Pör með sameiginlega Facebook síðu Guðný Hrönn skrifar 1. september 2017 12:45 Sumum þykir hentugt fyrirkomulag að deila Facebook-síðu með maka sínum. Pörin Beggi og Pacas og Svala og Davíð eru meðal þeirra.
Stór hluti landsmanna er með Facebook síðu enda er það góð leið til að halda sambandi við fólk. Flestir skrá sig sem einstakling á Facebook en sumir kjósa að skrá sig með maka sínum. Pörin Beggi og Pacas og Svala og Davíð eru meðal þeirra sem eru með parasíðu. Parið Beggi og Pacas deila Facebook síðu en þeir hafa svo einnig hvor sína síðuna. „Við erum sem sagt með þrjár síður. Ástæðan fyrir sameiginlegu síðunni er sú að saman viljum við deila kærleika og hlýju með fólki. Og við erum með 5.000 vini á þeirri síðu þannig að við þurftum að opna nýjar síður. Maður getur víst ekki átt fleiri en 5.000 vini á Facebook,“ segir Beggi Begga og Pacasi finnst mikilvægt að nota Facebook til að tengjast vinum og fjölskyldu. „Það er líka gott að vera með einstaklingssíðu til að fylgjast með fjölskyldunni í hröðu samfélagi.“ „Þetta virkar mjög vel, það skiptir máli að hafa gott tengslanet. Svo erum við Pacas mjög samrýndir og viljum deila gleði og hamingju,“ segir Beggi. Hentugasta fyrirkomulagið„Ástæðan fyrir því að við erum með sameiginlega Facebook síðu er sú að við eigum flest alla vini okkar sameiginlega,“ segja þau Svala og Davíð en þau halda úti sameiginlegri síðu á Facebook. Þeim þykir því hentugasta fyrirkomulagið að vera með sameiginlega síðu.„Þetta þykir okkur hentugt þegar eitthvað er um að vera, það fer þá ekki fram hjá öðru hvoru okkar. Og til hvers að hafa hvort sína síðuna þegar við getum haft hana sameiginlega? Þá er hægt að ganga beint að henni frekar en að þurfa alltaf að skrá sig út til að hinn geti skráð sig inn.“ „Facebook síður eru dægradvöl en ekki lífið. Ef fólki finnst skrítið að hafa sameiginlega síðu þá ætti það bara að prófa það til tilbreytingar.“
Mest lesið Kristrún valdi Victoriu Beckham Tíska og hönnun „Ég geri bara ráð fyrir því að fólk sé búið að gleyma mér“ Tónlist Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Lífið Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Lífið Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Lífið Hvað veistu um... íslenska hönnun? Lífið Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Lífið Funheit í fimm ára afmæli Lífið Barnaspítalabindi Billy stal senunni Tíska og hönnun Gellustælar og íslenskar listagyðjur í París Tíska og hönnun Fleiri fréttir Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Hvað veistu um... íslenska hönnun? Funheit í fimm ára afmæli Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs Tendra friðarsúluna í tuttugasta sinn Elegant herrar selja perlu í 101 Tískudrottningar fögnuðu kærkominni opnun Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Stjörnulífið: „Lukka lífs míns að vera gift þessum“ Fæddist á Íslandi en þurfti áratugi til að fá það staðfest Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Ástæða fyrir því að þau fóru ekki hátt með sambandið Hágrét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn Krakkatía vikunnar: Eurovision, Harry Potter og Mr. Beast Líður betur eftir að hún þurfti að þjóta upp á spítala í miðri útsendingu Haustbingó Blökastsins í beinni Hemmi Gunn hjálpaði Hilmari og Birni Braga að svindla Segir Ríkissjónvarpið bregða fyrir sig fæti Unglingavinnan var tískupallurinn í París „Hún byrjaði alla daga á því að fara í kirkjugarðinn í Fossvogi“ Fréttatía vikunnar: Jesus, Haaland og Prettyboitjokkó Neitar að hafa haldið fram hjá Lönu del Rey Ice Spice fór á klósettið á OTO „Ef það er ekki erfitt þá er það ekki þess virði“ Auglýsing fyrir Bleiku slaufuna frumsýnd á Vísi og Sýn Sjá meira