Lýðskrum Stjórnarmaðurinn skrifar 9. október 2017 14:00
Nú eru kosningar fram undan og fulltrúar flokkanna komnir í gírinn. Þannig skundaði fyrsti maður á lista Samfylkingarinnar í Reykjavík í útvarpið og lýsti því yfir að aðalmálið í þessum kosningum væri kynferðisofbeldi gegn börnum. Formaður Vinstri grænna lét svo ekki sitt eftir liggja en hún ætlar að láta baráttuna gegn bónusum í fjármálakerfinu á oddinn í kosningabaráttunni. Samfylkingin er eins og fólk man flokkurinn sem allt að því þurrkaðist út í síðustu kosningum. Það telst nánast vera afrek í landi á borð við Ísland þar sem nánast allir geta að minnsta kosti að einhverju leyti sætt sig við sósíaldemókratískar áherslur. Auðvitað eru allir á því að það eigi að vera í algerum forgangi að koma í veg fyrir kynferðisofbeldi gegn börnum. Þá skiptir engu máli í hvaða flokki það er. Kannski var einmitt þetta ein af ástæðum niðurlægingar Samfylkingarinnar? Almennar staðhæfingar um sjálfsagða hluti. Ekkert kjöt á beinunum. Útspil formanns VG er af sama toga. Staðreyndin er einfaldlega sú að á Íslandi eru borgaðir lægstu bónusar úr fjármálafyrirtækjum sem þekkist á byggðu bóli. Kaupaukar mega í mesta lagi nema 25% árslauna þess starfsmanns sem um ræðir, innan Evrópusambandsins er hlutfallið 100% en 200% í Bretlandi. Bónusa þarf jafnframt að greiða yfir þriggja ára tímabil. Þannig má sem dæmi segja að starfsmaður með 1,5 milljónir á mánuði, sem telst dágott, fær í sinn hlut 4,5 milljónir að því gefnu að hann nái efsta þrepi. Það greiðist svo á þremur árum, þannig að greiðsla fyrsta árið nemur að frádregnum skatti rétt tæpri milljón aukalega. Varla er þetta hið stórkostlega hneyksli sem Katrín hyggst uppræta? Einnig má velta því fyrir sér hvert hún beinir sjónum sínum næst, en eins og allir vita hefur lengi tíðkast að greiða svokallaða desemberuppbót á almennum vinnumarkaði. Vafalaust á hið sama við um það, eða kannski ekki, enda er þar ekki um bankamenn að ræða? Vonandi sjá kjósendur í gegnum svona lýðskrum. Kosningarnar sem fram undan eru eiga ekki að snúast um bónusa, enda eru þeir ekki raunverulegt vandamál, þær eiga heldur ekki að snúast um klisjur úr munni pólitíkusa sem hafa skulu það sem betur hljómar. Kosningarnar eiga að snúast um raunveruleg vandamál, og raunverulegar lausnir. Lýst er eftir pólitíkusum með slíkar áherslur.Stjórnarmaðurinn er sigldur innherji með puttann á púlsinum. Stjórnarmaðurinn skrifar í Markaðinn í Fréttablaðinu á miðvikudögum og liggur ekki á skoðunum sínum um menn og viðskiptaleg málefni.
Mest lesið Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Viðskipti innlent Fréttamaður missti af strætónum til baka Neytendur Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Viðskipti innlent Þegar svona sprengja springur vill allur vinnustaðurinn „fá allt á hreint“ Atvinnulíf Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag Viðskipti innlent 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Viðskipti innlent „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Viðskipti innlent Gapti þegar hún sá heimilisbókhaldið hjá Röggu nagla Neytendur Klíníkin sótti 300 milljónir króna Viðskipti innlent Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Verðbólga ekki meiri í tvö ár Högnuðust um milljarð Rúmlega tuttugu sagt upp hjá ÍAV Hannes Þór, Hannes Þór og Allan greiða sér 100 milljónir í arð Uppsagnir í Arion banka Sjá meira