Sjóðheitir Spánverjar hófu titilvörnina af krafti Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 1. september 2017 22:30 Marc Gasol skoraði níu stig fyrir Spán í stórsigrinum á Svartfjallalandi. vísir/epa
Sex leikir fóru fram á EM í körfubolta í dag. Evrópumeistarar Spánverja hófu titilvörnina með því að rúlla yfir Svartfellinga, 99-60, í C-riðli. Willy Hernangómez var atkvæðamestur hjá Spáni með 18 stig og níu fráköst. Sergio Rodríguez gaf 10 stoðsendingar á aðeins 14 mínútum. Þriggja stiga nýting Spánverja var lygileg, eða 64,7%. Nikola Vucevic var stigahæstur hjá Svartfjallalandi með 16 stig. Bojan Bogdanovic skoraði 23 stig og tók sjö fráköst þegar Króatía vann níu stiga sigur á Ungverjalandi, 58-67, í C-riðli. Dario Saric skoraði 15 stig. Þá vann Tékkland 15 stiga sigur á Rúmeníu, 68-83.Serbinn Bogdan Bogdanovic skoraði 30 stig gegn Lettum.vísir/gettyBogdan Bogdanovic fór mikinn þegar Serbar báru sigurorð af Lettum, 92-82, í D-riðli. Bogdanovic skoraði 30 stig og gaf fjórar stoðsendingar fyrir serbneska liðið sem saknar nokkurra sterkra leikmanna á EM. Dairis Bertans skoraði 23 stig og gaf sex stoðsendingar fyrir Letta. Kristpas Porzingis, leikmaður New York Knicks, skoraði 18 stig og varði fjögur skot. Rússar unnu þriggja stiga sigur á Tyrkjum, 73-76. Alexei Shved skoraði 22 stig fyrir Rússland og Timofey Mozgov skoraði 20 stig og tók níu fráköst. Cedi Osman átti frábæran leik í liði Tyrklands. Hann skoraði 28 stig, tók sjö fráköst, gaf fjórar stoðsendingar og stal sjö boltum. Þá vann Belgía Bretland, 103-90.
EM 2017 í Finnlandi Mest lesið „Horft illum augum á þannig taktík í hlaupaheiminum“ Sport Yfirgaf æfingaferð Marseille í áfalli Fótbolti Tilfinningaþrungin stund þegar Magnús Máni kom í mark Sport Pólverjar bæta við sig Kana fyrir EM Körfubolti Sjáðu markaveislu Arsenal og fullkomna byrjun Tottenham Fótbolti Vann hálft maraþon, fæddi barn og varð svo meistari í heilu maraþoni Sport Kom inn á fyrir Dag, skoraði og kýldi mótherja Fótbolti Næst yngsti leikmaður í sögu ensku úrvalsdeildarinnar Sport Onana með í dag en Man. Utd að landa markverði Enski boltinn Guðlaugur Victor til Danmerkur á ný Fótbolti Fleiri fréttir Pólverjar bæta við sig Kana fyrir EM Tap í síðasta leik fyrir EM „Lukkudýrið“ í mál við félagið ÍR-ingar sækja Grikkja á Álftanesið: „Sannkallaðar gleðifréttir“ Brotnaði saman þegar hann bar liðsfélögum tíðindin Faðir Boston Celtics stjörnu handtekinn fyrir morðtilraun Yngri Agravanis-bróðirinn í Stjörnuna Beittu sér fyrir keppnisbanni Ísraela: „Ekki fengið nógu marga með okkur í lið“ Yfirlýsing KKÍ: Hætta ekki við leikinn við Ísrael Almar var kominn alla leið til Bandaríkjanna Haukur Helgi meiddur og Almar kallaður inn í hópinn Nánast allar treyjur uppseldar fyrir EM Erfitt að horfa á félagana detta út Craig Pedersen um erfitt val á EM-hóp: „Frábært vandamál að glíma við“ Forseti Íslands hvatti landsliðið til dáða Giannis loksins mættur en Grikkirnir neita að útskýra fjarveruna Svona er hópur Íslands sem fer á EM Keflavík semur við Breta: „Þekktur fyrir öfluga nærveru í teignum“ Manchester heimsækir Síkið og Tindastóll fer til fjögurra landa Mögulegt áfall fyrir Slóvena í aðdraganda EM Tryggvi lét mest til sín taka í tapi gegn Portúgal Khalil Shabazz til Grindavíkur Fyrsti sigur á Svíum í 33 ár og feðgar í aðalhlutverki í báðum Eiginkonan líkir þjálfara Slóvena við Gosa Keflavík fær bandarískan framherja Misstu Martin út en sneru leiknum og unnu Svía Jaka skilinn eftir og þrettán leikmenn berjast um hin tólf sætin Með fyrsta þrjátíu tuttugu leikinn í sögu WNBA Ótryggður Giannis tekur ekki þátt í undirbúningi Grikklands Þjóðverjar unnu Doncic lausa Slóvena Sjá meira