Skáldað í eyðurnar Kristjana Guðbrandsdóttir skrifar 9. september 2017 10:00 Lesendur geta spreytt sig á þessari myndasögu Lóu og skáldað í eyðurnar.
Hugmyndir kvikna ekki í tómarúmi, það er líka gaman að prófa að byggja ofan á vinnu annarra,“ segir Lóa Hjálmtýsdóttir, teiknari og myndasöguhöfundur, sem leiðbeinir börnum í myndasögugerð í Barnahellinum í Norræna húsinu í dag. Lóa hefur útbúið myndasögu með eyðum sem má fylla í og sést hér að ofan. „Ég teikna sögu en sleppi hluta af henni þannig að börnin þurfa að vinna inn í söguna og geta í eyðuna. Það lækkar þröskuldinn og er oft hvetjandi að koma ekki að hvítu blaði,“ segir Lóa.Lóa Hjálmtýsdóttir býður börn og fullorðna velkomna í myndasögugerð í Norræna húsinu í dag. Fréttablaðið/Ernir„Ég er ánægð að geta loksins tekið þátt í Bókmenntahátíð, ég hef vanalega verið að túra með FM Belfast á þessum tíma ársins. En ekki í ár og ég stökk því á tækifærið,“ segir Lóa. Sjálf fór Lóa á eftirminnilegt myndlistarnámskeið átta ára gömul. „Þetta námskeið var í gamla Myndlista- og handíðaskólanum. Þar gerði ég mína fyrstu myndasögu. Ég teiknaði epíska myndasögu um listasafn þar sem listaverkin vakna á nóttunni. Kannski ég ætti að senda Ben Stiller bréf og segja honum að það hafi ekki farið fram hjá mér að hann hafi leitað í myndasögu mína eftir innblæstri fyrir Night at the Museum. Söguþráðurinn er mjög svipaður,“ segir hún og bendir á að það sé ekki útilokað að epískar hugmyndir kvikni á námskeiðinu hjá henni í dag.
Mest lesið Kristrún valdi Victoriu Beckham Tíska og hönnun „Ég geri bara ráð fyrir því að fólk sé búið að gleyma mér“ Tónlist Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Lífið Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Lífið Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Lífið Hvað veistu um... íslenska hönnun? Lífið Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Lífið Funheit í fimm ára afmæli Lífið Barnaspítalabindi Billy stal senunni Tíska og hönnun Gellustælar og íslenskar listagyðjur í París Tíska og hönnun Fleiri fréttir Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Hvað veistu um... íslenska hönnun? Funheit í fimm ára afmæli Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs Tendra friðarsúluna í tuttugasta sinn Elegant herrar selja perlu í 101 Tískudrottningar fögnuðu kærkominni opnun Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Stjörnulífið: „Lukka lífs míns að vera gift þessum“ Fæddist á Íslandi en þurfti áratugi til að fá það staðfest Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Ástæða fyrir því að þau fóru ekki hátt með sambandið Hágrét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn Krakkatía vikunnar: Eurovision, Harry Potter og Mr. Beast Líður betur eftir að hún þurfti að þjóta upp á spítala í miðri útsendingu Haustbingó Blökastsins í beinni Hemmi Gunn hjálpaði Hilmari og Birni Braga að svindla Segir Ríkissjónvarpið bregða fyrir sig fæti Unglingavinnan var tískupallurinn í París „Hún byrjaði alla daga á því að fara í kirkjugarðinn í Fossvogi“ Fréttatía vikunnar: Jesus, Haaland og Prettyboitjokkó Neitar að hafa haldið fram hjá Lönu del Rey Ice Spice fór á klósettið á OTO „Ef það er ekki erfitt þá er það ekki þess virði“ Auglýsing fyrir Bleiku slaufuna frumsýnd á Vísi og Sýn Sjá meira