrri herferð: „Velkomin til skítalands“ Níutíu og einn meistari útskrifaðist Andri Snær keppir við Elizabeth Holmes Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“ Hrekkjavökukort sem sé drifið áfram af samfélaginu Nýjar upplýsingar um morðið á Hrafnhildi Lilju átján árum síðar Sjá meira
Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“