BF ekki rætt borgarbandalag við Viðreisn Stefán Rafn Sigurbjörnsson skrifar 1. september 2017 15:15 Óttarr segir flokksmenn ekki velta sér mikið upp úr slöku gengi í skoðanakönnunum. „
Þetta er auðvitað í fyrsta sinn sem við höldum ársfund sem þátttakendur í ríkisstjórn,“ segir Óttarr Proppé, formaður Bjartrar Framtíðar. „Þannig að það er svona pólitíska sviðið sem við munum virða fyrir okkur og munum auðvitað spekúlera í vetrinum fram undan.“ Ársfundur Bjartrar Framtíðar verður settur á Hotel Natura á morgun. Óttarr Proppé gefur áframhaldandi kost á sér sem formaður Bjartrar Framtíðar. Tveir hafa gefið kost á sér í embætti stjórnarformanns flokksins, það eru þau Guðlaug Kristjánsdóttir, oddviti Bjartrar Framtíðar í Hafnarfirði og forseti bæjarstjórnar og G. Valdemar Valdemarsson, ritari flokksins og oddviti hans í NV kjördæmi fyrir Alþingiskosningarnar í fyrra. „Það er heilmikið að gerast í íslenskri pólitík,“ segir Óttarr. „Við erum á toppinum á ákveðinni efnahagssveiflu sem kallar á ábyrg stjórnmál en síðan erum við í Bjartri Framtíð að læra mikið af því hvernig er að vera flokkur í ríkisstjórn og hvernig við ætlum að vinna í þeim aðstæðum og breyta pólitíkinni hjá okkur sjalfum.“ Fylgi Bjartrar Framtíðar var þokkalega gott frá stofnun. Mest mældist flokkurinn með 18.6 prósent samkvæmt þjóðarpúlsi Gallup en síðan þá hefur fylgið nokkuð dalað sér í lagi eftir að flokkurinn settist í ríkisstjórn. Nýlegustu kannanir sýna að Björt Framtíð myndi ekki ná manni inn á Alþingi ef kosið væri í dag.Fylgi Bjartrar FramtíðarInfogramÓttarr segist ekki hafa miklar áhyggjur af fylginu. Flokkurinn hlaupi ekki á eftir vinsælum straumum og vill stjórna af ábyrgð. „Við í Bjartri Framtíð höfum nú ekki almennt hlaupið algerlega í vinsældarpólitíkina þó að við viljum auðvitað hafa stuðning til góðra verka,“ segir Óttarr. „Við viljum vera í pólitík til þess að taka ábyrgð. Á borði en ekki bara í orði. Það getur verið erfiðara að standa við stóru orðin þegar maður er í stöðu til að setja stefnu og sömuleiðis líka í ábyrgð til að standa undur henni. Þannig að þetta verður partur af okkar umræðum um helgina,“ segir hann.Óttarr Proppé og Benedikt Jóhanesson voru mjög samstíga í stjórnarmyndunarviðræðum.Vísir/AntonEftir síðustu Alþingiskosningar mynduðu Óttarr Proppé og Benedikt Jóhannesson, formaður Viðreisnar, bandalag flokkanna fyrir viðræður um myndun ríkisstjórna. Bandalagið skilaði flokkunum samtals fjórum stólum við ríkisstjórnarborðið. Þrálátur orðrómur hefur verið á kreiki um að flokkarnir myndu bjóða fram saman á sveitastjórnarstigi eða jafnvel sameinast. Í nýlegri skoðanakönnun Fréttablaðsins kemur fram að Viðreisn myndi fá einn fulltrúa í borgarstjórn Reykjavíkur ef kosið væri í dag en Björt Framtíð myndi missa sína tvo borgarfulltrúa. Óttarr segir að engar samræður hafi átt sér stað um bandalag eða sameiningu. Ákvarðanir um samstarf á sveitastjórnarstigi væri þá ákveðið á meðal félaga Bjartrar Framtíðar í hverju sveitafélagi fyrir sig. „Nei það hefur ekki komið til tals að fara að starfa sérstaklega náið með öðrum flokkum eða sameinast eins og maður heyrir nú stundum kallað,“ segir Óttarr.
Mest lesið Notuðu piparúða á mótmælendur Innlent Hefði „slátrað“ dóttur sinni byggju þau í „arabalandi“ Innlent Tuttugu sendlar Wolt eiga yfir höfði sér kæru Innlent Maðurinn sem féll í Fnjóská fannst látinn Innlent „Við höfum ekki séð þetta á Íslandi áður“ Innlent Lífið brosir við mæðgum eftir áralangt einelti Innlent Ný könnun sýnir stefna í æsispennandi kjördag Innlent Fyrirskipar forsætisráðuneytinu að fara yfir ferla Innlent Páll sýknaður Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Fleiri fréttir Ólík sýn á hvort Íslandi eigi að styðja vörn Úkraínumanna „Við útrýmum ekki ofbeldi með hatri“ Skítkast í „skrýtinni og óvæginni“ kosningabaráttu „Við höfum ekki séð þetta á Íslandi áður“ Mótmælin í dag þau hörðustu í mörg ár Sækja veikan jeppamann á Langjökli VÍS þarf að bæta hluta jarðýtu í mannskæðu vinnuslysi Lokasprettur fyrir kosningar og umræða um kynbundið ofbeldi Ný könnun sýnir stefna í æsispennandi kjördag Hvar áttu að kjósa í forsetakosningum? Fyrirskipar forsætisráðuneytinu að fara yfir ferla „Heiðurstengt ofbeldi er ekki okkar stærsta vandamál“ Eldgosið í beinni útsendingu Taka aftur við eignum í Grindavík eftir helgi Páll sýknaður Tuttugu sendlar Wolt eiga yfir höfði sér kæru Þorvaldur tekur undir goslokaspá Haraldar Gætu gloprað niður sigrinum eða tryggt sér hann í kvöld Hefði „slátrað“ dóttur sinni byggju þau í „arabalandi“ Viðhald eigna og verðmætabjörgun í Grindavík í dag Piparúða beitt gegn mótmælendum í Skuggasundi Maðurinn sem féll í Fnjóská fannst látinn Lífið brosir við mæðgum eftir áralangt einelti Þakkar fyrir að hafa ekki þurft að beita kylfum Notuðu piparúða á mótmælendur Hvattur til að draga sig til hlés til að klekkja á Katrínu Sérfræðingar í straumvatnsleit aðstoða við leit í Fnjóská Gekk misvel að tala um kvótakerfið á fjörutíu sekúndum á ensku Bjarni fundar með Selenskí í Stokkhólmi Alþjóðasamfélagið sé að klikka á Gasa Sjá meira